Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 51
5123. mars 2018 lífsstíll - bleikt E lma Sól  Long  er tveggja barna móðir sem stundar leikskólaliðanám ásamt því að starfa sem slíkur. Elma lifir í dag hamingjusömu lífi með sambýlismanni sínum og barnsföður ásamt strákunum þeirra tveimur. En saga Elmu hefur ekki alltaf verið jafn björt og hún er nú. Náinn aðstandandi Elmu beitti hana ítrekað hrottalegu ofbeldi í æsku og æ síðan hefur Elma þurft að glíma við skugga for- tíðarinnar. Hún settist niður með blaðamanni Bleikt og rifj- aði upp erfiða atburði úr æsku sinni. „Það héldu margir að ég væri almennt mjög glaður krakki, ég var fljót að læra hluti og leit út fyrir að vera hamingjusöm. En það var ekki satt, ég var fórnar- lamb mjög náins ættingja sem rændi mig æskunni. Hann hót- aði mér ítrekað, sló mig, hrinti og niðurlægði. Hann braut mig gjörsamlega niður,“ segir Elma. Elma greinir fá því að enginn í kringum hana hafi grunað hvað væri í gangi enda hafði ofbeldis- maður hennar náð að snúa sök- inni yfir á hana. Fannst hún eiga ofbeldið skilið „Ég hélt alltaf að ég hefði gert eitthvað af mér og fannst ég eiga þetta skilið. Ég man fyrst eftir of- beldinu þegar ég var í kringum sex ára aldur. Það gerðist heima hjá mér. Móðir mín var nýfar- in í vinnu og þessi einstakling- ur kom þá heim. Það fyrsta sem hann gerði var að rífa mig upp, blóta mér í kaf, hrista mig og síð- an bar hann mig upp í herbergi þar sem hann opnaði glugga og hélt mér hálfri út um hann. Hann hótaði að kasta mér út ef ég segði móður minni frá.“ Elma segist hafa reynt að forðast eins og hún gat að vera heima hjá sér þegar ofbeldis- maður hennar var þar, en þar sem hann var tíður gestur á heimili hennar þá var það mjög erfitt. „Ef ég vissi að hann væri að koma heim og mamma yrði ekki þar þá fór ég út með vinum mín- um. Þegar útivistartíma lauk þá fóru þau heim en ég hékk ein úti, jafnvel í opnum stiga- göngum þar sem ég lét tímann líða, því ég vildi ekki fara heim ef hann skyldi  enn þá  vera þar og taka á móti mér. Ég var oftar en ekki líka búin að pissa á mig og ég vissi að ef ég kæmi heim hlandblaut þá myndi hann setja mig í bleyju til þess að niður- lægja mig.“ Tók upp myndbönd af henni grátandi Þegar Elma var orðin aðeins eldri komst hún að því að ofbeldis- maður hennar hafði tekið upp og geymt myndbönd af henni grát- andi. „Ofbeldið minnkaði eftir því sem ég var eldri þar sem ég fór að geta svarað fyrir mig. Hann fór að vera minna inni á heimilinu en þó sótti ég einhverra hluta vegna í að halda sambandi við hann. Það var að öllum líkindum vegna þess að hann spilaði sig alltaf sem svo mikið fórnarlamb og ég fann svo til með honum. Það mætti segja að ég sé allt of aumingjagóð.“ Þegar Elma komst á ung- lingsaldur fór hún að eyða meiri tíma  inni á  heimili  ofbeldis- mannsins vegna þess að hann leyfði henni að drekka áfengi þar, eitthvað sem hún fékk ekki heima hjá móður sinni. „Hann var fullorðinn einstak- lingur sem hafði í raun engan aga. Hann leyfði mér að drekka heima hjá sér og mér fannst það æðislegt. Mamma reyndi að sjálf- sögðu að skipta sér af en hún bara vissi ekki hvað gekk á. Hún elskaði mig út af lífinu og ef ég hefði bara getað sagt henni frá, þá hefði þetta mögulega aldrei gengið svona langt.“ Partý öll kvöld Elma kynntist núverandi maka sínum þegar hún var einung- is fjórtán ára gömul en þau hófu ekki samband fyrr en hún var orðin sextán ára. „Það mætti segja að hann hafi bjargað mér, hann fór að vera mikið með mér, heima hjá þess- um ættingja mínum, en hann var fljótur að sjá hvers konar maður hann var. Fyllibytta, fíkill og al- mennt ógeðslegur. Það voru partí öll kvöld heima hjá honum og hann vildi ekki umgangast þenn- an mann. Hann leigði íbúð og ég flutti inn til hans.“ Elma gat einhverra hluta vegna ekki slitið sambandi við ofbeldismann sinn enda hafði hann verið náinn henni í mörg ár. „Ég sleit svo alveg sambandi við hann í lok árs 2012 þegar hann réðst á aðra manneskju mjög nákomna mér á meðan ég var þar í heimsókn. Fram að því trúði ég að ég ein hefði lent í honum. Þetta ofbeldi var mjög slæmt og hann kýldi manneskj- una ítrekað í andlitið á meðan ég sat á grúfu yfir henni og reyndi að vernda hana.“ Hræðsla Elmu var svo mikil á þessum tímapunkti að hún sá enga aðra lausn en að flýja að- stæður. „Ég var orðin svo hrædd að ég hljóp út á sokkunum í snjóinn og hringdi í lögregluna. Ég varð því miður að skilja manneskjuna eftir inni hjá honum þar sem ég var orðin of hrædd. Ég bað lög- regluna um að sækja hana inn til hans.“ Ofbeldismaður Elmu fékk á sig kæru fyrir líkamsárás eftir þetta atvik og var dæmdur sekur. „Ég var svo Guðs lifandi fegin þegar hann var dæmdur. Ég hef aldrei kært hann sjálf enda voru aldrei neinar sannanir nema orð á móti orði, svo lögfræðing- ur minn talaði mig af því. Mér bauðst  hins vegar  að fá á hann nálgunarbann á sínum tíma. Ég hef heldur aldrei leitað mér að- stoðar vegna hræðslu við hann, en nú er komin tími til þess að tala upphátt.“ n Aníta Estíva Harðardóttir anita@pressan.is „Það var að öllum líkindum vegna þess að hann spilaði sig alltaf sem svo mikið fórn- arlamb og ég fann svo til með honum. Kjúklingapasta með sólþurrkuðum tómötum og basilíku Aðferð n Kjúklingabringurnar skornar í bita og steiktar upp úr kókosolíu og hvítlauk á pönnu og kryddaðar eftir smekk n Pastað soðið eftir leiðbeiningum á pakkanum n Sveppum, sólþurrkuðum tómötum, lauk og basilíku bætt við kjúklinginn þegar hann er orðinn brúnaður. Leyft að malla saman í smá stund n Vatninu hellt af pastanu og því blandað við kjúklinginn n Kókosmjólkinni bætt við ásamt kjúklingasoðinu og leyft að malla þar til kókosmjólkin fer að sjóða n Ferskri basilíku stráð yfir Hægt er að fylgjast með Hildi og fá fleiri girnilegar uppskriftir frá henni á Instagram: hildurhilmars
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.