Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Page 4
4 23. mars 2018fréttir
BuBBi
falinn
„Ef illskan í þér verður vak-
in mun rótakerfi hjartans
fúna,“ sagði Bubbi Morthens
í Twitter-færslu rétt áður en
DV fór í prentun. Það voru
mikilvæg skilaboð til full-
trúa fjórða valdsins. Eins og
í undanförnum blöðum er
andlit Bubba vandlega falið
á síðum blaðsins. Í síðasta
blaði leyndist hann meðal
landsliðsmanna á bls. 46.
Allmörg svör bárust þar sem
lesendur töldu að Bubbi væri
iðnaðarmaður á öðrum stað í
blaðinu eða glæpamaðurinn
Manny Pardo yngri á saka-
málasíðu blaðsins. Dregið var
úr réttum lausnum og hlaut
Rannveig Möller verðlaun-
in sem eru gjafabréf á valinn
veitingastað. DV óskar Rann-
veigu til hamingju en hvetur
einnig lesendur til að leita að
Bubba í þessu blaði. Lesend-
ur geta sent réttar lausn-
ir á netfangið
bubbi@dv.is
Finndu
Bubba í
blaðinu
n Simpson-fjölskyldan lítur dagsins
ljós í þætti Tracey Ullman. Þetta er þó
tveimur árum áður en þættirnir hefja
formlega göngu sína hjá Fox og sama
ár og jarðarbúar verða fimm milljarðar.
n Margaret Thatcher byrjar sitt þriðja
kjörtímabil sem forsætisráðherra
Bretlands.
n Lethal Weapon og Wall Street eru í
hópi vinsælustu kvikmynda ársins.
n Tekin er ákvörðun á haustmánuðum
um að byggja nýtt ráðhús í Reykjavík.
n Pétur Ormslev er valinn besti leik-
maður 1. deildar karla í knattspyrnu
en Rúnar Kristinsson er valinn sá
efnilegasti.
Hvaða ár?
Svar: 1987
f
jóla Kim Björnsdóttir og fjöl-
skylda voru að njóta lífsins í
sumarbústað í síðustu viku.
Kambur, hundurinn þeirra,
var með í för og fékk hann að ganga
laus í kringum lóðina stutta stund
sem átti eftir að verða fjölskyldunni
dýrkeypt og skelfileg reynsla.
„Fimmtudagurinn í síðustu
viku er síðasti dagurinn sem hann
var líkur sjálfum sér. Á föstudags-
morgni vildi hann ekki morgun-
matinn sinn sem er mjög óvenju-
legt. Síðan byrjaði hann að kasta
upp,“ segir Fjóla í viðtali við DV.
Eftirlitslaus í örskamma stund
Kambur var virkilega geðgóður og
hlýðinn hundur sem fékk reglu-
lega að ganga laus með eigendum
sínum.
„Hann var eftirlitslaus í kannski
tíu til fimmtán mínútur þarna
á miðvikudagskvöldinu. Seint á
föstudeginum gat ég fengið hann
til að borða örlítið nammi, en
annars borðaði hann ekkert þang-
að til hann dó. Við fórum með
hann á laugardagsmorgni til lækn-
is sem var óviss hvort þetta væri út
af eitri sem hann hefði komist í
eða vegna magapestar.“
Kambur fékk sýklalyf og
vítamín hjá dýralækninum og var
að auki settur í blóðprufu þar sem
í ljós kom að nýrun voru ekki góð
og því nokkuð ljóst að um eitrun
væri að ræða.
„Okkur var bent á að reyna að
fá hann til þess að drekka vatn og
soð en allt sem við gátum komið
ofan í hann kom aftur upp úr hon-
um. Eftir kvöldmat á laugardegin-
um kastaði hann upp þrisvar sinn-
um. Við höfðum miklar áhyggjur
af honum og ákváðum að kalla út
lækni. Hann fékk lítra af vökva í æð
þá nótt og við fengum annan lítra
með okkur heim. Hann var svo
veikburða að það var ekkert mál
fyrir okkur að tengja sjálf vökva í
æðalegginn.“
Kambur svaf í gegnum allan
sunnudaginn og gerði ekkert annað.
Líffærin gáfu sig fljótt
„Á mánudagsmorguninn fórum við
með hann aftur upp á spítala þar
sem hann fór í röntgen, blóðprufu
og fékk aftur sýklalyf og vökva.
