Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Qupperneq 8
8 16. mars 2018fréttir
I
celandic Street Food, nýr
veitingastaður við Lækjargötu,
er vinsælasti veitingastaður
höfuðborgarinnar samkvæmt
notendum Tripadvisor, sem flest-
ir eru erlendir ferðamenn. Í öðru
sæti er annar nýr veitingastaður,
Nostra Restaurant við Laugaveg.
Veitingamenn eru á einu máli
um að gríðarlega mikilvægt sé að
vera ofarlega á blaði á Tripadvisor
því fjölmargir ferðamenn styðjast
við vefsíðuna þegar þeir reyna
að velja sér einn af tæplega 400
veitingastöðum borgarinnar til að
heimsækja.
Lausleg athugun bendir til þess
að ferðamenn kunni best að meta
góðan mat, fallegt umhverfi, nota-
legt andrúmsloft, hlýlega þjón-
ustu og hóflegt verð. Það eru
byltingarkenndar niðurstöður.
Athygli vekur að eini veitinga-
staður landsins sem skartar
Michelin-stjörnu, Dill, er aðeins í
81. sæti listans. Hefur blaðamaður
orðið var við að mataráhuga-
menn taki það sem dæmi um að
Tripadvisor-listinn sé fullkomlega
ómarktækur. Miðað við umsagn-
ir á Tripadvisor virðist Dill vera
fórnarlamb gríðarlegra væntinga
gesta sem haldast ekki í hendur
við endanlega upplifun og reikn-
inginn.
Þá er rétt að taka fram að list-
inn getur breyst hratt en þessi
grein miðast við hver staðan er að
morgni 14. mars 2018. DV hefur
tekið saman þennan lista á svip-
uðum tíma ár hvert. Sjö veitinga-
staðir voru einnig á listanum í
fyrra en tveir nýliðar skutu hinum
ref fyrir rass, eins og áður segir. Þó
lifir lengi í gömlum glæðum og því
verða eflaust margir ánægðir að
sjá að Grillið á Hótel Sögu hefur
flogið upp listann undanfarið ár
og kemst inn á listann í 10. sæti.
Veitingastaðurinn Restó hefur tví-
vegis verið í efsta sæti listans, árið
2015 og 2017 en er nú fallinn nið-
ur í sjöunda sæti. n
10 bestu veitingastaðirnir í Reykjavík
n Nýliðarnir tróna á toppinum n Notendur Tripadvisor kveða upp sinn dóm
1 IcelaNdIc STReeT Food Veitingastaðurinn var opnaður á síðasta ári í litlu rými við Lækjargötu 8. Eigendur staðarins eru ekki að flækja málið með viðamiklum matseðli heldur halda sig við fáa og einfalda rétti en gera þá vel. Miðað
við viðbrögð notenda Tripadvisor þá njóta súpur staðarins, sem eru bornar fram í brauðskálum, mestra vinsælda. Tvær tegundir eru
iðulega í boði, kjöt- og sjávarréttarsúpa. Geta gestir meira að segja smakkað báðar gerðir af súpum ef út í það er farið og það þykir
ferðamönnum frábært, ef marka má umsagnir.
Ef umsagnir gesta við Icelandic Street Food eru skoðaðar þá sést að það er einkum fernt sem virðist falla í kramið. Það er hagstætt
verðlag, frábærar súpur með ókeypis áfyllingu, skemmtilegt andrúmsloft og afar vinalegt starfsfólk staðarins. Miðaldra ensk hjúkr-
unarkona (hún tekur það sérstaklega fram) skrifar hjartnæma umsögn um staðinn og segir að unga fólkið sem reki Icelandic Street
Food sé að gera hlutina rétt og það sé henni mikið hjartans mál að koma því á framfæri.
