Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 14
14 23. febrúar 2018fréttir
O
fhleðsla skipa er landlægt
vandamál á Íslandi og til
stendur að gera hana refsi-
verða í kjölfar banaslyss.
Ásbjörn Óttarsson, fyrrverandi
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er
formaður verkefnisstjórnar á veg-
um samgönguráðuneytisins um
öryggi sjófarenda sem styður þá
tillögu. Skip í eigu Nesvers, fyrir-
tækis Ásbjarnar, er hins vegar sjálft
að koma ítrekað með umfram-
hleðslu í land.
Einn lést þegar Jóni Hákoni hvolfdi
Um hádegið þann 6. júlí árið 2015
fór báturinn Jón Hákon BA 60 úr
höfn í Patreksfirði og stefndi á
dragnótaveiðar við norðanverða
Vestfirði. Fyrsta halið sem báturinn
tók inn var 3,5 tonn af ýsu og gekk
veiðin vel. Skipverjar veiddu alla
nóttina og var síðasta halið tekið
inn klukkan sjö um morguninn. Þá
var tíu metra vindur og smá velting-
ur með stjórnborðsslagsíðu. Tals-
verður sjór var kominn inn á þilfar
og í einni veltunni flæddi sjór yfir
borðstokkinn stjórnborðsmegin.
Enn meira flæddi í næstu veltu og
lagðist báturinn þá á hliðina. Þá
áttuðu skipverjar sig á því að bátn-
um myndi hvolfa.
Þröstur Leó Gunnarsson leikari
var um borð í bátnum og náði að
komast nærri þurrum fótum yfir á
kjölinn þegar bátnum hvolfdi. Gat
hann þá aðstoðað tvo félaga sína,
sem höfðu lent í sjónum, upp á kjöl-
inn sem varð þeim sennilega til lífs.
Jón Hákon hvarf úr vöktunar-
kerfinu og var annar bátur sendur
til að athuga með hann. Þá fannst
Jón Hákon á hvolfi og þrír af fjór-
um skipverjum héngu á kilinum.
Höfðu þeir þá hafst þar við í um
það bil klukkustund. Fjórði skip-
verjinn, Magnús Kristján Björns-
son, fannst látinn á floti skammt
frá. Tíu mínútum síðar sökk Jón
Hákon til botns.
Skortir refsiheimildir
vegna ofhleðslu
Ýmislegt fór úrskeiðis í tilfelli Jóns
Hákons. Tveir björgunarbátar og
sjálfvirkur sleppibúnaður virkuðu
ekki, staðsetningarbúnaður var
gallaður og erfiðlega gekk að
koma skilaboðum til nærliggj-
andi báta. Ástæðan fyrir því að
báturinn sökk er hins vegar sú að
hann var ofhlaðinn og með við-
varandi stjórnborðshalla. Rann-
sóknarnefnd samgönguslysa tók
málið til skoðunar og skilaði af sér
skýrslu í mars árið 2017.
Þann 15. febrúar árið 2017
munaði minnstu að annar bátur,
Hjördís HU 16, færist vegna of-
hleðslu. Hjördís var á veiðum á
Breiðafirði og fór að taka inn á sig
sjó. Sent var út neyðarkall en bát-
urinn rétti sig af þegar skorið var á
línuna. Hjördís er 10 brúttótonna
bátur og umframhleðslan reyndist
4,5 tonn. Skipstjóri taldi það þó
ekki vera ofhleðslu.
Jón Bernódusson hjá Sam-
göngustofu segir að brúttótonn-
in gefi nokkuð góða mynd af því
hversu hlaðinn báturinn má vera:
„Ef þú ert með bát sem er skráður
á fimmtán brúttótonn þá getur þú
alltaf sett fimmtán tonn í hann
en þú átt ekki að fara mikið yfir
það. Þá verðum við að taka allt
með í reikninginn: aflann, balana,
olíuna, vistirnar, mannskapinn
um borð og margt fleira.“
Vandamálið segir Jón hins vegar
vera að það eru engar refsiheim-
ildir til við þessu. Þann 5. sept-
ember skilaði Rannsóknarnefnd
samgönguslysa af sér tillögum að
öryggissátt til að taka á ofhleðslu
skipa. Fyrsta tillaga nefndarinnar
var að það yrði gert afdráttarlaust
refsivert að ofhlaða fiskiskip og
eftirlit með því tryggt.
