Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Page 49
sakamál 4923. mars 2018
7 ára drengur og níu ára stúlka féllu fyrir hendi japanskrar konu, Suzuku Hatakeyama, í apríl og maí 2006. Drengurinn hét Goken Yoneyama og var nágranni Suzuku í Fujisato í Akita. Suzuka kyrkti hann á heimili
hennar 17. maí 2006. Tæpum mánuði áður, 19. apríl, hafði hún hrint níu ára
dóttur sinni, Ayaka Hatakeyama, af brú og ofan í á. Í upphaflegri játningu, eftir
að Suzuka var handtekinn, bar hún því við að dóttir sín hefði verið bölvuð plága.
var staðið lífstíðar fangelsisdóm.
Hann áfrýjaði dómnum 23. maí,
2008, en áfrýjuninni var vísað frá
og upprunalegur dómur staðfestur.
Örstuttur fortíðarsnúningur
Í ágúst árið 2006 var saksóknari
önnum kafinn við að undirbúa
málsókn á hendur Glenn. Upplýsti
hann friðdómara, svonefndan, um
sönnunargögn sem bentu til sekt-
ar Glenns með það fyrir augum að
sannfæra hann um að full ástæða
væri til að fara með málið fyrir rétt.
Einnig var tekinn niður vitnisburð-
ur fólks og þá féll sprengja, eins og
það var orðað í ástralska fjölmiðl-
inum The Age. Óvænt vitni, Tracy
Wilkinson, fyrrverandi vinnufélagi
Janelle, skaut upp kollinum.
Tracy sagði að hún héldi að
Aliesha Taylor, þáverandi eigin-
kona Glenns, hefði orðið Janelle
að bana.
Blóð eða málning
Sagði Tracy að 31. mars, 2002,
hefði hún séð Alieshu rífast
heiftar lega við einhvern. Tracy
sagði að henni hefði verið gengið
út um bakdyr Hillcrest-hótelsins
þar sem hún og Aliesha unnu þá
og séð Alieshu öskra á einhvern á
bak við runna.
Tracy sá annan handlegg
Alieshu sveiflast „í boga“, en sá
ekki á hverju hún hélt. Hún hróp-
aði á Alieshu sem kom til hennar
en viðmælandi hennar, sem Tracy
ályktaði að væri Glenn, var í hvarfi
við runnann.
Tracy sagðist hafa séð það sem
hún taldi vera blóðbletti á treyju
Alieshu, og spurt: Aliesha, er í
lagi með þig? Aliesha þér blæðir.“
Aliesha hefði svarað að bragði:
„Nei, þetta er málning.“
Sennilega Janelle
Tracy sagði að Aliesha hefði verið
afar rauð í framan og hún hefði
dregið þá ályktun að Aliesha
skammaðist sín fyrir að hafa verið
gripin glóðvolg í hávaðarifrildi við
eiginmann sinn.
Um korteri síðar sá Tracy
hjónakornin standa við hvíta
fólksbifreið sem hafði verið bakk-
að inn í verkfæra- og viðhaldsskúr
hótelsins. Hún hafði séð Glenn
koma þaðan út um opnar dyrnar.
Hún velti því ekkert frekar fyrir
sér á þeirri stundu, hélt enda
að aðeins þau tvö hefðu staðið í
rifrildi.
Það var ekki fyrr en þó nokkru
seinna sem það rann upp fyrir
henni að óþekkta manneskjan á
bak við runnann gat ekki hafa ver-
ið Glenn. Sennilega hefði verið um
Janelle að ræða.
Janelle forvitnaðist um Glenn
Í öðrum framburði sínum, hjá
lögreglunni í febrúar 2006, sagði
Tracy að tveimur vikum áður en
Janelle var myrt hefði hún komið
inn á veitingastað Hillcrest með
hópi fólks. Þegar Janelle fékk tæki-
færi til að vera ein með Tracy hefði
hún spurt hvort Aliesha ynni á
hótelinu.
Tracy sagði Janelle sem var, að
Aliesha ynni í gestamóttökunni
og aðspurð sagði hún einnig að
Aliesha væri verulega indæl.
