Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Side 40
Íslensk hönnun 23. mars 2018KYNNINGARBLAÐ
Lífrænt vottaðar húðsnyrtivörur
úr hreinni íslenskri náttúru
Sóley OrganicS:
Sóley Organics framleiðir náttúru legar og lífrænar vörur, án allra skaðlegra efna,“ segir
Vala Steinsdóttir, framkvæmdastjóri
Sóley Organics, en eitt af stóru
markmiðum fyrirtækisins er að vera
nokkurs konar mótvægi við þá meng
un sem neyslusamfélag hefur í för
með sér og vonandi veita fólki hugarró
með fallegri hágæðavöru sem er
aðeins búin til úr bestu mögulegu
hráefnum.
„Við bjóðum viðskiptavinum okkar
upp á áfyllingu á flestöllum vörum í
búðinni okkar í Bæjarhrauni, einnig
bjóða Heilsuhúsin upp á áfyllingu á
sápum og sjampói. Það er að færast
í aukana sem leið fyrir neytendur til
að leggja sitt af mörkum til náttúr
unnar og gerir okkur kleift að lækka
verð vörunnar þar sem hún er seld án
umbúða,“ segir Vala. Hótel víða um
land nýta sér þann kost og er það liður
í þeirra starfi að uppfylla staðla sem
umhverfisvænt fyrirtæki auk þess sem
það lætur gestum líða eins og þeir séu
að sveipa um sig íslenskri náttúru.
Konan að baki Sóley Organics er
Sóley elíasdóttir, en hún starfaði áður
sem farsæl leikkona til fjölda ára.
Sóley á ekki langt að sækja áhugann
og þekkinguna á íslenskum lækninga
jurtum, því að baki henni standa
margir ættliðir grasalækna og nokkrir
þeirra hafa orðið meðal þekktustu al
þýðuhetja á Íslandi. Það kom því eng
um á óvart að Sóley skyldi taka upp
þráðinn frá langalangömmu sinni,
grasaþórunni (Þórunni gísladóttur)
og hefja framleiðslu húðsnyrtivara
eftir aldagamalli uppskrift sem varð
veist hafði í fjölskyldu Sóleyjar. Sú
uppskrift er grunnurinn að vörulínunni
sem inniheldur kraftmiklar íslenskar
jurtir sem eru handtíndar af fjölskyldu
og vinum Sóleyjar á vottuðum reit við
laugavatn. Fyrirtækið hefur nú verið
starfrækt frá 2007.
Lífræn vottun er mikilvægur
gæðastimpill
Sóley Organics er með lífræna vott
un og Vala útskýrir fyrir okkur mikil
vægi hennar:
„Vottun tryggir hag neytenda.
Sóley Organics er með náttúrulega
og lífræna vottun frá ecocert og Tún.
Það undirstrikar að þú getir treyst
vörumerkinu, en það eru alltaf ein
hverjir sem reyna að stytta sér leið.
Vottunin styður það sem fyrirtækin
segja um sig sjálf og við höfum lagt
mikið upp úr því að vera með ósvikna
vottun.“ Sóley Organics vann strax
frá byrjun eftir regluverki lífrænnar
vottunar en hún útheimtir mikinn tíma
og pening.
Sóley þurfti að leita lengi og prófa
sig áfram til að finna náttúruleg
rotvarnarefni til að nota í vörurnar
og lengja líftíma þeirra. niðurstað
an varð vönduð blanda af jurtum,
vítamínum og ilmkjörnum. „auðveld
ast hefði verið að notast við Paraben
sem er ódýrasta rotvarnarefnið og
því afar algengt í snyrtivörum í dag,
það sama má segja um Microbeads
sem eru því miður enn mikið notaðar í
snyrtivörur, en það eru plastefni sem
skolast út í sjó og finnast í neysluvatni
og lífverum. Þetta finnur þú ekki í
okkar vörum en í staðinn notum við
kvarnaða ólífusteina,“ segir Vala og
bætir við: „Við sem samfélag erum
orðin mun meðvitaðri um matvörur,
en eigum lengra í land með húðvörur.“
en eins og Sóley segir sjálf að þá er
það sem þú setur á húðina fæða fyrir
hana.
„Sölustaðir eru allnokkrir og
ber þar fyrstan að telja verslun
Sóley Organics að Bæjarhrauni 10
í Hafnarfirði. Vörurnar eru einnig
seldar í Heilsuhúsinu, lyfju, lyfjum
og Heilsu, Íslandsapóteki, Systra
samlaginu og víðar auk þess sem
þær eru fáanlegar víðs vegar um
heiminn. Á vefsíðu okkar, www.so
leyorganics.com, er bæði hægt að fá
nánari upplýsingar um vörurnar og
kaupa í vefverslun en við sendum frítt
innanlands.“