Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 54
54 skrýtið 23. mars 2018 A ntíksafnarar eiga það til að detta í lukkupottinn þegar heppnin er með þeim. Því fékk Justin Whiting, 45 ára safnari í Kaliforníu, að kynn- ast þegar hann rak augun í gamla ljósmynd sem var til sölu á upp- boðsvefnum eBay ekki alls fyrir löngu. Myndin sem um ræddi kostaði sjö pund, tæpar þúsund krónur, og í sölulýsingu var svo sem ekki merkilegar upplýsingar að finna. Í lýsingunni kom fram að líklega hefði hún verið tekin einhvern tímann á árunum 1870 til 1879 og sýndi ungan mann standa við stól. Ósvikin mynd Whiting keypti myndina og um leið og hann fékk hana í hend- urnar hafði hann samband við Will Dunniway, bandarískan sér- fræðing í gömlum ljósmyndum. Will skoðaði myndina og hann var ekki lengi að komast að því að þarna væri komin fram ósvikin ljósmynd af einum frægasta útlaga 19. aldarinnar, Jesse James. Jesse var banka- og lestarræningi í villta vestrinu en áður en hann fetaði braut glæpa tók hann þátt í þræla- stríðinu þar sem hann var skæru- liði í her Suðurríkjanna. Um líf hans og dauða var gerð myndin The Assassination of Jesse James by the Coward Robert Ford sem kom út árið 2007. Þar sem um þekktan einstak- ling úr sögunni er að ræða marg- faldaðist verðgildi myndarinnar svo um munar og telja sérfróðir að Justin geti fengið um 200 milljónir króna fyrir hana. Allt mögulegt á eBay „Þetta sýnir bara að allt er mögu- legt á eBay,“ segir Justin í sam- tali við breska blaðið Telegraph. Hann segir að hann finni gamla hluti á eBay fyrir lít- inn pening, rétt eins og fólk kaupir sér lottómiða, og svo voni hann það besta. Aðspurður hvort hann hafi áttað sig á því að þarna gæti verið um mikil verðmæti að ræða, segir Justin að hann hafi vissu- lega vonað það. Hann hefði þó ekki getað áttað sig á því fyrr en hann fékk myndina í hendurnar. „Ég hef ver- ið heillaður af bandarískum út- lögum um margra ára skeið og stúd- erað þá mik- ið,“ segir hann. Hann kveðst hafa séð þessa sömu mynd af Jesse í bók sem hann á en þó átt erfitt með að trúa því að um sömu mynd, í upprunalegri útgáfu, væri að ræða. Dunniway staðfesti síðan að myndin er af bankaræningjanum alræmda og var hún tekin þegar Jesse var fjórtán ára. Endanleg staðfesting mun fást á næstunni, eða eftir að sérfræðingur banda- rísku alríkislögreglunnar, Kent Gibson, hefur tekið myndina til skoðunar. Gibson kveðst sjálfur ekki í nokkrum vafa um uppruna myndarinnar. Þess má geta að árið 2015 seld- ist mynd af öðrum þekktum út- laga, Billy the Kid, fyrir fimm millj- ónir dala, eða um fimm hundruð milljónir króna. n einar@dv.is Keypti gamla ljósmynd fyrir slikk á netinu: Gæti fengið hundruð milljóna fyrir hana Nýtt öflugt bókhaldskerfi í skýinu frá manninum sem færði okkur Dynamics Ax Prófaðu frítt í 30 daga www.uniconta.is Lagast að þínum þörfum Erik Damgaard Stofnandi Uniconta „Þetta sýnir bara að allt er mögulegt á eBay
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.