Enn fremur sagði Tracy: „Mað-
ur Alieshu, Glenn, barst í tal. Ég
man að ég sagði að Glenn væri
svolítill asni og að ég hefði heyrt
orðróm þess efnis að hann væri
lausgirtur. Ég spurði Janelle af
hverju hún væri að forvitnast um
hann, en þá breytti hún um um-
ræðuefni.“
Óvenjumikill áhugi
Í samtali sem Tracy og Aliesha
áttu síðar spurði sú síðarnefnda
Tracy hvort mögulegt væri að ekið
hefði verið af ásettu ráði á Janelle,
eða eitthvað í þeim dúr. „Ég sagði
að það væri mögulegt því Janelle
hefði reitt sumt fólk á eynni til
reiði,“ sagði Tracy við lögregluna.
Má, í ljósi frásagnar Tracy, ætla
að Aliesha og Glenn hafi verið
óvenju áhugasöm um morðið.
„Innan við viku eftir þetta var
ég í vinnunni, í starfsmanna-
herberginu, og Aliesha kom út
af skrifstofunni og sagði mér að
Glenn hefði heyrt orðróm þess
efnis að ég hefði séð þegar Janelle
var myrt, og að ég væri dauðskelfd.
Ég sagði henni að þetta væri ósatt,“
sagði Tracy enn fremur.
Aliesha í uppnámi
Að sögn Tracy var hún um kvöldið
við vinnu sína á bar hótelsins
og Glenn og Aliesha gáfu sig á
tal við hana enn og aftur. Aftur
höfðu skötuhjúin á orði að um-
talað væri að hún hefði verið
vitni að morðinu á Janelle. Síðan
sagði Glenn eitthvað á þessa leið:
„Hafðu engar áhyggjur Tracy, ég
heyrði því líka fleygt að þú hefðir
gert það [myrt Janelle].“
Að endingu sagði Tracy lög-
reglunni, þennan dag í maí 2002,
að þegar eyjaskeggjar hefðu verið
beðnir að upplýsa um ferðir sín-
ar daginn þegar Janelle var myrt
hefði hún orðið við þeirri ósk.
Tracy hefði þá tekið eftir því að
Aliesha Taylor varð óvenjulega
taugaóstyrk þegar hún sá Tracy
mætta í þeim erindagjörðum.
Á öndverðum meiði
Svo mörg voru þau orð og hvað
sem frásögn Tracy líður þá ákvað
saksóknarinn, Graham Rhead,
að beina sjónum sínum að Glenn
McNeill. Hafði hann á orði að fyr-
ir lægju næg sönnunargögn til
að sannfæra kviðdóm um sekt
Glenns.
Verjandi Glenns, Peter Garling,
var ómyrkur í máli og sagði mála-
tilbúnaðinn á hendur skjól-
stæðingi sínum morandi í glopp-
um og að ekki ætti að rétta yfir
honum.
Verjandanum varð ekki að ósk
sinni og sem fyrr segir var Glenn
McNeill sakfelldur fyrir morðið á
Janelle Patton og fékk, þegar upp
var staðið, lífstíðardóm. n
Víg Veitingakonunnar„Aliesha, er
í lagi með
þig? Aliesha þér
blæðir.
Glenn McNeill
Var að sögn lausgirtur.
Á Norfolkeyju
Enginn hafði verið ákærður
fyrir morð á eyjunni í yfir
100 ár.
fóstru sína um takmarkalausa græsku.
Sabrina hafði, að sögn, sakað Sophie um
að „beita alla fjölskylduna kynferðislegu
ofbeldi.“
Sophie mun hafa kvartað yfir því að hún
fengi ekki að snúa heim til Frakklands og
að „hún sætti barsmíðum.“
Bálköstur í bakgarði Sabrinu og Quissem
vakti athygli nágranna sem höfðu samband
við lögreglu.
Skinhoruð og skelfd
Richard Horwell sagði að skötuhjúin hefðu
vonast til að eyða líkamsleifum Sophie
gjörsamlega og síðan útskýra fjarveru
hennar á þann veg að Sophie hefði farið til
Frakklands vegna gruns um einhvers konar
handvömm af hennar hálfu.
Þegar upp komst um morðið og áform
Sabrinu og sambýlismanns hennar fund-
ust „skelfileg“ myndskeið í símum þeirra.
Um var að ræða yfir átta klukkustunda
upptökur þar sem heyra mátti Sophiu yfir-
heyrða af parinu.
Upptökurnar sýndu, að sögn Horwells,
„unga, skinhoraða, skelfda og hjálparvana
konu.“n
Mark Walton Kann eitthvað fyrir sér í svarta-
galdri að mati barnsmóður sinnar.
Sabrine Kouider Sögð hafa grunað barnfóstru sína um samsæri.