Sprautað var blautmat með
skuggaefni upp í hann til þess
að sjá hvernig maturinn færi
um meltingarveginn. Þá kom
í ljós að hann stoppaði við
þarmana og grunaði lækninn
að einhver aðskotahlutur gæti
verið fastur. Hann ákvað að
skera hann upp og athuga.“
Í aðgerðinni kom í ljós að
þarmar Kambs voru lamaðir
og skrítnir á litinn vegna eitr-
unar.
„Þeim á spítalanum leist
ekkert á hann og mæltu með því
að við færum á neyðarvakt hjá
dýralækni á meðan hann jafnaði
sig eftir aðgerðina. Rétt fyrir mið-
nætti fékk hann að koma heim og
var hann orðinn verulega veik-
burða. Strax á þriðjudagsmorgni
fórum við aftur með hann upp
á spítala þar sem hann fékk enn
eina ferðina vökva og sýklalyf og
var settur í röntgen og blóðprufu
aftur.“
Í þetta skipti kom blóðprufan
mjög illa út og greinilegt var að
fleiri líffæri voru farin að gefa sig.
„Við fengum verkjalyf frá spítal-
anum til þess að taka með okkur
heim en á þessum tímapunkti
var orðið nokkuð ljóst að hann
myndi ekki ná sér. Við ákváðum
að hafa opið hús fyrir vini og ætt-
ingja til þess að gefa þeim tæki-
færi til að kveðja Kamb. Hann var
einstaklega vel liðinn og vinsæll
hjá öllum í kringum okkur. Þetta
var erfitt en fallegt kvöld, við vorum
nokkuð ákveðin í að fara með hann
á miðvikudagsmorguninn og leyfa
honum að sofna endanlega.“
Um nóttina fór Kambur að
væla mikið og dugðu verkjalyfin
skammt.
Dó á leiðinni á spítalann
„Við hringdum í neyðarvaktina og
fengum ráð. Ég fékk leyfi til þess
að gefa honum öll þau verkjalyf
sem ég átti og ætluð voru dýrum.
Morguninn eftir vorum við mætt
fyrir utan spítalann áður en hann
var opnaður og okkur var hleypt
fljótt inn og þar gat Kambur feng-
ið róandi. Hann fór aftur í röntgen
og blóðprufu svo við gætum verið
alveg viss um stöðuna áður en við
létum svæfa hann. Þá kom hann
skyndilega vel út úr öllum próf-
um og ákveðið var að gefa honum
daginn. Hann fékk vökva, sýklalyf
og mat með sondu.“
Um hádegið sama dag var
Kambur hins vegar orðin uppgef-
inn og fór að kasta öllu upp aftur.
„Ég talaði við dýralækninn í
síma og við ákváðum að ég kæmi
með hann, kveddi hann og leyfði
honum að sofna. Á því korteri sem
tók mig að komast á spítalann dó
hann. Einkenni og blóðprufur
sýndu alltaf merki um eitrun en
ekki er hægt að segja til um hvað-
an eða hvernig eitrið er. Við teljum
líklegast að hann hafi kom-
ist í eitur í umhverfinu í
kringum sumarbústað-
inn. Maður veit ekki neitt
og gerir ekki ráð fyrir ein-
hverju svona alvarlegu.“
Líklegasta orsök eitrun-
ar Kambs er músaeitur eða
baktería frá hræi.
„Ef það var hræ á svæð-
inu þá gæti til dæmis hafa
verið baktería í því en við vit-
um ekkert um það. Kamb-
ur var einstaklega geðgóður
hundur, hann fór með mér í
vinnuna í mörg ár en ég hef
starfað á sambýli fyrir fjölfatl-
aða. Ég ætla ekkert að skafa
utan af því að þetta hefur verið
skelfilegur tími. Við fórum á Dýra-
læknamiðstöðina í Grafarholti í öll
skiptin nema þegar við þurftum að
leita á neyðarvaktina og við feng-
um toppþjónustu frá starfsfólkinu.
Þau gáfust aldrei upp, ekki einu
sinni þegar við gerðum það. Kamb-
ur var algjör mömmustrákur og
treysti mér ótrúlega vel, hans verð-
ur sárt saknað.“
Fjóla og fjölskylda hennar vildu
greina frá sögu Kambs til að vara
annað fólk við þeim hættum sem
geta leynst í umhverfinu. n
Eitrun varð Kambi að bana
„Hann var eftirlitslaus í kannski tíu til fimmtán mínútur“
aníta Estíva Harðardóttir
anita@pressan.is
M
y
n
D
ir
E
y
D
íS
E
yj
ó
Lf
SD
ó
t
ti
r
R
eimar Pétursson lögmað-
ur hefur fyrir hönd skjól-
stæðings síns, Matthíasar
H. Johannessen, farið fram
á fjárnám hjá Róbert Wessman, til
tryggingar skuldar upp á tæplega
1,4 milljarða. Þetta herma áreið-
anlegar heimildir DV. Skuldin er
tilkomin vegna dóms Hæstarétt-
ar sem féll um miðjan febrúar þar
sem Róbert og viðskiptafélagar
hans, Árni Harðarson og Magnús
Jaroslav Magnsson, voru dæmdir
til að greiða Matthíasi 640 milljón-
ir króna fyrir að hlunnfara hann í
viðskiptum. Að auki reiknast upp-
hæðin með vöxtum frá júlí 2010
og dráttarvöxum frá árinu 2011.
Skuldin stendur því í tæpum 1,4
milljörðum króna í dag og er enn
ógreidd.
Dómurinn féll 15. febrúar síð-
astliðinn í Hæstarétti en með
honum var staðfestur dómur
Héraðs dóms Reykjavíkur um
að þremenningarnir hefðu bak-
að sér skaðabótaskyldu gagnvart
Matthíasi. Matthías fór fram á 3,1
milljarð í bætur en gerði til vara
kröfu um áðurnefndar 640 millj-
ónir. Hæstiréttur féllst á síðari kröf-
una.
Málið snerist um kaup fjór-
menninganna á félagi sem síðar
fékk nafnið Aztiq Pharma Partners
ehf. Átti félagið, í gegnum dóttur-
félög sín, 30% hlut í lyfjafyrirtæk-
inu Alovogen. Átti Róbert 94% í fé-
laginu en hinir mennirnir 2% hver.
Síðar eignaðist Árni hlut Róberts
en Matthías taldi sig eiga forkaups-
rétt á þriðjungi hlutabréfa Róberts.
Matthías taldi að þremenn-
ingarnir hefðu brotið á honum
og komið í veg fyrir að hann nyti
ágóðans af kaupunum í Alvogen.
Þeir báru á móti að hann hefði
ráðið sig til keppinautarins Actav-
is og neitað að undirrita trúnaðar-
yfirlýsingu. Löglega hefði verið
staðið að ákvörðunum stjórnar.
Hæstiréttur var á öðru máli
og taldi einsýnt að stjórn Aztiq
Pharma Partners hefði tekið hag-
muni einstaks eða jafnvel einstakra
hluthafa fram yfir hagsmuni félags-
ins og þar með fram yfir hagsmuni
annarra hluthafa. Sagði í dóms-
orði að stjórnarmenn ættu að setja
hagsmuni félagsins í öndvegi þegar
hætta væri á slíkum árekstrum en
það hefðu þeir ekki gert í þetta sinn.
Þess vegna hefðu þremenningarnir
skapað sér skaðabótaskyldu gagn-
vart Matthíasi.
Rúmum mánuði síðar eru skaða-
bæturnar enn ógreiddar og því hef-
ur verið farið fram á áður nefnt fjár-
nám til tryggingar skuldinni. Fyrst
hjá Róbert en því næst hjá Árna
Harðarsyni og að lokum Magnúsi.
DV hafði samband við lögmann
Matthíasar, Reimar Pétursson, en
hann kvaðst ekki tjá sig við fjöl-
miðla um mál sem hann ynni að.
Í skriflegu svari til DV sagðist Árni
ekki hafa neinar upplýsingar um
að beiðni um fjárnám væri komin
fram. Sagði hann þremenningana
vera í ágætum samskiptum við lög-
mann kröfuhafa og að uppgjörið
færi fram næstu dögum. n
bjornth@dv.is
1,4 milljarða skaðabætur ógreiddar
Krefst fjárnáms hjá róbert Wessman