Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Síða 6
6 23. mars 2018fréttir F ramkvæmdastjórar og aðrir toppar á Landspítal- anum eru með kreditkort á vegum spítalans, fram- kvæmdastjórnin sjálf ákveð- ur hvaða starfsmenn eru með kreditkort. DV hefur fengið það staðfest að kreditkort spítalans séu notuð á veitingastöðum og séu notuð til að greiða fyrir vinnufundi á Nauthóli. Veltan á kreditkortum Landspítalans nam rúmlega 25 milljónum króna í fyrra. Í svari Landspítal- ans við fyrirspurn DV segir að tilgangurinn með kreditkortum framkvæmdastjóra og forstjóra „tengist almennri stjórnun á þeirra sviði“. Sex klukkutíma bið á bráðamóttöku Á sama tíma eru aðstæður á Landspítalanum erfiðar og álagið mikið. Svandís Svavarsdóttir heil- brigðisráðherra gerði ríkisstjórn- inni grein fyrir stöðunni á bráða- móttöku spítalans í síðustu viku. Þar kom fram að vegna skorts á hjúkrunarfræðingum væru 35 rými lokuð á spítalanum. Staðan var hvað erfiðust aðfaranótt 13. febrúar þegar 63 sjúklingar voru á bráðamóttökunni þar sem rúm- stæði eru fyrir 32 sjúklinga og bið eftir læknisskoðun því allt að sex klukkutímar. 17 kreditkort Kreditkort Landspítalans eru alls 17, handhafar þeirra eru forstjóri, 13 framkvæmdastjórar, deildar- stjóri Heilbrigðis-og upplýsinga- tæknideild á Rannsóknarsviði, einn fjármálaráðgjafi og eitt kort er hjá gjaldkera á Fjárstýringu, sem er hluti af fjármálasviði spít- alans. Veltan á kortunum 17 var samtals 24.694.653 krónur árið 2017. Framkvæmdastjórn spítal- ans ákveður hvaða starfsmenn fá kreditkort og eru kortin afhent hjá fjárstýringu. Sigrún Guðjóns- dóttir, deildarstjóri fjárstýringar, segir í svari við fyrirspurn DV að notkunarreglurnar á kortun- um séu eftirfarandi: „Korthafi er ábyrgur fyrir því að taka kvitt- un (staðgreiðslureikning) í hvert skipti sem kortið er notað og gera skil á gögnum til fjármálaráð- gjafa í lok hvers úttektartímabils. Fjárhagsbókhald sér svo um inn- lestur færslna í bókhald.“ Varð- andi kort deildarstjóra sé það not- að fyrir erlend innkaup á netinu og kort fjárstýringar sé notað fyrir greiðslu á ferðakostnaði. Ríkiskaup voru með umsjá yfir kreditkort opinberra stofnana til ársins 2012. Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri Ríkis- kaupa, segir að það sé stofnan- anna að setja reglur um innkaup og ákveða hverjir séu með kort. Halldór segir að tilgangur með kreditkortunum sé að halda utan um smærri innkaup stofnana. „Eins og þegar keyptir eru far- miðar þá er það fært á innkaupa- kort þess sem sér um innkaup- in, þetta er bara til að halda betur utan um viðskiptin, til að það séu ekki pappírar að koma inn í hús.“ Eiga mikil viðskipti við Nauthól Anna Sigrún Baldursdóttir að- stoðarmaður forstjóra Landspít- alans. Mynd: stjornarradid.is DV ræddi við nokkra starfs- menn á Landspítalanum en allir komu af fjöllum þegar spurt var um fundi á Nauthóli, einn lækn- ir sagðist hafa heyrt af því að stjórnendur funduðu utan spít- alans en gat ekki sagt til um hvar. DV sendi fyrirspurn á nokkra framkvæmdastjóra sem eru með kreditkort frá Landspítalanum um í hvað þeir notuðu kortið en enginn svaraði. Þess í stað kom svar frá deildarstjóra á sam- skiptadeild um að spurningunni yrði svarað með miðlægum hætti. Kom þá svarið að notkun á kreditkortum framkvæmdastjóra og forstjóra „tengist almennri stjórnun á þeirra sviði“. Anna Sigrún Baldursdóttir, að- stoðarmaður Páls Matthíassonar forstjóra Landspítalans, stað- festi að kreditkortin væru notuð á veitingastöðum í borginni, þar á meðal Nauthól. „Við erum með reglulega vinnufundi á Nauthól með starfsfólki. Við eigum mikil viðskipti við Nauthól.“ Aðspurð um hvaða vinnufundir þetta væru sagði Anna Sigrún að um væri að ræða Lean-námskeið í tengsl- um við nýjan meðferðarkjarna á Hringbraut, en Lean er svoköll- uð straumlínustjórnun sem draga á úr tapi og sóun. Anna Sigrún sagði jafnframt að það væri öfl- ugt eftirlit með notkun kortanna. „Þetta er opinbert fé sem við för- um með, auðvitað þarf að hafa eftirlit með því hvernig það er notað, að það sé örugglega rétt. Þetta eru það miklir peningar sem við erum með.“ n n Veltan nam 25 milljónum í fyrra n Alvarleg staða á bráðamóttöku Ari Brynjólfsson ari@dv.is Anna Sigrún Baldursdóttir Aðstoðarmaður forstjóra Landspítalans. Topparnir með kort spítalans á Nauthól Tvífarar vikunnar Tvífarar vikunnar að þessu sinni eru Birgir Ármannsson, þing- flokksformaður Sjálfstæðis- flokksins, og Kermit froskur, prúðuleikari. Það er helst munn- og augnsvipurinn á þeim Birgi og Kermit sem er líkur, en það er helst litarháttur- inn og hárgreiðslan sem skilur þá að, fyrir utan gleraugun. Hver er hann n Alinn upp í Árbæn- um og Kópavoginum og Bliki í húð og hár n Aðdáandi rapptón- listar og heldur sérstak- lega upp á Drake og Kanye West n Á tvær Mercedes Benz-bifreiðar og hund sem heitir Nino n Er með betri Counter-Strike- spilurum landsins n Landsliðsmaður í knattspyrnu og hefur slegið í gegn í enska boltan- um í vetur SvAr: JóhANN BErg guðmuNdSSoN Það er staðreynd að … Rúmur meirihluti Íslendinga trúir á tilvist álfa. Álfatrúin er mest hjá Framsóknar- konum, rúmlega 81 prósent. Fólk leysir vind að meðaltali 14 sinnum á dag. Eitt prósent af gasinu er brennisteins- vetni sem gefur því slæma lykt. Kaststjörnur, eða svokallaðar ninju- stjörnur, eru ólöglegar á Íslandi. Heimilt er þó að víkja frá banni ef stjarnan hefur söfnunargildi eða sérstakar ástæður mæla með eigninni. Við landnám var Vatnajökull langt- um minni en hann er í dag og hét þá Klofajökull. Moskítóflugur lifa á Grænlandi, Bretlandi, Noregi en ekki á Íslandi eða í Færeyjum. „Þetta er opinbert fé sem við förum með, auðvitað þarf að hafa eftirlit með því hvernig það er notað. Landspítalinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.