Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Side 30
Íslensk hönnun 23. mars 2018KYNNINGARBLAÐ Vorhús frumsýndi á Hönnunar-mars nýtt fullbúið matar- og kaffistell sem hannað er af listamanninum Sveinbjörgu Hall- grímsdóttur. Sveinbjörg hefur um árabil starfað sem hönnuður undir eigin nafni og er nú að frumsýna nýtt matar- og kaffistell undir merkjum Vorhúss. Stellið vakti mikla athygli á Hönnunarmars og eru viðtökur að sögn forsvarsmanna Vorhúss framar vonum. „Það er greinilega mikil eftir- spurn eftir vandaðri íslenskri hönnun og við reynum að svara þeirri eftir- spurn eins og við getum hverju sinni. Viðskiptavinir okkar hafa um árabil óskað eftir að við kæmum með heilt stell á markað og það er loks orðið að veruleika,“ segir Fjóla Karls, fram- kvæmdastjóri Vorhúss. Stellið er veglegt og samanstendur af matardiskum, djúpum diskum, kökudiskum, kaffi- og tebollum, tekatli, steikarfati, tertufati, sósukönnu, rjómakönnu og fylgiskálum í mismunandi stærðum. Það er því heildstætt og uppfyllir þarfir bæði stórra og lítilla heimila. Stellið er unnið úr hágæða hvítu postulíni og því endingargott og notendavænt í daglegri notkun sem og á hátíðisdögum. Fallegt og stílhreint yfirbragð mynstursins gefur stellinu klassískan blæ sem er í senn norrænn og með sterkum persónuleika hönnuðar. Uppruna mynstursins er að finna í myndlistaverkum Sveinbjargar sem nefnast Garðveisla. Í listaverkunum spilar reyniviðurinn aðalhlutverkið í fæðuleit fuglanna í íslenskum görð- um á haustin. Reyniviður óx villtur á Íslandi við landnám og hefur djúpar rætur í norrænni menningu. Tréð var helgað Þór í norrænni goðafræði og var heilagt að mati kristinna manna. Á árum áður þótti til heilla að rækta reynivið og var hann og er enn afar vinsæll í íslenskum görðum. Nánari upplýsingar um stellið er hægt að nálgast á vorhus.is. Nýtt matar- og kaffistell Sveinbjargar vakti mikla athygli á Hönnunarmars

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.