Fréttablaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 12
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
VERÐ FRÁ 2.702.000 K
R. ÁN VSK
3.350.000
KR. MEÐ VSK
CITROEN.IS
CITROËN JUMPY
MODUWORK - aukið flutningsrýmiNálægðarskynjarar að aftan
Þrjár lengdir
– allt að 4 metra
flutningsrými
FJÖLHÆFUR & STERKUR
LENGDIN SKIPTIR MÁLIBAKKAÐU AF ÖRYGG
I
KOMDU & MÁTAÐU
CITROËN JUMPY Í DAG!
BJÓÐUM EINNIG REKSTRAR
LEIGU
AÐALFUNDUR
Eflingar-stéttarfélags 2018
Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags 2018 verður haldinn á Grand Hótel
fimmtudaginn 26. apríl 2018. Fundurinn hefst kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Endurskoðaðir reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofunni að
Sætúni 1/Guðrúnartúni 1 Reykjavík frá og með miðvikudeginum
18.apríl nk.
Félagar mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Eflingar-stéttarfélags
Bandaríkin Miðstjórn Demókrata-
flokksins í Bandaríkjunum hefur
höfðað mál gegn ríkisstjórn Rúss-
lands, rússnesku leyniþjónustunni
GRU, háttsettum einstaklingum úr
forsetaframboði Donalds Trump og
lekasíðunni WikiLeaks. Washington
Post sagði frá málsókninni en Demó-
kratar halda því fram að fyrrnefndir
aðilar hafi í samráði haft óeðlileg
afskipti af forsetakosningunum.
„Meðan á kosningabaráttu stóð
réðust Rússar af öllum mætti á lýð-
ræði okkar og fundu sér samstarfs-
aðila í forsetaframboði Donalds
Trump,“ sagði Tom Perez, formaður
miðstjórnar Demókrata, í yfirlýsingu
í gær.
Málið var höfðað í Manhattan.
Snýr það einna helst að því að Rússar
hafi ráðist á tölvukerfi Demókrata og
síðan dreift, með aðstoð WikiLeaks,
upplýsingum sem þaðan var stolið.
Framboðið hafi verið með í ráðum
og síðan reynt að vekja athygli á lek-
anum. – þea
Höfða mál gegn Rússum,
framboði Trumps og WikiLeaks
Spánn Euskadi Ta Askatasuna (ETA),
aðskilnaðarsamtök Baska, báðust í
afsökunar á þeim þjáningum sem
hryðjuverkaárásir þeirra í barátt-
unni fyrir aðskilnaði ollu fórnar-
lömbum sem ekki áttu ekki beina
aðkomu að átökunum. Búist er
við því að tilkynnt verði um upp-
lausn ETA á næstu vikum en sam-
tökin birtu yfirlýsingu gærdagsins
í tveimur baskneskum dagblöðum.
„Við erum meðvituð um að við
höfum valdið miklum þjáningum,
óbætanlegum skaða, í þessari löngu,
vopnuðu baráttu,“ sagði í yfirlýs-
ingunni. Að auki sögðust ETA-liðar
vilja sýna hinum látnu virðingu. „Við
viljum biðja hina særðu og önnur
fórnarlömb sem hlutu skaða af
aðgerðum ETA afsökunar.“
Á þeim rúmu fjörutíu árum sem
ETA barðist við Spánverja í Baska-
landi er talið að 343 almennir borg-
arar hafi látið lífið, þar af 23 börn. Þá
féllu einnig 387 spænskir lögreglu-
menn, 98 spænskir hermenn og einn
franskur lögreglumaður. Einnig féllu
um 200 ETA-liðar í átökunum.
Árið 2011 tilkynnti ETA að sam-
tökin myndu ekki lengur beita
vopnum í baráttunni fyrir aðskiln-
aði og var varanlegu vopnahléi
komið á. Á síðasta ári afvopnuðust
samtökin svo alfarið. Þrátt fyrir
þessi skref hefur hvorki spænska né
franska ríkið viljað eiga í viðræðum
við samtökin. Upplausnar ETA hefur
verið krafist og er afsökunarbeiðni
gærdagsins talin stórt skref í þá átt.
