Fréttablaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 2
Veður
Hæg norðlæg eða breytileg átt í dag.
Dálítil væta norðanlands, einkum
með ströndinni, en stöku skúrir um
sunnanvert landið. Hiti víða 5 til 10
stig að deginum. sjá síðu 48
Sinfóníuhljómsveit Íslands hitar upp fyrir Japansför
Japanski píanistinn Nobuyuki Tsjujii situr hér við flygilinn í Eldborgarsal Hörpu eftir að hafa flutt Píanókonsert númer tvö eftir Fréderic Chopin.
Píanósnillingurinn hefur verið blindur frá fæðingu og lærir jafnvel erfiðustu tónverk píanóbókmenntanna eftir heyrn. Fréttablaðið/Eyþór
andlát Karlmaður á sextugsaldri
fannst látinn í sjónum við Vatna-
garða í Reykjavík í fyrrinótt. Fram
kemur í tilkynningu frá lögreglu að
óttast hafi verið um afdrif mannsins
eftir að bátur fannst mannlaus neðan
við athafnasvæði Samskipa í Kjalar-
vogi eftir klukkan eitt í fyrrinótt.
Leit hófst þegar að manninum
en hann fannst á sjötta tímanum
um morguninn. Ekki er grunur um
saknæmt athæfi í tengslum við and-
látið. – bg
Fannst látinn
í sjónum við
Vatnagarða
Óman Sænski tónlistarmaðurinn
Tim Bergling, betur þekktur sem
Avicii, lést í Múskat, höfuðborg
Ómans, í gær. Hann var 28 ára. Þetta
tilkynnti fjölmiðlafulltrúi Avicii.
„Með sorg í hjarta tilkynnum við um
andlát Tims Bergling. Hann fannst
látinn í Múskat, Óman, fyrr í dag.
Fjölskylda hans er harmi slegin og
við biðjum alla um að veita henni
næði á meðan hún syrgir á þessum
erfiðu tímum,“ segir í tilkynningunni.
Avicii hætti að koma fram á tón-
leikum árið 2016 af heilsufarsástæð-
um. Á meðal þekktustu laga hans eru
Levels, Wake Me Up og Hey Brother.
Hann gaf út tvær plötur á ferlinum
og var tilnefndur til og hlaut fjölda
verðlauna fyrir verk sín. – þea
Hinn sænski
Avicii látinn
Þrátt fyrir ungan aldur
var Avicii frumkvöðull í
rafrænni danstónlist.
lögreglumál Mikið magn síma-
gagna, upplýsingar um bílaleigu-
bíla og teikningar eru meðal sönn-
unargagna sem lögregla hefur aflað
í máli Sindra Þórs Stefánssonar sem
er á flótta, grunaður um stórfelldan
þjófnað á tölvum úr gagnaverum.
Í yfirlýsingu sem Sindri Þór sendi
Fréttablaðinu í fyrradag og fjallað
var um í blaðinu í gær, segir hann að
lögregla hafi engin sönnunargögn í
máli hans.
Gæsluvarðhaldsúrskurðir sem
kveðnir hafa verið upp í máli hans
benda þó til annars. Í úrskurði sem
kveðinn var upp 21. mars síðast-
liðinn kemur fram að mikið magn
símagagna sem rakin eru til Sindra
hafi að geyma mikilvægar upp-
lýsingar um aðdraganda og fram-
kvæmd innbrotanna. Einnig hafi við
húsleit hjá Sindra fundist teikningar
sem taldar eru af gagnaverinu sem
brotist var inn í 16. janúar.
Þá er vísað til gagna sem sögð eru
benda til þess að Sindri hafi tekið
sendibifreiðar á leigu í kringum
þann tíma sem innbrotin voru
framin. Einum þessara bíla svipar
mjög til bíls sem öryggisvörður sá,
sem hafði um tíma stöðu grunaðs
manns í málinu, benti á, þegar hann
bar vitni um menn sem krafið höfðu
hann um upplýsingar um öryggis-
kerfi í því gagnaveri sem brotist var
inn í 16. janúar.
Símagögnin sem vikið er að í
úrskurðinum eru sögð varpa ljósi
á samskipti Sindra við ætlaða sam-
verkamenn hans, sem búsettir
eru bæði hér á landi og á Spáni,
en Sindri og nokkrir félaga hans,
munu hafa fest kaup á fasteignum
þar í landi og hugðist Sindri flytjast
búferlum til Spánar áður en hann
var handtekinn og hnepptur í
gæsluvarðhald.
Þrátt fyrir að lögregla telji sig
hafa haldgóð sönnunargögn í máli
Sindra virðist hún engu nær um
verustað hinna horfnu tölva. Hinn
ætlaði þjófur er einnig týndur sem
og eigandi tölvanna, sem hefur
raunar aldrei stigið fram í dags-
ljósið. adalheidur@frettabladid.is
Segjast hafa mikið af
gögnum gegn Sindra
Vísað er til mikils magns sönnunargagna í þeim gæsluvarðhaldsúrskurðum sem
kveðnir hafa verið upp yfir Sindra Þór Stefánssyni. Símagögn, upplýsingar um
bílaleigubíla og teikningar af gagnaverum eru meðal þess sem lögreglan skoðar.
Ekki er vitað hvar Sindri þór Stefánsson er niðurkominn. Fréttablaðið/gEtty
Tími innbrota og
leigu á bílum
4. desember Sendiferðabíl
tekinn á leigu.
5. desember Innbrot í gagnaver.
7. desember Sendiferðabíl skilað.
15. desember Innbrot í gagnaver.
Síðla desember Sindri hand-
tekinn og yfirheyrður.
26. desember Tilraun til innbrots
í gagnaver.
14. janúar Sendiferðabíll tekinn
á leigu á nafni ætlaðs samverka-
manns.
15. janúar Innbrot í gagnaver.
16. janúar Sendiferðabíl skilað.
Sindri segir í yfirlýsingu
til Fréttablaðsins að hann
hafi verið í gæsluvarðhaldi
að ósekju og án allra sönn-
unargagna.
lögreglumál Sigurður Ragn-
ar Kristinsson, sem setið hefur í
gæsluvarðhaldi vegna gruns um
aðild að stórfelldum fíkniefnainn-
flutningi er laus úr varðhaldi. Hér-
aðsdómur hafnaði í gær kröfu lög-
reglu um gæsluvarðhald en féllst á
kröfu um fjögurra vikna farbann.
Rannsókn Skáksambandsmáls er
á lokastigi. Beðið er gagna frá Spáni
sem veldur því að enn hefur ekki
verið gefin út ákæra í málinu. Fjórir
hafa sætt gæsluvarðhaldi á ýmsum
stigum rannsóknarinnar. – aá
Sigurður laus úr
gæsluvarðhaldi
Hólmsheiði. Fréttablaðið/gVa
2 1 . a p r í l 2 0 1 8 l a u g a r d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
1
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
8
3
-C
1
2
4
1
F
8
3
-B
F
E
8
1
F
8
3
-B
E
A
C
1
F
8
3
-B
D
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K