Greiddi sér ólöglegan arð
Tillögur rannsóknarnefndar-
innar voru studdar af verkefnis-
stjórn um öryggi sjófarenda með
nokkrum fyrirvörum þó. Í stjórn-
inni sitja fulltrúar ýmissa hags-
munaaðila, svo sem Landsbjargar,
Landhelgisgæslunnar, Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjó-
mannasambandinu. Skipaður
formaður er Ásbjörn Óttarsson,
sem sat á Alþingi fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn á árunum 2009 til 2013.
Árið 2010 var hann mikið í frétt-
um vegna ólöglegra arðgreiðslna
úr útgerðarfélaginu Nesveri ehf. í
Snæfellsbæ. Greiddi hann sér tug-
milljónir króna þrátt fyrir að eigið
fé fyrirtækisins væri neikvætt. Ás-
björn viðurkenndi brotið en sagð-
ist ekki hafa vitað að þetta væri
ólöglegt. Sagðist hann jafnframt
hafa endurgreitt féð.
Nesver ehf. rekur fiskiskipið
Tryggva Eðvarðs SH 002 sem hefur
skráða heimahöfn í Rifi á Snæfells-
nesi. Skipið er 14,96 brúttótonn af
gerðinni Cleopatra 38, framleitt
af Trefjum ehf. í Hafnarfirði. Frá
Trefjum ehf. fékk DV þau skilaboð
að Tryggvi Eðvarðs ætti ekki að
vera hlaðinn meira en sem nemur
um 15 tonnum.
Landa ítrekað yfir burðargetu
Vel hefur veiðst á Tryggva Eðvarðs
undanfarna mánuði en sam-
kvæmt heimildarmanni DV var
desemberveiðinni fagnað sérstak-
lega með kökuboði. Löndunar-
tölurnar benda þó til að skipið hafi
komið ofhlaðið í land.
Þann 9. desember kom Tryggvi
Eðvarðs með 15,3 tonn af óslægðum
afla í land og daginn eftir með 14,8
tonn. 29. desember var metdagur
í mánuðinum. Þá landaði skipið
tvisvar, 12,5 tonnum í fyrri ferð og
16,6 tonnum í seinni. Janúar veiðin
var ekki síðri og fimmta dag mánað-
arins var 18,6 tonnum landað. Í tvö
skipti í til viðbótar var landað yfir
15 tonnum af afla. 10. febrúar kom
Tryggvi með 17,2 tonn.
Hafa ber í huga að línubátar
eru jafnan með á bilinu 30 til 60
bala sem að sögn Jóns Bernódus-
sonar geta vegið samanlagt tvö til
þrjú tonn. Þá er ótalin þyngd olíu,
bauja, vista, mannskapar og svo
framvegis.
Hefur áður misst skip
Ekki náðist í Ásbjörn Óttarsson við
vinnslu þessarar fréttar þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir, bæði með hefð-
bundnum leiðum og í gegnum
ráðuneytið. Augljóst er að skip-
ið hefur verið að koma í land með
meiri hleðslu en burðargetan segir
til um. Að öllum líkindum yfir 20
tonn í einu tilfellinu.
Ofhleðsla skipa er töluvert
vandamál á Íslandi og hefur valdið
banaslysi. Samkvæmt áætlun eiga
viðurlög við ofhleðslu að vera inn-
leidd næsta sumar eða haust. Jón
Bernódusson segir: „Í gamla daga
voru allir bátar með þetta vanda-
mál. Þegar þeir lentu í vandræðum
gáfu þeir bara í. Þetta hefur samt
lagast mjög mikið með nýjum skip-
um og það er metnaður þeirra sem
eiga bátana að vera með fína báta
og hafa þá örugga. Að vera töffar-
inn úti á sjó … það er búið.“
Ásbjörn Óttarsson og fyrirtæki
hans Nesver hafa áður misst skip,
en reyndar ekki vegna ofhleðslu.
5,8 tonna færabáturinn Herdís SH
var á veiðum úti fyrir Bjargtöng-
um árið 2009 þegar eldur kom upp
í lúkarnum. Tveir menn voru um
borð, þar á meðal sonur Ásbjarnar.
Var þeim bjargað upp í annað skip
en Herdís sökk þegar reynt var að
draga hana í land. n
Skip
Ásbjarnar
landar ítrekað
umfram burðargetu
n Stýrir verkefnisstjórn um öryggi n Banaslys vegna ofhleðslu n Landlægt vandamál
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is „Að vera
töffarinn
úti á sjó …
það er búið.
Ásbjörn Óttarsson Sat á þingi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn 2009–2013.
Tryggvi Eðvarðs SH 2
Landaði 18,6 tonnum 5. janúar.
Þröstur Leó
Gunnarsson
Bjargaðist þegar
Jón Hákon fórst.