Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Qupperneq 54
54 skrýtið 23. mars 2018
A
ntíksafnarar eiga það til að
detta í lukkupottinn þegar
heppnin er með þeim. Því
fékk Justin Whiting, 45
ára safnari í Kaliforníu, að kynn-
ast þegar hann rak augun í gamla
ljósmynd sem var til sölu á upp-
boðsvefnum eBay ekki alls fyrir
löngu.
Myndin sem um ræddi kostaði
sjö pund, tæpar þúsund krónur,
og í sölulýsingu var svo sem ekki
merkilegar upplýsingar að finna.
Í lýsingunni kom fram að líklega
hefði hún verið tekin einhvern
tímann á árunum 1870 til 1879 og
sýndi ungan mann standa við stól.
Ósvikin mynd
Whiting keypti myndina og um
leið og hann fékk hana í hend-
urnar hafði hann samband við
Will Dunniway, bandarískan sér-
fræðing í gömlum ljósmyndum.
Will skoðaði myndina og hann
var ekki lengi að komast að því að
þarna væri komin fram ósvikin
ljósmynd af einum frægasta útlaga
19. aldarinnar, Jesse James. Jesse
var banka- og lestarræningi í villta
vestrinu en áður en hann fetaði
braut glæpa tók hann þátt í þræla-
stríðinu þar sem hann var skæru-
liði í her Suðurríkjanna.
Um líf hans og dauða var gerð
myndin The Assassination of Jesse
James by the Coward Robert Ford
sem kom út árið 2007.
Þar sem um þekktan einstak-
ling úr sögunni er að ræða marg-
faldaðist verðgildi myndarinnar
svo um munar og telja sérfróðir að
Justin geti fengið um 200 milljónir
króna fyrir hana.
Allt mögulegt á eBay
„Þetta sýnir bara að allt er mögu-
legt á eBay,“ segir Justin í sam-
tali við breska blaðið Telegraph.
Hann segir að hann finni gamla
hluti á eBay fyrir lít-
inn pening, rétt eins
og fólk kaupir sér
lottómiða, og svo
voni hann það besta.
Aðspurður hvort
hann hafi áttað sig á
því að þarna gæti
verið um mikil
verðmæti að ræða,
segir Justin að
hann hafi vissu-
lega vonað það.
Hann hefði þó
ekki getað áttað sig
á því fyrr en hann
fékk myndina í
hendurnar.
„Ég hef ver-
ið heillaður af
bandarískum út-
lögum um margra
ára skeið og stúd-
erað þá mik-
ið,“ segir hann.
Hann kveðst hafa
séð þessa sömu
mynd af Jesse í
bók sem hann á
en þó átt erfitt
með að trúa því
að um sömu mynd, í upprunalegri
útgáfu, væri að ræða.
Dunniway staðfesti síðan að
myndin er af bankaræningjanum
alræmda og var hún tekin þegar
Jesse var fjórtán ára. Endanleg
staðfesting mun fást á næstunni,
eða eftir að sérfræðingur banda-
rísku alríkislögreglunnar, Kent
Gibson, hefur tekið myndina til
skoðunar. Gibson kveðst sjálfur
ekki í nokkrum vafa um uppruna
myndarinnar.
Þess má geta að árið 2015 seld-
ist mynd af öðrum þekktum út-
laga, Billy the Kid, fyrir fimm millj-
ónir dala, eða um fimm hundruð
milljónir króna. n
einar@dv.is
Keypti gamla ljósmynd fyrir slikk á netinu:
Gæti fengið hundruð
milljóna fyrir hana
Nýtt öflugt
bókhaldskerfi í skýinu
frá manninum sem færði
okkur Dynamics Ax
Prófaðu
frítt í
30 daga
www.uniconta.is
Lagast að þínum þörfum
Erik Damgaard
Stofnandi Uniconta
„Þetta sýnir
bara að allt
er mögulegt á eBay