Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 42
Íslensk hönnun 23. mars 2018KYNNINGARBLAÐ
Eins og við vitum eru skartgripir til í öllum verðflokkum. Sumir sækjast eftir ódýru en snotru
glingri en aðrir eru að leita að ein-
hverju sérstöku og persónulegu, sem
eðli málsins samkvæmt kostar sitt.
Þeir sem leita til gullsmiðsins Jó-
hannesar Ottóssonar – Jóa – eru
í síðarnefnda hópnum. Þar fá þeir
sérsmíðaða skartgripi sem eru mjög
persónulegir, eitthvað sem þú færð
ekki annars staðar.
„Ég hef mikið fengist við að sér-
smíða dýra skartgripi, til dæmis
demantshringi, og hvað varðar
giftingarhringapör hef ég farið nýjar
leiðir, það eru til dæmis hringir með
fingraförum paranna. Raunar er
það ekki mín hugmynd og fleiri eru
að gera það en ég hef líka farið enn
nýástárlegri leið: Parið segir eitthvað
hvort við annað og ég gref hljóð-
bylgjurnar af tali þeirra utan á hring-
ana. Maður þarf stundum að leggja
höfuðið í bleyti til að gera ekki alveg
eins og allir hinir,“ segir Jói.
Örstutt saga segir mikið um hvað
þessi hönnun er einstaklingsmiðuð og
hvað þetta eru mikilvægir gripir fyrir
þá sem eignast þá:
„Það hefur gerst margoft að erlend
pör sem hafa verið á Íslandi sem
túristar hafa samband við mig eftir
að þau eru komin heim og panta
trúlofunarhringa. Síðasta sumar
afgreiddi ég til dæmis Breta en hann
hafði verið hér árið áður með unnustu
sinni og ætlaði að biðja hennar. Við
vorum að velta þessu á milli okkar í
tvo mánuði og hann keypti á endan-
um stóran demant. Þetta var svo dýr
hringur að ég flaug út með hann.“
Karlmannaskart endurvakið
„Ég hef verið að keyra mikið á karl-
mannaskarti. Áður fyrr áttu allir karl-
menn útskriftarhringi, þeir voru ýmist
með vélstjóramerkinu eða bláum eða
rauðum steini. Margir minnast þess
að hafa séð afa sinn með svona.
Þetta datt út en er að koma mjög
sterkt inn núna. Ég er bæði að gera
hringi með plötum og steinum. Síðan
er ég með mína línu sem byggð er á
íslensku vættunum,“ segir Jói en það
hefur verið markmið hans að endur-
vekja skartgripanotkun karlmanna allt
frá því að hann byrjaði í faginu.
„Þegar karlar hafa gengið með
skart á seinni tímum þá hafa það
gjarnan verið hauskúpuhringir eða
eitthvað slíkt en ég er að endurvekja
gömlu hefðina í karlmannaskartgrip-
um. Ég hanna bæði hringi í grófari
kantinum og fíngerða hringi með plöt-
um og fangamarkið grafið í plötuna.“
Hver og einn maður fær skartgrip
sem hæfir hans skapgerð og smekk
enda er sérsmíði ær og kýr Jóa. „Fólk
er að fá eitthvað fyrir sjálft sig, sem
passar því og engum öðrum.“
Endursköpun jólaóróans
Jói var orðinn dálítið leiður á hefð-
bundnum jólaóróum sem hafa verið
óbreyttir lengi svo hann endurskap-
aði íslenska jólaóróann fyrir nokkrum
árum:
„Fyrir síðustu jól kom ég í fjórða
sinn með íslenskan jólaóróa á mark-
aðinn. Ég hef verið að nota íslensk dýr
í óróann, ég nota sömu umgjörðina
en skipti um dýr árlega. Fyrsta árið
var hreindýr, svo kom rjúpa, þar næst
refurinn og í fyrra var það snæuglan.
Spennandi verður síðan að sjá hvaða
dýr verður í jólaóróanum 2018.“
Þeir sem hafa áhuga á að skoða
nánar hönnun Jóa og ef til vill eignast
einstæðan og sérsmíðaðan skartgrip
úr hans smiðju ættu að kíkja á
heimasíðuna nox.is, Facebook-síðuna
Nox og Nox á Instagram. Það er líka
hægt að komast í samband við Jóa
með því að senda skilaboð í gegnum
vefsíðuna eða Facebook-síðuna eða
hringja í síma 822-8208.
Sérsmíðaðir skartgripir sem
þú færð ekki annars staðar
NOx: