Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 40
Íslensk hönnun 23. mars 2018KYNNINGARBLAÐ Lífrænt vottaðar húðsnyrtivörur úr hreinni íslenskri náttúru Sóley OrganicS: Sóley Organics framleiðir náttúru legar og lífrænar vörur, án allra skaðlegra efna,“ segir Vala Steinsdóttir, framkvæmdastjóri Sóley Organics, en eitt af stóru markmiðum fyrirtækisins er að vera nokkurs konar mótvægi við þá meng­ un sem neyslusamfélag hefur í för með sér og vonandi veita fólki hugarró með fallegri hágæðavöru sem er aðeins búin til úr bestu mögulegu hráefnum. „Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á áfyllingu á flestöllum vörum í búðinni okkar í Bæjarhrauni, einnig bjóða Heilsuhúsin upp á áfyllingu á sápum og sjampói. Það er að færast í aukana sem leið fyrir neytendur til að leggja sitt af mörkum til náttúr­ unnar og gerir okkur kleift að lækka verð vörunnar þar sem hún er seld án umbúða,“ segir Vala. Hótel víða um land nýta sér þann kost og er það liður í þeirra starfi að uppfylla staðla sem umhverfisvænt fyrirtæki auk þess sem það lætur gestum líða eins og þeir séu að sveipa um sig íslenskri náttúru. Konan að baki Sóley Organics er Sóley elíasdóttir, en hún starfaði áður sem farsæl leikkona til fjölda ára. Sóley á ekki langt að sækja áhugann og þekkinguna á íslenskum lækninga­ jurtum, því að baki henni standa margir ættliðir grasalækna og nokkrir þeirra hafa orðið meðal þekktustu al­ þýðuhetja á Íslandi. Það kom því eng­ um á óvart að Sóley skyldi taka upp þráðinn frá langalangömmu sinni, grasaþórunni (Þórunni gísladóttur) og hefja framleiðslu húðsnyrtivara eftir aldagamalli uppskrift sem varð­ veist hafði í fjölskyldu Sóleyjar. Sú uppskrift er grunnurinn að vörulínunni sem inniheldur kraftmiklar íslenskar jurtir sem eru handtíndar af fjölskyldu og vinum Sóleyjar á vottuðum reit við laugavatn. Fyrirtækið hefur nú verið starfrækt frá 2007. Lífræn vottun er mikilvægur gæðastimpill Sóley Organics er með lífræna vott­ un og Vala útskýrir fyrir okkur mikil­ vægi hennar: „Vottun tryggir hag neytenda. Sóley Organics er með náttúrulega og lífræna vottun frá ecocert og Tún. Það undirstrikar að þú getir treyst vörumerkinu, en það eru alltaf ein­ hverjir sem reyna að stytta sér leið. Vottunin styður það sem fyrirtækin segja um sig sjálf og við höfum lagt mikið upp úr því að vera með ósvikna vottun.“ Sóley Organics vann strax frá byrjun eftir regluverki lífrænnar vottunar en hún útheimtir mikinn tíma og pening. Sóley þurfti að leita lengi og prófa sig áfram til að finna náttúruleg rotvarnarefni til að nota í vörurnar og lengja líftíma þeirra. niðurstað­ an varð vönduð blanda af jurtum, vítamínum og ilmkjörnum. „auðveld­ ast hefði verið að notast við Paraben sem er ódýrasta rotvarnarefnið og því afar algengt í snyrtivörum í dag, það sama má segja um Microbeads sem eru því miður enn mikið notaðar í snyrtivörur, en það eru plastefni sem skolast út í sjó og finnast í neysluvatni og lífverum. Þetta finnur þú ekki í okkar vörum en í staðinn notum við kvarnaða ólífusteina,“ segir Vala og bætir við: „Við sem samfélag erum orðin mun meðvitaðri um matvörur, en eigum lengra í land með húðvörur.“ en eins og Sóley segir sjálf að þá er það sem þú setur á húðina fæða fyrir hana. „Sölustaðir eru allnokkrir og ber þar fyrstan að telja verslun Sóley Organics að Bæjarhrauni 10 í Hafnarfirði. Vörurnar eru einnig seldar í Heilsuhúsinu, lyfju, lyfjum og Heilsu, Íslandsapóteki, Systra­ samlaginu og víðar auk þess sem þær eru fáanlegar víðs vegar um heiminn. Á vefsíðu okkar, www.so­ leyorganics.com, er bæði hægt að fá nánari upplýsingar um vörurnar og kaupa í vefverslun en við sendum frítt innanlands.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.