Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 14
14 23. mars 2018fréttir Í slensk börn munu komast snemma í kynni við klám. Það er úti um allt á netinu og sam- félagsmiðlum og það er óhjá- kvæmilegt enda eru krakkar sem eru nálgast kynþroskaaldurinn forvitnir. Við höfum mætt þessum raunveruleika með þögninni, eins og alltaf í tengslum við óþægileg mál, en það verður að breytast,“ segir Stefan Octavian Ghorghe, sem er eini Íslendingurinn, að minnsta kosti opinberlega, sem starfar við framleiðslu á klámi. Tilefnið er opinn fundur í Ráð- húsi Reykjavíkur í vikunni sem fjallaði um #metoo-byltinguna. Þar vakti erindi Kolbrúnar Hrund- ar Sigurgeirsdóttur mikla athygli en í því kom fram að íslenskir drengir eigi Norðurlandamet í klámáhorfi. „Meðalaldur drengja þegar þeir byrja að horfa á klám er rúm 11 ár og þá erum við að tala um meðalaldur,“ sagði Kolbrún Hrund. Margir drengir væru því talsvert undir þeim aldri. Sagði hún að í heimsóknum sínum í grunn- og menntaskóla þá klöpp- uðu piltar oft þegar bent væri á þessa staðreynd. „Þeim finnst þetta geggjað töff,“ sagði Kolbrún Hrund. Erindi hennar snerist ekki síst um að stór hluti klámefnis, allt að 89% samkvæmt nýlegum rannsóknum, innihéldi ofbeldi gegn konum og að afleiðingarnar væru þær að drengir væru margir hverjir með brenglað viðhorf til kynlífs. Vill miðla af reynslu sinni „Eina lausnin að mínu mati er sú að byrja snemma að fræða börn og unglinga um að klám sé ekki raunverulegt, ekki frekar en hasarmyndir í Hollywood. Að þetta sé leikið efni og raun- veruleikinn sé allt annar. Ef klám er það eina sem er í boði til þess að svala forvitni krakka um kyn- líf þá að sjálfsögðu brenglast viðhorf þeirra til þess,“ segir Stef- an og kveðst vilja leggja hönd á plóg. „Ég myndi gjarnan vilja fara í skólana og miðla af minni reynslu um hvað sé klám og sér- staklega hvað sé ekki klám,“ seg- ir Stefan. Bendir hann á að fram- leiðsla á efni þar sem einhver sé neyddur til að gera eitthvað sem hann vilji ekki eigi ekkert skylt við klám. „Það er ekkert annað en of- beldi sem á að kæra til lögreglu,“ segir Stefan. Stefan er gríðarlega vinsæll á samfélagsmiðlinum Snapchat og hann segir að það sé hans upp- lifun að mikil þörf sé á fræðslu um klám og kynlíf en ekki síður hvernig umgangast eigi samfé- lagsmiðla. „Ég er með um þrjátíu þúsund fylgjendur og það rignir yfir mig fyrirspurnum. Bæði um klámiðnaðinn en líka um kynlífs- ráð og annað. Það var til dæm- is miðaldra kona frá Akranesi að spyrja mig nýlega um hvort ein- hver tiltekin kynlífsathöfn væri eðlileg,“ segir Stefan kíminn. Þá segir hann afar mikilvægt að kenna börnum að umgangast samfélagsmiðla. „Það er pressa á unga krakka að senda myndir eða myndskeið af líkama sínum. Það verður að leggja gríðarlega áherslu á að fræða krakka um að dreifing slíks efnis sé ofbeldi sem aldrei á að eiga sér stað,“ segir Stefan af þunga. Ástæða fyrir vinsældum kláms Það vakti mikla athygli þegar hann steig fram og opinberaði leik sinn í klámmyndum enda hefur klám alla tíð verið mik- ið feimnismál. „Því verður að linna. Það er ástæða fyrir því að klám er svona gríðarlega vinsælt. Það eru ótrúlega margir að skoða þetta efni þó að þeir viðurkenni það ekki. Við þurfum að ræða þetta opinskátt og sérstaklega við börnin okkar,“ segir Stefan. Að hans sögn er ekki síð- ur mikilvægt að ræða við stelp- ur en stráka um klám og kynlíf. „Strákarnir mæta oft til leiks með enga fræðslu aðra en þá sem þeir hafa séð úr klámmyndunum. Það sama gildir um stelpurnar. Umræðan þarf því að vera op- inská en það þarf ekki síður að leggja áherslu á að ungir krakkar setji skýr mörk um hvað þeir vilji gera í kynlífi og hvað þeim þyki spennandi. Lausnin er alltaf sú að tala saman,“ segir Stefan. Stefan hóf að leika í klám- myndum í ágúst í fyrra en síðan hafa hlutirnir þróast hratt. Auk klámmyndaleiksins felst vinna hans aðallega í því að leita að nýjum leikurum og er hann því á ferð og flugi um heiminn. „Ég er staddur á Íslandi núna í þrjár vikur en síðan fer ég aftur út að vinna. Á meðan ég er staddur hérna heima þá vil ég gjarnan taka þessa umræðu sem víðast,“ segir Stefan. n Stefan vill fræða börn um klám Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „Það er ástæða fyrir því að klám er svona gríðar- lega vinsælt n Stefan vill miðla af reynslu sinni n Klám endurspeglar ekki raunveruleikann Klámmyndaleikari Vill fara í skólana og fræða börn um klám.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.