Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Síða 24
24 23. mars 2018tækni
Þ
ú segir Alexa og ljós kvikn-
ar á litla turninum. Þú
varst að vakna og nenn-
ir ekki fram úr strax. Þú
spyrð á ensku hvernig veðrið sé
í Reykjavík. Alexa svarar: „Veðrið
í Reykjavík, það er 5 stiga hiti og
gola. Kólnar í kvöld og gæti snjó-
að.“ Þú klæðir þig og biður Alexu
um að tengjast símanum þínum
í gegnum blátönn. Hún tengist
og þú kveikir á útvarpinu í sím-
anum og
morgun-
útvarpið
hljómar í
eldhúsinu.
Þú
spyrð Alexu hvað sé í fréttum.
Hún tengist Reuters og BBC und-
ir eins og les fyrir þig fréttayfirlit
dagsins. Því miður bjóða hvorki
Stöð 2 eða RÚV upp á að hægt
sé að fá fréttayfirlit miðlanna í
Alexu eins og
er. En hvað er
Alexa? Alexa er í
raun svipuð Siri
sem finna má í
iPhone, nema
Alexa er mun klárari og fær um
að framkvæma mun fleiri hluti en
Siri.
Eftir að hafa nettengt Alexu
er bara að nota ímyndunaraflið.
Hún getur komið að miklu gagni
og hjálp-
að þér
með ótrú-
legustu
hluti og
þú stýrir
henni, eins og fyrr segir, með
röddinni. Það má segja að Alexa
sé lifandi hátalari. Þú getur látið
hana hringja og kveikja á ljós-
um heima hjá þér eða opna bíl-
skúrinn.
Hún get-
ur tengst
tónlistar-
veitum á
borð við
Spotify
og ef þú ert með Firestick frá Am-
azon til þess að horfa á sjónvarp
getur þú bæði óskað eftir að Alexa
spili sérstakt lag fyrir þig eða opni
fyrir þig ákveðinn sjónvarpsþátt
og þá lætur þú hana vita hvaða
þáttaröð og
þátt þú vilt
sjá. Þú þarft
sem sagt
ekki að taka
upp símann,
opna Spotify,
finna lagið og smella á það.
Þá getur þú beðið Alexu að
minna þig á fundi eða hluti sem
þú þarft nauðsynlega að muna.
Þú segir: „Alexa, viltu minna mig
á að ég þarf að fara á fund klukkan
16.00.“ Alexa spyr á móti hvenær
þú viljir fá áminningu um fund-
inn. „Klukkan hálf fjögur,“ svarar
þú. Einmitt á þeirri mínútu send-
ir Alexa í símann þinn skilaboð til
að minna þig á fundinn.
Þú getur einnig opnað ís-
skápinn, talið upp fyrir Alexu
það sem þig vantar úr búðinni.
Hún sendir þér svo innkaupalist-
ann í símann. Hún getur einnig
sagt þér brandara, sögur, syngur
sjálf og les upp hljóðbækur. Þú
getur jafnvel beðið hana um að
prumpa og það gerir hún með
mikilli ánægju.
Alexa veit hversu langt er til
tunglsins og hver er forseti Ís-
lands. Hún hefur líka áhyggjur
af geðheilsu þinni og ef þú lætur
hana vita að þú sért dapur í bragði
eða þunglyndur býður hún upp á
hin ýmsu ráð og býðst jafnvel til
að hringja
á sjúkrabíl
ef þarf. Al-
exa er í raun
hinn full-
komni,
persónu-
legi að-
stoðarmað-
ur sem fylgir
þér í gegnum daginn þó að hún
sé skilin eftir heima. En hún er
líka ánægð að fá þig heim. Um
leið og þú
ert mættur á
svæðið seg-
ir hún: „Ég
er glöð að
fá þig heim.
Ég vona að
dagurinn
hafi verið ánægjulegur.“
Mikil tækniþróun á sér stað
í kringum Alexu og „systkin“
hennar. Gróskan er það mikil
að Alexa, sem
er frá Amazon,
á alls fimmtán
systkin en það
elsta núlifandi
er líklegast Siri
sem eigendur
iPhone- síma
þekkja vel. Google hefur boð-
ið upp á aðstoðarmann í gegn-
um Google Home frá árinu 2016.
Microsoft er með Cortönu. Sam-
sung er með
Bixby. Svo eru
Rússar einnig
með aðstoðar-
manninn Alisu
sem kom á
markað síðasta
haust.
Málfarsunnendur hér á landi
þurfa vonandi ekki að óttast inn-
reið Alexu þar sem Amazon aug-
lýsti í fyrra eftir íslenskumælandi
starfsmanni
til að að-
stoða sig við
þróun Alexu.
Enn bólar því
miður ekk-
ert á íslenskri
útgáfu en
viðleitnin til
að vernda ís-
lenska tungu á íslenskum heimil-
um er virðingarverð af hálfu stór-
fyrirtækis á borð við Amazon. n
Líf þitt breytist tiL
batnaðar með aLexu
n Aðstoðarmaðurinn þinn n Kveikir á sjónvarpinu n Spilar tónlist n Stillir vekjaraklukkuna
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is
Þekkir þig
á röddinni
Spilar
tónlist
Les fyrir þig
hljóðbækur
Kveikir og
slekkur á
sjónvarpinu
Stillir
vekjara-
klukkuna
Segir þér
stöðuna í
enska og
meistara-
deildinni
Segir þér
hvernig
veðrið er
Les
helstu
fréttir
Stillir
hitann
í her-
berginu
Getur
hringt í
fólk og
gefið þér
samband