Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Side 53
tímavélin 5323. mars 2018
E
inn kynlegasti kvistur
Reykjavíkur á fyrri hluta 20.
aldar var maður sem nefnd
ur var Oddur sterki af Skag
anum. Heyrnardaufur og mál
haltur maður sem reri til sjós en
gerðist síðar ritstjóri tveggja dag
blaða. Seinna komst hann í frétt
irnar fyrir að hitta sjálfan Dana
konung á Þingvöllum, þá klæddur
í víkingaklæði. Ekki var þó allt sem
sýndist, hvorki varðandi útgáfuna
né konungsfundinn. Guðjón Frið
riksson sagnfræðingur hitti Odd
sem barn og ræddi við DV um
þennan merka utangarðsmann.
„Ég sá hann þegar ég var smá
strákur, sex eða sjö ára gamall, þar
sem ég og pabbi vorum að ganga
niðri við höfn. Pabbi benti mér á
þennan þjóðþekkta mann sem var
mjög sérkennilegur í útliti, með
mikið skegg og fornmannlegur.“
Heyrnardaufur og
misþroska eftir slys
Oddur Sigurgeirsson var fæddur
árið 1879 utan hjónabands. Móðir
hans, Jórunn Böðvarsdóttir, var
vinnukona í Reykjavík en faðir
inn, Sigurgeir Guðmundsson, var
kvæntur sjómaður frá Akranesi.
Fyrstu þrjú árin ólst Oddur upp
hjá móður sinni en þegar hún lést
fór hann í fóstur hjá föðurbróð
ur sínum á Skaganum og þar fékk
hann viðurnefni sitt Oddur sterki
af Skaganum.
Skömmu eftir að Oddur flutt
ist til frænda síns fékk hann slæmt
höfuðhögg, lá rúmfastur í marga
mánuði og missti tímabundið
heyrn. Þetta orsakaði mikla höf
uðverki, vanlíðan og heyrnin varð
aldrei söm. Oddur varð á eftir jafn
öldrum sínum í þroska og máli og
bitnaði það verulega á honum fé
lagslega. Allar götur síðan talaði
hann með mjög sérstökum hætti
og hátt vegna heyrnardeyfðarinn
ar. Á 19. öld var hugtakið einelti
ekki komið til sögunnar og skiln
ingur á fötlun og heilsubresti lítill
sem enginn. Oddur gekk um með
horn til að heyra hvað aðrir sögðu
og var hlegið að honum vegna
þess.
Óvinnufær eftir aðgerð
Fimmtán ára gamall fór Oddur til
sjós, enda var hann duglegur og
hraustur. Var hann yfirleitt á skút
um sem sigldu frá Reykjavík og
fékk snemma viðurnefnið sterki.
En þrátt fyrir að vera hraustur þá
eltu félagslegu vandamálin hann
á sjóinn og leitaði hann því í flösk
una. Oddur var oftar en ekki illa
drukkinn í landi.
„Hann átti enga konu og engin
börn en hann var mjög barn góður
og gaf börnum oft smápeninga og
klappaði þeim á kollinn. Börnin
þekktu Odd og sungu um hann:
Oddur sterki af Skaganum, með
rauða kúlu á maganum.“
Á fertugsaldri þurfti Oddur að
hætta sjómennsku af heilsufars
ástæðum en þó ekki vegna
heyrnarinnar. Hann veiktist illa
og þurfti að undirgangast stóra
skurðaðgerð á kviðarholi. Þegar
hann missti vinnuna varð hann
að hálfgerðum flækingi í miðbæ
Reykjavíkur.
Notaður af Alþýðuflokknum
Um miðjan þriðja áratug síðustu
aldar bjó hann í kjallaraholu við
Spítalastíg og þá flæktist hann
óvænt inn í pólitískar deilur. Odd
ur sterki var allt í einu orðinn rit
stjóri tveggja dagblaða, Harðjaxls
ins og aukablaðsins Endajaxlsins,
sem höfðu sterka vinstri slagsíðu.
