Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Page 64

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2018, Page 64
64 16. mars 2018 S umu fólki virðast þau örlög búin að taka út áföll og áskoranir heillar mannsævi á nokkrum árum. Rannveig Grétarsdóttir er ein þeirra en aðeins 32 ára stóð hún uppi sem ekkja, einstæð móðir tveggja dætra og eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækis sem í dag er meðal þeirra öflugustu á landinu. Þótt Rannveig hafi alist upp í Hafnarfirði titlar hún sig ekki sem Gaflara enda fædd í Reykjavík, nánar tiltekið í byrjun desember árið 1967. Hún sleit barnsskónum í Norðurbænum hjá foreldrum sín­ um, þeim Björgu Kristjánsdóttur og Grétari Sveinssyni, og tveimur systkinum, þeim Sveini Ómari og Þórunni. Rannveig var miðjubarn en Sveinn er sex árum yngri og Þórunn tveimur árum eldri. Syst­ kinin þrjú voru ekki há í loftinu þegar þau byrjuðu að vinna í fjöl­ skyldufyrirtækinu en faðir þeirra rak Steypustál, verktakafyrirtæki sem sá aðallega um hitaveitu og símalagnir fyrir ríki og borg. „Mínar minningar frá ung­ lingsárum eru meðal annars frá því að borða hádegismatinn með körlunum á Smiðjukaffi og fara svo að moka skurði og mæla út, hreinsa hitaveitubrunna og leggja leiðslur,“ segir Rannveig og hlær en aðeins sextán ára var hún líka komin í skrifstofuvinnu hjá föður sínum og tók þá að sér að reikna út launin. Lét ekki bjóða sér kynbundna mismunun Eins og við er að búast var Rann­ veig eina stelpan sem vann þessi verkamannastörf hjá fyrirtækinu. Hún segist lítið hafa fundið fyrir fordómum frá strákunum en þá sjaldan að einhver leiðindi komu upp lét hún ekki bjóða sér þau. „Ef ég fann að þeir voru eitthvað dónalegir við mig, einungis af því ég var stelpa, þá lagði ég inn form­ lega kvörtun, alveg öskureið. Ég lét engan komast upp með að sýna mér einhverja vanvirðingu bara af því ég var stelpa enda vann ég sömu störf og strákarnir,“ segir Rannveig. Í uppeldi hennar var mikil áhersla lögð á að vinnusemi væri dyggð og helst átti fólk að vinna mikið. Grétar, faðir Rannveigar, var sjálfur einbirni en móðir hans var það foreldri sem dró björg í bú. „Okkur þótti alltaf eðlilegt að ganga í hvaða störf sem var og „aldrei valkoStur að brotna Saman“ Sumu fólki virðast þau örlög búin að taka út áföll og áskoranir heillar mannsævi á nokkrum árum. rannveig Grétarsdóttir er ein þeirra en aðeins 32 ára stóð hún uppi sem ekkja, einstæð móðir tveggja dætra og eigandi og framkvæmdastjóri eldingar, fyrirtækis sem í dag er meðal þeirra öflugustu á landinu. margrét H. Gústavsdóttir margret@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.