Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 12
12 23. mars 2018fréttir
Vigdís ætlar að verða borgarstjóri:
V
igdís Hauksdóttir er
öllum kunn. Hún sat á
þingi fyrir Framsóknar-
flokkinn á árunum 2009
til 2016 og var þegar orðin ein
umtalaðasta og umdeildasta
kona landsins þegar hún varð
formaður fjárlaganefndar
árið 2013. Hún sagði skilið við
stjórnmálin fyrir kosningarnar
2016 en nú er hún mætt aftur
sem borgar stjóraefni Mið-
flokksins. Vigdís er stórhuga
og tók blaðamann DV með sér
í bíltúr um borgina til að taka
skóflustungur þar sem hún ætl-
ar að láta hendur standa fram
úr ermum.
„Ég er á litlum sparneytnum
tvinnbíl þannig að ekki hafa
áhyggjur af mengun,“ segir
Vigdís glaðbeitt. Leið okkar ligg-
ur í Húsasmiðjuna til að kaupa
stunguskóflu og berst þá talið
að samgöngumálum, það er al-
veg ljóst að Vigdís er ekki hrifin
af núverandi meirihluta Sam-
fylkingar, Vinstri grænna, Pírata
og Bjartrar framtíðar. „Það er
ófremdarástand hvernig búið
er að þrengja að fjölskyldubíln-
um og alveg óskiljanlegt. Sjáðu
hérna, við erum ekki á háanna-
tíma en það er samt umferð-
arkaós. Það er hægt að gera svo
ótalmargt til að laga þetta en
fyrst þarf að breyta um stefnu.
Líf Magneudóttir, oddviti VG,
sagði í Silfrinu um síðustu helgi
að meirihlutinn „ætlaði“ að
flytja 25 þúsund manns inn í
strætó. Ætla þau að þvinga fólk?
Það þýðir ekkert að tala svona,
fólk verður að vera raunhæft.“
Skóflustunga að nýju
þjóðarsjúkrahúsi
Við göngum inn í Húsasmiðj-
una þar sem Vigdís heilsar
starfsmanni með nafni, þess
má geta að hún var með
blómaskreytinganámskeið um
jólin í Blómavali í sama húsi.
Vigdís velur finnska stungu-
skóflu sem hún setur í aftur-
sætið. Nú erum við á leið upp
að Keldum, þar ætla Vigdís og
Miðflokkurinn að reisa nýtt
þjóðarsjúkrahús. Keldur eru
ekki svæði sem margir leggja
leið sína til, útsýnið nær yfir
Stórhöfða og Gullin brú. Vigdís
„Partíið
er búið!“
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is