Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Side 2
2 16. mars 2018fréttir
sem eiga skilið milljón í launahækkun
Af hverju
ekki?
Laun
Eggerts Þórs
Kristófersson-
ar, forstjóra N1,
hækkuðu um eina milljón króna
á mánuði. Er hann núna með
5,9 milljónir á mánuði. N1 er að
stórum hluta í eigu lífeyrissjóða og
dróst hagnaður félagsins saman
um 1,4 milljarða á sama tíma og
laun forstjórans voru hækkuð um
milljón. Af því tilefni tók DV saman
lista yfir fimm sem eiga líka skilið
milljón í launahækkun.
Biskupinn
Virkir í athugasemdum
ærast þegar biskupinn
fær launahækkun,
þeim má ekki bregð-
ast. Hafa skal í huga að
það er ekki persónan
Agnes biskup sem
fengi launahækkun,
heldur bara biskupinn.
Guðni forseti
Ef það er einhver sem
á að fá milljón í launa-
hækkun er það Guðni
Th. Jóhannesson,
forseti Íslands, hann
gefur peninginn hvort
eð er til góðgerðamála.
Styðjum góð málefni,
hækkum laun Guðna.
Lalli Johns
Lalli hefur aldrei verið
efnaður og fékk aldrei
milljónirnar sem
honum voru dæmdar í
Breiðavíkurmálinu. Nú
er hann búinn að vera
edrú í fjögur ár og er á
góðum stað í lífinu.
Bjarkey Olsen
Gunnarsdóttir
Bjarkey Olsen,
þingflokksformaður
Vinstri grænna, er með
1,5 milljónir á mánuði,
þar af eru 180 þúsund
krónur á mánuði frá
Alþingi til að halda tvö
heimili. Hún segir það
ekki duga til að greiða
af húsnæðisláninu.
Kjararáð
Kjararáð hefur sýnt
ótrúlegan dugnað og
myndugleika á undan-
förnum misserum við
að hækka laun æðstu
ráðamanna. Það er
tími til kominn að
endurgjalda greiðann.
Á þessum degi …
16. mars
1190 – Um 150 gyðingar missa lífið í
Jórvíkurkastala í skipulögðum ofsókn-
um gegn þeim. Stór hluti gyðinganna
kaus að svipta sig lífi frekar en falla í
hendur múgsins.
1621 – Samoset, amerískur frumbyggi
af Mohegan-ættbálkinum, sækir heim
íbúa Plymouth-nýlendu og heilsar þeim
á ensku: „Velkomnir, Englendingar! Ég
heiti Samoset.“
1870 – Fyrsta útgáfa Rómeó og Júlíu
Tsjajkovskíjs er frumflutt. Flutningurinn
líður fyrir mótmæli gegn stjórnandan-
um, Nikolaí Rubinstein, vegna máls sem
varðar hann og stúdínu nokkra.
1958 – 50 milljónasti bíllinn, Thunder-
bird, rennur af framleiðslubandi Ford-
bifreiðaframleiðandans.
Síðustu orðin
segir sagan …
„Já, já, ég kem. Hinkraðu
bara aðeins.“
– Alexander páfi VI
(1.1. 1431–18.8. 1503)
A
nita Erla Thorarensen og
unnusti hennar, Sævar
Freyr Þórsson, fengu áfall
þegar þau fundu falda
myndavél inni í loftræstingu í íbúð
sem þau leigðu í Alicante á Spáni.
Íbúðina leigðu þau í gegnum
vefsíðuna booking.com.
Anita Erla segir í samtali við DV
að þegar hún Sævar komu í íbúð-
ina þann 7. mars síðastliðinn hafi
þau skoðað hana vandlega. „Við
erum varkár og pössum upp á
að skoða allt vandlega. Við litum
upp og sáum linsu. Þá tók ég eftir
myndavélinni,“ segir Anita Erla.
Myndavélin var falin inni í loft-
ræstingu ofarlega á einum vegg og
beindist niður að sófanum á móti
sjónvarpinu.
