Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 51
5123. mars 2018 lífsstíll - bleikt
E
lma Sól Long er tveggja
barna móðir sem stundar
leikskólaliðanám ásamt
því að starfa sem slíkur.
Elma lifir í dag hamingjusömu
lífi með sambýlismanni sínum
og barnsföður ásamt strákunum
þeirra tveimur.
En saga Elmu hefur ekki alltaf
verið jafn björt og hún er nú.
Náinn aðstandandi Elmu beitti
hana ítrekað hrottalegu ofbeldi
í æsku og æ síðan hefur Elma
þurft að glíma við skugga for-
tíðarinnar. Hún settist niður
með blaðamanni Bleikt og rifj-
aði upp erfiða atburði úr æsku
sinni.
„Það héldu margir að ég væri
almennt mjög glaður krakki, ég
var fljót að læra hluti og leit út
fyrir að vera hamingjusöm. En
það var ekki satt, ég var fórnar-
lamb mjög náins ættingja sem
rændi mig æskunni. Hann hót-
aði mér ítrekað, sló mig, hrinti
og niðurlægði. Hann braut mig
gjörsamlega niður,“ segir Elma.
Elma greinir fá því að enginn í
kringum hana hafi grunað hvað
væri í gangi enda hafði ofbeldis-
maður hennar náð að snúa sök-
inni yfir á hana.
Fannst hún eiga ofbeldið
skilið
„Ég hélt alltaf að ég hefði gert
eitthvað af mér og fannst ég eiga
þetta skilið. Ég man fyrst eftir of-
beldinu þegar ég var í kringum
sex ára aldur. Það gerðist heima
hjá mér. Móðir mín var nýfar-
in í vinnu og þessi einstakling-
ur kom þá heim. Það fyrsta sem
hann gerði var að rífa mig upp,
blóta mér í kaf, hrista mig og síð-
an bar hann mig upp í herbergi
þar sem hann opnaði glugga
og hélt mér hálfri út um hann.
Hann hótaði að kasta mér út ef
ég segði móður minni frá.“
Elma segist hafa reynt að
forðast eins og hún gat að vera
heima hjá sér þegar ofbeldis-
maður hennar var þar, en þar
sem hann var tíður gestur á
heimili hennar þá var það mjög
erfitt.
„Ef ég vissi að hann væri að
koma heim og mamma yrði ekki
þar þá fór ég út með vinum mín-
um. Þegar útivistartíma lauk
þá fóru þau heim en ég hékk
ein úti, jafnvel í opnum stiga-
göngum þar sem ég lét tímann
líða, því ég vildi ekki fara heim
ef hann skyldi enn þá vera þar
og taka á móti mér. Ég var oftar
en ekki líka búin að pissa á mig
og ég vissi að ef ég kæmi heim
hlandblaut þá myndi hann setja
mig í bleyju til þess að niður-
lægja mig.“
Tók upp myndbönd af henni
grátandi
Þegar Elma var orðin aðeins eldri
komst hún að því að ofbeldis-
maður hennar hafði tekið upp og
geymt myndbönd af henni grát-
andi.
„Ofbeldið minnkaði eftir því
sem ég var eldri þar sem ég fór að
geta svarað fyrir mig. Hann fór að
vera minna inni á heimilinu en
þó sótti ég einhverra hluta vegna í
að halda sambandi við hann. Það
var að öllum líkindum vegna þess
að hann spilaði sig alltaf sem svo
mikið fórnarlamb og ég fann svo
til með honum. Það mætti segja
að ég sé allt of aumingjagóð.“
Þegar Elma komst á ung-
lingsaldur fór hún að eyða meiri
tíma inni á heimili ofbeldis-
mannsins vegna þess að hann
leyfði henni að drekka áfengi þar,
eitthvað sem hún fékk ekki heima
hjá móður sinni.
„Hann var fullorðinn einstak-
lingur sem hafði í raun engan aga.
Hann leyfði mér að drekka
heima hjá sér og mér fannst það
æðislegt. Mamma reyndi að sjálf-
sögðu að skipta sér af en hún
bara vissi ekki hvað gekk á. Hún
elskaði mig út af lífinu og ef ég
hefði bara getað sagt henni frá,
þá hefði þetta mögulega aldrei
gengið svona langt.“
Partý öll kvöld
Elma kynntist núverandi maka
sínum þegar hún var einung-
is fjórtán ára gömul en þau hófu
ekki samband fyrr en hún var
orðin sextán ára.
„Það mætti segja að hann hafi
bjargað mér, hann fór að vera
mikið með mér, heima hjá þess-
um ættingja mínum, en hann var
fljótur að sjá hvers konar maður
hann var. Fyllibytta, fíkill og al-
mennt ógeðslegur. Það voru partí
öll kvöld heima hjá honum og
hann vildi ekki umgangast þenn-
an mann. Hann leigði íbúð og ég
flutti inn til hans.“
Elma gat einhverra hluta
vegna ekki slitið sambandi við
ofbeldismann sinn enda hafði
hann verið náinn henni í mörg ár.
„Ég sleit svo alveg sambandi
við hann í lok árs 2012 þegar
hann réðst á aðra manneskju
mjög nákomna mér á meðan
ég var þar í heimsókn. Fram að
því trúði ég að ég ein hefði lent
í honum. Þetta ofbeldi var mjög
slæmt og hann kýldi manneskj-
una ítrekað í andlitið á meðan ég
sat á grúfu yfir henni og reyndi að
vernda hana.“
Hræðsla Elmu var svo mikil
á þessum tímapunkti að hún sá
enga aðra lausn en að flýja að-
stæður.
„Ég var orðin svo hrædd að ég
hljóp út á sokkunum í snjóinn
og hringdi í lögregluna. Ég varð
því miður að skilja manneskjuna
eftir inni hjá honum þar sem ég
var orðin of hrædd. Ég bað lög-
regluna um að sækja hana inn til
hans.“
Ofbeldismaður Elmu fékk á sig
kæru fyrir líkamsárás eftir þetta
atvik og var dæmdur sekur.
„Ég var svo Guðs lifandi fegin
þegar hann var dæmdur. Ég hef
aldrei kært hann sjálf enda voru
aldrei neinar sannanir nema
orð á móti orði, svo lögfræðing-
ur minn talaði mig af því. Mér
bauðst hins vegar að fá á hann
nálgunarbann á sínum tíma. Ég
hef heldur aldrei leitað mér að-
stoðar vegna hræðslu við hann,
en nú er komin tími til þess að
tala upphátt.“ n
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@pressan.is
„Það var að öllum
líkindum vegna
þess að hann spilaði sig
alltaf sem svo mikið fórn-
arlamb og ég fann svo til
með honum.
Kjúklingapasta með sólþurrkuðum tómötum og basilíku
Aðferð
n Kjúklingabringurnar skornar í bita og steiktar upp úr
kókosolíu og hvítlauk á pönnu og kryddaðar eftir smekk
n Pastað soðið eftir leiðbeiningum á pakkanum
n Sveppum, sólþurrkuðum tómötum, lauk og basilíku
bætt við kjúklinginn þegar hann er orðinn brúnaður. Leyft
að malla saman í smá stund
n Vatninu hellt af pastanu og því blandað við kjúklinginn
n Kókosmjólkinni bætt við ásamt kjúklingasoðinu og
leyft að malla þar til kókosmjólkin fer að sjóða
n Ferskri basilíku stráð yfir
Hægt er að fylgjast með Hildi og fá fleiri girnilegar
uppskriftir frá henni á Instagram: hildurhilmars