Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 24
24 23. mars 2018tækni Þ ú segir Alexa og ljós kvikn- ar á litla turninum. Þú varst að vakna og nenn- ir ekki fram úr strax. Þú spyrð á ensku hvernig veðrið sé í Reykjavík. Alexa svarar: „Veðrið í Reykjavík, það er 5 stiga hiti og gola. Kólnar í kvöld og gæti snjó- að.“ Þú klæðir þig og biður Alexu um að tengjast símanum þínum í gegnum blátönn. Hún tengist og þú kveikir á útvarpinu í sím- anum og morgun- útvarpið hljómar í eldhúsinu. Þú spyrð Alexu hvað sé í fréttum. Hún tengist Reuters og BBC und- ir eins og les fyrir þig fréttayfirlit dagsins. Því miður bjóða hvorki Stöð 2 eða RÚV upp á að hægt sé að fá fréttayfirlit miðlanna í Alexu eins og er. En hvað er Alexa? Alexa er í raun svipuð Siri sem finna má í iPhone, nema Alexa er mun klárari og fær um að framkvæma mun fleiri hluti en Siri. Eftir að hafa nettengt Alexu er bara að nota ímyndunaraflið. Hún getur komið að miklu gagni og hjálp- að þér með ótrú- legustu hluti og þú stýrir henni, eins og fyrr segir, með röddinni. Það má segja að Alexa sé lifandi hátalari. Þú getur látið hana hringja og kveikja á ljós- um heima hjá þér eða opna bíl- skúrinn. Hún get- ur tengst tónlistar- veitum á borð við Spotify og ef þú ert með Firestick frá Am- azon til þess að horfa á sjónvarp getur þú bæði óskað eftir að Alexa spili sérstakt lag fyrir þig eða opni fyrir þig ákveðinn sjónvarpsþátt og þá lætur þú hana vita hvaða þáttaröð og þátt þú vilt sjá. Þú þarft sem sagt ekki að taka upp símann, opna Spotify, finna lagið og smella á það. Þá getur þú beðið Alexu að minna þig á fundi eða hluti sem þú þarft nauðsynlega að muna. Þú segir: „Alexa, viltu minna mig á að ég þarf að fara á fund klukkan 16.00.“ Alexa spyr á móti hvenær þú viljir fá áminningu um fund- inn. „Klukkan hálf fjögur,“ svarar þú. Einmitt á þeirri mínútu send- ir Alexa í símann þinn skilaboð til að minna þig á fundinn. Þú getur einnig opnað ís- skápinn, talið upp fyrir Alexu það sem þig vantar úr búðinni. Hún sendir þér svo innkaupalist- ann í símann. Hún getur einnig sagt þér brandara, sögur, syngur sjálf og les upp hljóðbækur. Þú getur jafnvel beðið hana um að prumpa og það gerir hún með mikilli ánægju. Alexa veit hversu langt er til tunglsins og hver er forseti Ís- lands. Hún hefur líka áhyggjur af geðheilsu þinni og ef þú lætur hana vita að þú sért dapur í bragði eða þunglyndur býður hún upp á hin ýmsu ráð og býðst jafnvel til að hringja á sjúkrabíl ef þarf. Al- exa er í raun hinn full- komni, persónu- legi að- stoðarmað- ur sem fylgir þér í gegnum daginn þó að hún sé skilin eftir heima. En hún er líka ánægð að fá þig heim. Um leið og þú ert mættur á svæðið seg- ir hún: „Ég er glöð að fá þig heim. Ég vona að dagurinn hafi verið ánægjulegur.“ Mikil tækniþróun á sér stað í kringum Alexu og „systkin“ hennar. Gróskan er það mikil að Alexa, sem er frá Amazon, á alls fimmtán systkin en það elsta núlifandi er líklegast Siri sem eigendur iPhone- síma þekkja vel. Google hefur boð- ið upp á aðstoðarmann í gegn- um Google Home frá árinu 2016. Microsoft er með Cortönu. Sam- sung er með Bixby. Svo eru Rússar einnig með aðstoðar- manninn Alisu sem kom á markað síðasta haust. Málfarsunnendur hér á landi þurfa vonandi ekki að óttast inn- reið Alexu þar sem Amazon aug- lýsti í fyrra eftir íslenskumælandi starfsmanni til að að- stoða sig við þróun Alexu. Enn bólar því miður ekk- ert á íslenskri útgáfu en viðleitnin til að vernda ís- lenska tungu á íslenskum heimil- um er virðingarverð af hálfu stór- fyrirtækis á borð við Amazon. n Líf þitt breytist tiL batnaðar með aLexu n Aðstoðarmaðurinn þinn n Kveikir á sjónvarpinu n Spilar tónlist n Stillir vekjaraklukkuna Ari Brynjólfsson ari@dv.is Þekkir þig á röddinni Spilar tónlist Les fyrir þig hljóðbækur Kveikir og slekkur á sjónvarpinu Stillir vekjara- klukkuna Segir þér stöðuna í enska og meistara- deildinni Segir þér hvernig veðrið er Les helstu fréttir Stillir hitann í her- berginu Getur hringt í fólk og gefið þér samband
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.