„Oddur seldi þessi dagblöð í
miðbæ Reykjavíkur og gekk mjög
vel. En það voru einhverjir aðr
ir sem skrifuðu blöðin fyrir hann,
annaðhvort nafnlaust eða undir
hans nafni. Það voru ýmsir nafn
togaðir menn grunaðir um skrifin,
þar á meðal Þórbergur Þórðar
son og Halldór Laxness, sem og
menn úr Alþýðuflokknum. Þessi
skrif voru oft rætin og í eitt skipti
var skrifaður leiðari í Morgunblað
ið þar sem þessi aðferð var gagn
rýnd, að nota þennan aumingja
mann sem skálkaskjól fyrir ill
kvittin skrif.“
Í leiðaranum frá árinu 1924
segir: „Hið alvarlega við þetta er að
nokkrir menn skuli velja gamlan,
fátækan og einstæðan mann, sem
ekki mun heldur vera talinn með
réttu ráði, til þess að skríða á bak
við hann og kasta þaðan út til
ýmsra manna óhróðri og klámi.“
Í þessu húsinu við Spítalaveg
bjó einnig Hallbjörn Halldórsson,
einn af leiðtogum Alþýðuflokks
ins, prentari og ritstjóri Alþýðu
blaðsins. Í húsinu var margt um
manninn af róttækum vinstri
mönnum og kraftur í útgáfu Harð
jaxls næstu árin. Oddur var skráð
ur fyrir öllum stöðum í Harðjaxli til
ársins 1926 en þá bitnaði útgáfan
á honum persónulega. Í Alþýðu
blaðið skrifaði Oddur:
„Ég er örþreyttur maður eftir
sölu síðasta blaðs … Sem stendur
er ég bæði ritstjóri, prófarkalesari,
afgreiðslumaður, sölustjóri,
og hraðboði, þ.e. express eða
fréttaritari. En ábyrgðarmaður má
ég ekki vera samkvæmt auglýsingu
í auglýsingablaði stjórnarráðsins
þar sem ég var sviptur skaðræði
(innsk. fjárræði) eftir beiðni morð
hausanna og danska Mogga.“
Með alvæpni á konungsfundi
Blöðin hættu að koma út árið 1927
og var þá útgáfuferli hans lokið.
Þótt Oddur hafi verið stoltur af
blöðum sínum og sinnt þeim hlut
verkum sem honum voru falin vel
er augljóst að hann var notaður af
„vinum“ sínum úr Alþýðuflokkn
um. Alla tíð var hann plataður og
hæddur. Guðjón segir:
„Það var plagsiður í Reykjavík
og sjálfsagt víða um land að leggja
fólk í einelti sem var öðruvísi en
aðrir. Oddur hefur örugglega ekki
farið varhluta af því. Til dæmis var
hann klæddur upp í fornmanna
búning fyrir Alþingishátíðina árið
1930. Þar var haldin sögusýning og
ég held að menn hafi verið að gera
grín að henni með því að láta Odd
birtast þarna.“
Á hátíðinni hitti Oddur Krist
ján X Danakonung og ljósmynd
var tekin af þeim saman og var sá
fyrrnefndi þá með alvæpni. Eftir
hátíðina fékk Oddur að eiga bún
inginn og gekk þá oft um götur
Reykjavíkur í fullum skrúða.
Á fjórða og fimmta áratugnum
bjó Oddur við Skúlagötuna og í
húsi við Klepp. Þar bjó hann með
hundinum sínum og hesti. Í viðtali
í Alþýðublaðinu árið 1935 sagði
hann: „Ég, hundurinn og hestur
inn erum alltaf saman og mér þykir
mest gaman að því að vera með
þeim í góðu veðri uppi í sveit.“ Árið
1947 kom hann á fót sjóði til styrkt
ar öldruðum sjómönnum, 40 þús
und krónum sem hann hafði safn
að yfir margra ára skeið. Oddur lést
á elliheimilinu Grund árið 1953, þá
73 ára gamall. n
RitstjóRi,
foRnmaðuR
og athlægi
oddur sterki á skaganum:
„Ég held að menn
hafi verið að gera
grín að henni með því að
láta Odd birtast þarna.
Ritstjóri dagblaðsins Harðjaxls
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
. . .alla daga
K A F F I H Ú S