Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Page 28
28 fólk - viðtal 16. mars 2018 É g er bara lífsglaður maður, einu sinni var það vegna þess að það var föstudagur en það er ekki þannig lengur,“ seg­ ir Kolbeinn kátur þegar hann sest niður með blaðamanni í færeyska herberginu í Alþingishúsinu á sól­ ríkum föstudegi. „Í grunninn er ég hress, en eftir að ég villist af leið í lífinu þá urðu morgnarnir þyngri, en eftir að ég hætti að drekka og tók til í mínu lífi hef ég aftur fund­ ið þessa lífsgleði, að vakna og hlakka til dagsins. Það eru allir dagar þannig.“ Ef við byrjum á byrjuninni, hvaðan ert þú? „Ég tala um að ég sé frá miðhálendinu. Ætli ég hafi ekki verið í fimm grunnskólum, við fluttum svo títt. Það var einhver ævintýramennska og víðsýni í foreldrum mínum. Ég fæddist í Reykjavík, þegar ég var tveggja ára fluttum við norður á Dalvík. Þar var ég næstu sex árin, þá fluttum við í Hafnarfjörð. Tveimur árum síðar var pabbi ráðinn bæjar­ stjóri á Siglufirði, þar bjuggum við í eitt kjörtímabil, fjögur ár. Húsið okkar í Hafnarfirði brann á meðan við bjuggum fyrir norðan þannig að við fluttum á endanum í Kópavog. Þetta er kannski ekki miðhálendið, ég er frá Norður­ landi og höfuðborgarsvæðinu. Þetta er Tvídægra,“ segir Kol­ beinn og hlær. „Ég lít á mig sem Norðlending, en það togast á við Suðurland því móðurættin er frá Þjórsárdal og þar var ég á sumrin.“ Datt fyrst í það 11 ára Aðstæður leiddu til þess að Kol­ beinn byrjaði ári á undan í grunn­ skóla, Kolbeinn á afmæli í des­ ember og því var hann aðeins fjögurra ára í fyrsta bekk. „Pabbi var húsvörður og kennari í skól­ anum á Dalvík, við bjuggum á heimavistinni þar sem var verið að kenna yngsta bekknum. Ég hékk alltaf fyrir utan og á end­ anum var mér hleypt inn. Ég var í bekk með krökkum sem voru sum hver nánast tveimur árum eldri en ég, sem betur fer þroskað­ ist ég mjög snemma.“ Þar af leið­ andi byrjaði Kolbeinn snemma að vinna. „Ég var 12 ára byrjaður að vinna á sumrin í frystihúsinu og var tekjuhærri en mamma.“ Þegar Kolbeinn flutti suður var stóra bróður hans boðið pláss á skipi, bróðir hans komst ekki og bauð Kolbein fram í staðinn. „Þá var ég 17 ára. Ég var nokkur sumur á sjónum.“ Var það í frystihúsinu á Siglu- firði sem þú tókst fyrsta sopann? „Nei, það var líklegast þegar við krakkarnir stálum brennivíni af Siglufjarðarleið. Stemningin þarna fyrir norðan var á þá leið að okkur lá mjög á að verða full­ orðin. Það átti við um vinnuna og að detta í það. Við héldum partí eftir skólann, drukkum, dönsuð­ um og tókum til áður en foreldr­ ar okkar komu heim. Ég held að ég hafi verið 11 ára þegar ég datt fyrst í það.“ Kolbeinn var því orðinn nokk­ uð veraldarvanur þegar hann flyt­ ur suður, 14 ára gamall. „Það voru einhverjir byrjaðir að drekka og aðrir að prófa. Þá var ég búinn að vera á fylleríum í nokkur ár og drykkja orðin eðlilegur hluti af líf­ inu.“ Endaði á geðdeild vegna drykkju Hvenær var drykkjan orðin að vandamáli? „Ég veit það hreinlega ekki, auðvitað er það vandamál að svona ungt barn sé á fylleríi. Þegar ég var kominn í menntó þá voru allir á fylleríi um helgar, ekki allar helgar. Maður drakk mikið og var Kolbeinn Óttarsson Proppé bað um að vera lýstur gjaldþrota eftir að hafa safnað skuldum í áratugi. Í dag er hann búinn að vera edrú í fjögur ár og hefur setið á þingi fyrir Vinstri græn í rúmt ár. Í haust klárar hann að borga af öllum skuldunum. Í viðtali við DV lýsir hann því hvernig hann kom sér í þessa stöðu, edrúmennskuna og hvernig það er að vera kallaður landráðamaður og svikari. Þakklátur að geta borgað allar skuldirnar Ari Brynjólfsson ari@dv.is „Það voru einhverjir byrjaðir að drekka og aðrir að prófa. Þá var ég búinn að vera á fyllerí- um í nokkur ár og drykkja orðin eðlilegur hluti af líf- inu. Nýtt líf Kolbeinn gekk inn á Vog fyrir fjórum árum og tók til í sínu lífi. Hann segir að það sé ekki hægt að kalla það lífstíls- breytingu heldur nýtt líf. MyNDir Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.