Fréttablaðið - 21.04.2018, Side 16
Dagskrá:
• Kynningar frá LSR
• Benedikt Jóhannesson flytur erindi
• Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur nokkur lög
• Kaffiveitingar
• Fyrirspurnir og umræður.
Nánari upplýsingar um fundinn
er að finna á vef LSR.
LSR heldur fund fyrir sjóðfélaga á lífeyri og maka
þeirra 24. apríl 2018 á Hilton Reykjavík Nordica,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 14:00.
Heilbrigðismál „Í allri þessari
umræðu í þjóðfélaginu um biðlista
eftir liðskiptaaðgerðum og kostnað
við aðgerðir gleymist að á bak við
biðlista er fólk sem bíður kvalið eftir
aðgerð. Biðlistar eru ekki tölur á blaði
heldur geyma þeir sjúklinga sem geta
lítið annað gert en beðið,“ segir Leifur
Á. Aðalsteinsson, 75 ára gamall Reyk
víkingur sem bíður eftir liðskipta
aðgerð á mjöðm.
Leifur er einn fjölmargra sem bíða
í íslensku heilbrigðiskerfi eftir lið
skiptaaðgerð. Liðskiptaaðgerðir
eru framkvæmdar af hinu opinbera
á Landspítalanum, á Akranesi og
á Akureyri. Einnig hefur Klíníkin í
Ármúla gert nokkra tugi aðgerða af
þessu tagi, bæði liðskiptaaðgerðir
á mjöðm og hné. Klíníkin er hins
vegar ekki með samning við Sjúkra
tryggingar Íslands um aðgerðirnar
og því tekur hið opinbera ekki þátt í
kostnaðinum við þær.
Fær viðtal í haust
Hægt er að grynnka á biðlistum með
Biðlistar eru ekki bara tölur á blaði
því að gera samning við Klíníkina um
að taka að sér fleiri aðgerðir og þannig
stytta biðtíma sjúklinga. Leifur segir
þann tíma sem hann hefur beðið
hafa reynst honum þungbær. „Ég var
búinn að vera kvalinn nokkuð lengi
áður en heimilislæknirinn minn
sótti um liðskiptaaðgerð fyrir mig
þann 4. janúar. Ég fékk svarbréf þann
23. mars frá Landspítalanum með
þeim orðum að tilvísun mín frá heim
ilislækni væri í vinnslu og ég myndi
fá bréf eftir fimm til sex mánuði frá
þeim degi um viðtal við bæklunar
lækni,“ segir Leifur.
Hann segist hafa verið nokkuð
ósáttur við þessar upplýsingar og tjáð
spítalanum að hann gæti ómögulega
beðið svo lengi eftir aðgerð. „Ég fékk
hálf kaldhæðnislegt svar frá spítal
anum þess efnis að heimilislæknirinn
yrði bara að „halda mér gangandi á
meðan“ með verkjalyfjum.“
Einangrunin erfiðust
Leifur segir þessa bið taka verulega á
sig bæði líkamlega en ekki síður and
lega. „Það eru ekki bara líkamlegar
þjáningar og verkir sem þessu fylgir
heldur margt annað sem maður
þarf að takast á við einnig,“ segir
Leifur. „Þegar þú ert svona þjáður þá
minnkar allur vilji og geta til mann
legra samskipta. Við sem erum í
þessum sporum einangrumst heima
hjá okkur og minnkum samskipti
óafvitað við vini og fjölskyldu. Það er
þessi einangrun sem verður svo erfið.“
709 sjúklingar voru á biðlista í
febrúar eftir liðskiptaaðgerð á hné
og á sama tíma voru 385 sjúklingar
í bið eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm.
Í fyrra voru 800 aðgerðir á mjöðm
gerðar hér á landi en rétt tæplega 800
hnjáliðaskipti.