ETA stigu fyrst fram á sjónarsviðið
árið 1959 sem stúdentahreyfing,
andvíg alræðisstjórn Franciscos
Franco. Enda hafði Franco bannað
baskneska tungu, beitt sér gegn
baskneskri menningu og fangelsað
og pyntað baskneska fræðimenn og
aktívista fyrir skoðanir þeirra.
Samtökin gerðu fjölda árása á
sínum tíma. Vert er að minnast á
morðið á Luis Carrero Blanco, for-
sætisráðherra Francos, árið 1973,
árás á stórmarkað í Barcelona sem
kostaði 21 lífið árið 1987 og morðið
á Ernest Lluch, fyrrverandi heil-
brigðisráðherra, árið 2000.
Árásir ETA hafa rist djúpt. Eru
því ekki allir tilbúnir að fyrirgefa
ETA þótt samtökin biðjist nú afsök-
unar. Tvenn samtök fórnarlamba
hryðjuverkaárása höfnuðu afsök-
unarbeiðninni í gær. Um er að ræða
Samtök fórnarlamba hryðjuverka
(AVT) og Samband fórnarlamba
hryðjuverka (COVITE).
AVT sögðu í gær að yfirlýsing
ETA væri enn eitt skref samtak-
anna í áætlun þeirra um að firra sig
ábyrgð. ETA reyndi nú að endur-
skrifa söguna til þess að hvítþvo sig
af glæpum.
„Mér finnst þetta skammarlegt og
siðferðilega rangt. Að þau skuli gera
greinarmun á fólki sem átti skilið að
fá kúlu í hausinn og fólki sem fórst
vegna þess að það var óheppilega
nálægt sprengjum ETA og átti ekki
skilið að deyja,“ sagði Maria del Mar
Blanco, leiðtogi AVT, við fréttastofu
AFP í gær.
Hin samtökin, COVITE, voru á
sama máli. Gagnrýndu þau þessa
skiptingu ETA á fórnarlömbum
árásanna og sögðu ETA reyna að gera
lítið úr glæpum sínum.
Spænska ríkisstjórnin brást við
yfirlýsingu ETA með því að segja að
samtökin hefðu verið sigruð. Þau
hefðu hvorki pólitískt né hernaðar-
legt vægi og að þeim hefði mistekist
að öllu leyti í baráttu sinni.
„Þetta er afleiðing styrks laga og
reglu. Við höfum sigrast á ETA með
lýðræðið að vopni. ETA hefðu átt að
biðjast afsökunar fyrir löngu,“ sagði
í yfirlýsingu ríkisstjórnar Marianos
Rajoy forsætisráðherra.
Juan Ignacio Zoido, innanríkis-
ráðherra Spánar, ítrekaði í gær ákall
stjórnvalda um skilyrðislausa upp-
lausn ETA. Samtökin myndu ekki fá
neitt í staðinn fyrir að leggja niður
alla starfsemi.
Talið er að um 300 meðlimir ETA
séu nú í spænskum, frönskum og
portúgölskum fangelsum. Þá séu allt
að hundrað enn á flótta. ETA hafa
áður farið fram á að fangarnir verði
fluttir í fangelsi nær fjölskyldum
sínum eftir að starfsemi hefur verið
lögð niður. thorgnyr@frettabladid.is
Afsökunarbeiðni skref
í átt að upplausn ETA
Aðskilnaðarsamtök Baska biðjast afsökunar. Höfðu áður lagt niður vopn.
Gerðu fjölda árása og myrtu meðal annars forsætisráðherra á sínum tíma. Af-
sökunarbeiðninni hafnað. Spænska ríkið fer fram á skilyrðislausa upplausn.
ETA-samtökin hafa nú beðist afsökunar. Allt stefnir í varanlega upplausn á starfsemi ETA. NordicphoTos/AFp
Við höfum sigrast á
ETA með lýðræðið
að vopni.
Mariano Rajoy,
forsætisráðherra Spánar
2 1 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r d a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
1
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
8
3
-E
3
B
4
1
F
8
3
-E
2
7
8
1
F
8
3
-E
1
3
C
1
F
8
3
-E
0
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K