Leit perralega út
Þau höfðu strax samband við bók-
unarvefinn booking.com sem ræddi
við eiganda íbúðarinnar. Sagði eig-
andinn í tölvupósti að tækið sem
þau höfðu fundið væri til þess
að mæla orkunotkun. Eigandinn
mætti svo í íbúðina daginn eftir og
harðneitaði að þetta væri myndavél.
„Þegar hann kom til okkar og við
töluðum við hann um þetta þá var
hann mjög stressaður, eins og það
væri búið að góma hann. Hann leit
líka perralega út,“ segir Anita. Eig-
andinn endurtók þær fullyrðingar
sínar að þetta væri tæki til að mæla
orkunotkun, en
þau Anita og Sævar
voru tilbúin og sýndu eigandanum
mynd af Google af myndavélinni
og orkumælinum. Ekki fór á milli
mála að tækið í loftræstingunni var
myndavél en eigandinn hélt áfram
að þræta fyrir það.
Anita og Sævar fengu aðra íbúð
í gengum booking.com og njóta
enn lífsins í Alicante. Anita hvet-
ur aðra sem taka íbúðir á leigu að
skoða sig vandlega um. „Fólk þarf
að passa sig,“ segir Anita.
Lítil myndavél í vinsælli íbúð
Íbúðin heitir Sunny Apartment á
vef Booking. Hún fær mjög góð-
ar umsagnir á bókunarvefnum og
er með einkunnina 8,1 af 10. Hún
er miðsvæðis í Alicante,
í 10 mínútna göngufæri
frá ströndinni og 500
metra göngufæri frá mark-
aðnum. Miðað við umsagn-
ir á vef þá er íbúðin vinsæl meðal
para, má þar finna umsagnir ferða-
manna frá Danmörku, Írlandi og
Ungverjalandi. Ekki liggur fyrir
hversu lengi myndavélin var í íbúð-
inni eða hvort eigandi íbúðarinnar
hafi náð fyrri gestum á mynd.
Myndavélin sem þau fundu
er af gerðinni D-Link, en þær eru
smáar. Framleiðandinn býður
upp á ýmsa möguleika, þar á
meðal hreyfiskynjara, gleiðlinsur
til að fylgjast með stærra svæði,
hljóðupptöku og myndupptöku í
háskerpu sem hægt er að streyma í
gegnum netið og horfa á í gegnum
tölvu eða snjallsíma. n
n Myndavél falin í loftræstingunni
n Hvetja fólk til að fara gætilega
Íbúðin Mynd innan úr íbúðinni,
myndavélin var falin inni í loftræstingu
ofarlega á veggnum. Mynd Booking.coM
NjósNað um ísleNskt
par í alicaNte
Falin myndavél
Myndavélar af
tegundinni D-Link
eru smáar í snið-
um, flestar eru
rúmlega 7 senti-
metrar á hæð og
5 sentimetrar á
breidd.
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is
lof & last
– Ögmundur Jónasson
Lof mitt gengur til Katrínar
Jakobsdóttur fyrir að
sækja fund um síðustu
helgi um fréttaflutning
af stríðinu í Sýrlandi þar
sem sett var fram gagnrýni á
það hvernig fjallað er um stríðið í
fréttaveitum Vesturlanda og þar
með okkar, og hve hagsmuna-
tengdur þessi fréttaflutningur er
NATO, Sádi-Arabíu og bandalags-
ríkjum þeirra. Forsætisráðherra
vildi heyra þessi sjónarmið, ekki til
að samþykkja en gaumgæfa.
Last mitt er til þeirra sem
túlka komu ráðherra á
fundinn sem ámælisverða
og þá fyrir það eitt að
mæta. Ráðherrann væri
þannig að leggja blessun yfir
það sem fram kom á fundinum!
Þetta eru þöggunartilburðir sem
ég hélt að við hefðum fengið nóg
af í Íraksinnrásinni og reyndar
öllum stríðum síðari tíma þar sem
lygarnar komu fram löngu eftir að
öll drápin og allar pyntingarnar og
hörmungarnar voru yfirstaðnar.
Fjölmiðlamenn, það er að segja
þeir sem tóku þátt í ómaklegri
gagnrýni á forsætisráðherra af
þessu tilefni, minntu okkur á hve
smáir þeir menn geta orðið sem þó
virðist talsverður vindur vera í.