Bara hugsað um kostnað
„Það gleymist líka í þessari umræðu
um biðlista eftir liðskiptaaðgerðum
að sjúklingar í bið lifa við þannig
verki að maður hættir að gera það
sem maður gerði áður. Ég fer ekki í
sund og ekki í göngutúr sem hefur
þær afleiðingar að líkaminn rýrnar og
vöðvar minnka, mótstöðuafl ónæm
iskerfisins minnkar. Þetta virðist víst
skipta ráðamenn engu máli. Þar er
bara hugsað um kostnað og biðlista.
Auðvitað viljum við ekki einangr
ast en það gerist hægt og rólega.
Maður hefur minni vilja til að hitta
vini, það hverfur einhvern veginn,“
segir Leifur. „Til að mynda tók ég
það ráð að fara í Hörpu vegna Barna
menningarhátíðar til að dást að litla
barnabarninu mínu dansa á sviðinu.
Það var æðisleg stund. En það þýddi
það að ég svaf ekkert nóttina eftir
vegna verkja. Maður vegur og metur
hvað maður gerir hverju sinni því ég
veit að verkirnir munu koma,“ bætir
hann við.
Hafi íslenskir sjúklingar beðið í
þrjá mánuði eftir aðgerð hér á landi
gefst þeim tækifæri til að fara til Sví
þjóðar í aðgerð og greiða Sjúkra
tryggingar þær aðgerðir að fullu. En
af einhverjum ástæðum er ekki vilji
til þess að gera samning við Klín
íkina um að grynnka á biðlistunum
og spara fé hins opinbera en Klíníkin
gerir aðgerðirnar fyrir um þriðjung
þeirrar upphæðar sem það kostar að
flytja sjúklingana til Svíþjóðar.
Vantar pennastrik ráðherra
Að mati Leifs er mikilvægt að sjúkl
ingar séu settir í forgang í íslensku
heilbrigðiskerfi.
„Það eru margir sem eru í sömu
sporum og ég, sem bíða eftir aðgerð
kvaldir heima hjá sér. Það þarf að
setja þessa sjúklinga í forgang. Ráð
herra hefur sagt það óásættanlegt að
fólk sé sent til Svíþjóðar í aðgerðir
sem hægt er að gera hér á landi. Ráð
herra verður hins vegar að svara því
hvernig hún ætlar að breyta því,“ segir
Leifur og hefur ákveðnar hugmyndir
um hvað sé hægt að gera.
„Þetta er í raun ofureinfalt. Það er
rétt sem kom fram hjá framkvæmda
stjóra Klíníkurinnar um að pólitískan
vilja skorti til að taka á þessum vanda.
Að mínu mati þarf ekki nema eitt
pennastrik ráðherra og þá er hægt
að ráðast á þennan biðlista og kippa
þessu í liðinn, ef svo má að orði kom
ast.“
Leifur á von á því að fá viðtal við
bæklunarlækni Landspítalans síð
sumars. Á meðan mun hann þurfa
að bíða eftir aðgerðinni.
„Ég er ekki einn í þessu. Mörg
hundruð manns bíða á sama tíma.
Þetta er lifandi fólk og stjórnmála
menn ættu að sjá sóma sinn í að huga
að því að biðlisti er ekki tala á blaði,
heldur sjúklingar í sárri neyð eftir
aðgerð.“ sveinn@frettabladid.is
Leifur Á. Aðalsteinsson
bíður eftir liðskiptaað-
gerð á mjöðm. Það tók
spítalann tvo og hálfan
mánuð að svara hvort
tilvísun hans væri mót-
tekin. Hann fær viðtal
við bæklunarlækni eftir
fjóra til fimm mánuði.
Leifur Á. Aðalsteinsson er einn fjölmargra sem bíða eftir liðskiptaaðgerð. Hann segir erfitt að einangrast í veikindum. FréttABLAðið/Eyþór
2 1 . a p r í l 2 0 1 8 l a U g a r D a g U r16 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
1
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
8
3
-B
C
3
4
1
F
8
3
-B
A
F
8
1
F
8
3
-B
9
B
C
1
F
8
3
-B
8
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
0
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K