Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Síða 8
8 16. mars 2018fréttir I celandic Street Food, nýr veitingastaður við Lækjargötu, er vinsælasti veitingastaður höfuðborgarinnar samkvæmt notendum Tripadvisor, sem flest- ir eru erlendir ferðamenn. Í öðru sæti er annar nýr veitingastaður, Nostra Restaurant við Laugaveg. Veitingamenn eru á einu máli um að gríðarlega mikilvægt sé að vera ofarlega á blaði á Tripadvisor því fjölmargir ferðamenn styðjast við vefsíðuna þegar þeir reyna að velja sér einn af tæplega 400 veitingastöðum borgarinnar til að heimsækja. Lausleg athugun bendir til þess að ferðamenn kunni best að meta góðan mat, fallegt umhverfi, nota- legt andrúmsloft, hlýlega þjón- ustu og hóflegt verð. Það eru byltingarkenndar niðurstöður. Athygli vekur að eini veitinga- staður landsins sem skartar Michelin-stjörnu, Dill, er aðeins í 81. sæti listans. Hefur blaðamaður orðið var við að mataráhuga- menn taki það sem dæmi um að Tripadvisor-listinn sé fullkomlega ómarktækur. Miðað við umsagn- ir á Tripadvisor virðist Dill vera fórnarlamb gríðarlegra væntinga gesta sem haldast ekki í hendur við endanlega upplifun og reikn- inginn. Þá er rétt að taka fram að list- inn getur breyst hratt en þessi grein miðast við hver staðan er að morgni 14. mars 2018. DV hefur tekið saman þennan lista á svip- uðum tíma ár hvert. Sjö veitinga- staðir voru einnig á listanum í fyrra en tveir nýliðar skutu hinum ref fyrir rass, eins og áður segir. Þó lifir lengi í gömlum glæðum og því verða eflaust margir ánægðir að sjá að Grillið á Hótel Sögu hefur flogið upp listann undanfarið ár og kemst inn á listann í 10. sæti. Veitingastaðurinn Restó hefur tví- vegis verið í efsta sæti listans, árið 2015 og 2017 en er nú fallinn nið- ur í sjöunda sæti. n 10 bestu veitingastaðirnir í Reykjavík n Nýliðarnir tróna á toppinum n Notendur Tripadvisor kveða upp sinn dóm 1 IcelaNdIc STReeT Food Veitingastaðurinn var opnaður á síðasta ári í litlu rými við Lækjargötu 8. Eigendur staðarins eru ekki að flækja málið með viðamiklum matseðli heldur halda sig við fáa og einfalda rétti en gera þá vel. Miðað við viðbrögð notenda Tripadvisor þá njóta súpur staðarins, sem eru bornar fram í brauðskálum, mestra vinsælda. Tvær tegundir eru iðulega í boði, kjöt- og sjávarréttarsúpa. Geta gestir meira að segja smakkað báðar gerðir af súpum ef út í það er farið og það þykir ferðamönnum frábært, ef marka má umsagnir. Ef umsagnir gesta við Icelandic Street Food eru skoðaðar þá sést að það er einkum fernt sem virðist falla í kramið. Það er hagstætt verðlag, frábærar súpur með ókeypis áfyllingu, skemmtilegt andrúmsloft og afar vinalegt starfsfólk staðarins. Miðaldra ensk hjúkr- unarkona (hún tekur það sérstaklega fram) skrifar hjartnæma umsögn um staðinn og segir að unga fólkið sem reki Icelandic Street Food sé að gera hlutina rétt og það sé henni mikið hjartans mál að koma því á framfæri. Þá er greinilegt að þjónustulund starfsmanna hefur slegið í gegn. Þannig segir einn gestur frá því að ferðafélagi hans sé græn- metisæta og hafi því fengið að koma með grænmetissúpu með sér af öðrum stað. Það hafi ekki verið neitt mál og eigandi staðarins hafi meira að segja komið með brauðskál undir súpuna honum að kostnaðarlausu. 4 MeSSINN Messinn var opnaður með pomp og prakt í júní 2016 og slógu fiskréttir staðarins umsvifalaust í gegn, jafnt hjá Íslendingum og erlendum ferðamönnum. Eigandi staðarins, Jón Mýrdal, sagði að markmiðið væri að fanga anda Tjöruhússins, hins rómaða veitingastaðar á Ísafirði. Það hefur tekist og gott betur. Messinn var í fjórða sæti listans í fyrra og heldur velli þrátt fyrir áhlaup nýliða. Þá var nýlega opnað annað útibú staðarins í glæsilegum sal við Grandagarð 8. Eins og gefur að skilja er það sjávarfangið sem heillar erlenda ferðamenn en einnig er oft minnst á skammtastærðirnar sem séu ríflegar og verðið sanngjarnt. Þá mæla fjölmargir með staðnum í hádeginu enda er verðið enn hagstæðara þá. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is 2 NoSTRa ReSTauRaNT Nostra Restaurant var opnað á síðari hluta ársins 2017 og er því enn ein viðbótin við glæsilega flóru íslenskra veitingastaða. Á Nostra er „áherslan lögð á íslenskt hráefni að skandinavískum sið í bland við það besta úr franskri matargerð“ svo vitnað sé beint í frétt veitingageirans.is af opnun staðarins. Mikið er lagt í útlits- hönnun veitingastaðarins sem er í nýuppgerðu rými á 2. hæð Kjörgarðs við Laugaveg. Miðað við umsagnir erlendra ferðamanna þá er greinilegt að Nostra er að gera eitthvað rétt, jafnvel hárrétt. Af umsögnum að dæma er þjónusta staðarins í „heimsklassa“ og mikil ánægja virðist ríkja með sex rétta matseðilinn sem margir virðast skella sér á. Þá minnast margir á kokteila staðarins sem eru framreiddir á sérstökum kokteilbar staðarins, sem ber heitið Artson. Sumir ferðalangar taka það fram að Nostra sé sérstaklega fínn staður og verðið sé eftir því en upplifunin sé hverrar krónu virði. 3 FoRRéTTabaRINN Undanfarin þrjú ár hefur Forréttbarinn ætíð átt sæti á topp 10 listanum en verið að lúra í 6.–8. sæti. Matreiðslumeistarinn og eigandi staðarins, Róbert Ólafsson, hefur greinilega verið að gera góða hluti því dómar erlendra ferðamanna eru lofsamlegir í meira lagi. Eins og nafnið gefur til kynna leggur Forréttabarinn áherslu á forrétti í tveimur stærðum en að auki er sérstakur matseðill afar vinsæll meðal gesta. Gestir halda vart vatni yfir matnum sem er í boði en einnig er ítrekað minnst á sanngjarnt verð. Þá virðist „Happy hour“ staðarins njóta mikilla vinsælda enda er sopinn dýr hér á landi. 5 oSTabúðIN Fyrir tæpum þremur árum var opnaður nýr og endurbættur veitingastaður Ostabúðarinnar auk þess sem staðurinn sótti loks um vínveitingaleyfi. Nánast umsvifalaust flaug staðurinn upp vinsældalista Tripadvisor og hefur síðan átt fast sæti á efri helmingi þessa árlega lista. Erlendir gestir mæla með Ostabúðinni í hádeginu og á kvöldin. Maturinn er lofaður í hástert og þá sérstaklega sjávarfangið. Þá þykir þjónustan góð og gestir minnast á afslappað og þægilegt andrúmsloft.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.