Þá er greinilegt að þjónustulund starfsmanna hefur slegið í gegn. Þannig segir einn gestur frá því að ferðafélagi hans sé græn-
metisæta og hafi því fengið að koma með grænmetissúpu með sér af öðrum stað. Það hafi ekki verið neitt mál og eigandi staðarins hafi
meira að segja komið með brauðskál undir súpuna honum að kostnaðarlausu.
4 MeSSINN Messinn var opnaður með pomp og prakt í júní 2016 og slógu fiskréttir staðarins umsvifalaust í gegn, jafnt hjá Íslendingum og erlendum
ferðamönnum. Eigandi staðarins, Jón Mýrdal, sagði að markmiðið væri að fanga anda
Tjöruhússins, hins rómaða veitingastaðar á Ísafirði. Það hefur tekist og gott betur.
Messinn var í fjórða sæti listans í fyrra og heldur velli þrátt fyrir áhlaup nýliða. Þá var
nýlega opnað annað útibú staðarins í glæsilegum sal við Grandagarð 8.
Eins og gefur að skilja er það sjávarfangið sem heillar erlenda ferðamenn en einnig
er oft minnst á skammtastærðirnar sem séu ríflegar og verðið sanngjarnt. Þá mæla
fjölmargir með staðnum í hádeginu enda er verðið enn hagstæðara þá.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
2 NoSTRa ReSTauRaNT Nostra Restaurant var opnað á síðari hluta ársins 2017 og er því enn ein viðbótin við glæsilega flóru íslenskra veitingastaða. Á Nostra
er „áherslan lögð á íslenskt hráefni að skandinavískum sið í bland við það besta úr franskri
matargerð“ svo vitnað sé beint í frétt veitingageirans.is af opnun staðarins. Mikið er lagt í útlits-
hönnun veitingastaðarins sem er í nýuppgerðu rými á 2. hæð Kjörgarðs við Laugaveg.
Miðað við umsagnir erlendra ferðamanna þá er greinilegt að Nostra er að gera eitthvað
rétt, jafnvel hárrétt. Af umsögnum að dæma er þjónusta staðarins í „heimsklassa“ og mikil
ánægja virðist ríkja með sex rétta matseðilinn sem margir virðast skella sér á. Þá minnast
margir á kokteila staðarins sem eru framreiddir á sérstökum kokteilbar staðarins, sem ber
heitið Artson. Sumir ferðalangar taka það fram að Nostra sé sérstaklega fínn staður og
verðið sé eftir því en upplifunin sé hverrar krónu virði.
3 FoRRéTTabaRINN Undanfarin þrjú ár hefur
Forréttbarinn ætíð átt sæti á topp
10 listanum en verið að lúra í 6.–8.
sæti. Matreiðslumeistarinn og eigandi
staðarins, Róbert Ólafsson, hefur
greinilega verið að gera góða hluti
því dómar erlendra ferðamanna eru
lofsamlegir í meira lagi. Eins og nafnið
gefur til kynna leggur Forréttabarinn
áherslu á forrétti í tveimur stærðum
en að auki er sérstakur matseðill afar
vinsæll meðal gesta. Gestir halda vart
vatni yfir matnum sem er í boði en
einnig er ítrekað minnst á sanngjarnt
verð. Þá virðist „Happy hour“ staðarins
njóta mikilla vinsælda enda er sopinn
dýr hér á landi.
5 oSTabúðIN Fyrir tæpum þremur árum var opnaður nýr og endurbættur veitingastaður Ostabúðarinnar auk þess sem staðurinn sótti loks um vínveitingaleyfi. Nánast umsvifalaust flaug staðurinn upp vinsældalista Tripadvisor og hefur síðan átt fast
sæti á efri helmingi þessa árlega lista. Erlendir gestir mæla með Ostabúðinni í hádeginu og á kvöldin. Maturinn er lofaður í hástert og þá
sérstaklega sjávarfangið. Þá þykir þjónustan góð og gestir minnast á afslappað og þægilegt andrúmsloft.