Fréttablaðið - 21.04.2018, Síða 29
er magnað að kona á þessum aldri
fari út í þessi ævintýri.“
Máni grípur orðið: „Ímynd ömmu
í huga manns var bara eitthvað svo
stór að maður hafði einhvern veginn
aldrei áhyggjur af henni, þannig séð.
Manni fannst hún svo mikill töffari.“
Jóhanna lét sig alla tíð hag þeirra
sem minnst mega sín varða og lét
hressilega að sér kveða í góðgerðar-
málum. Hún stofnaði Fatímu sjóðinn
2005 en sjóðurinn beitti sér í upphafi
fyrir menntun stúlkna í Jemen og
síðan fyrir margvíslegri neyðarað-
stoð í Afríku og Mið-Austurlöndum.
„Hún gaf sig alla í þetta. Algjörlega.
Hún var fram á síðasta dag að vinna
í þessum málum og við ætlum að
reyna að halda starfi hennar áfram
og sjóðurinn heldur áfram,“ segir
Vera.
„Ég held að starf pabba á Græn-
landi sé innblásið af því sem amma
gerði í Jemen og víðar. Þetta sprettur
held ég af sömu innri þörfinni til þess
að láta gott af sér leiða,“ segir Máni
en hann og Joey hafa síðustu tvö árin
verið í fremstu víglínu í gleði- og góð-
gerðarferðum skákfélagsins Hróks-
ins, sem Hrafn faðir hans stofnaði
fyrir 20 árum.
Sálfræðitímar hjá ömmu
Kristjón, Vera og Máni voru mis-
mikið hjá ömmu á Drafnarstíg í æsku
en öll eiga þau sterkar minningar
þaðan og mótuðust öll að einhverju
leyti sem manneskjur innan veggja
hússins góða.
„Ég var aðallega mikið hérna á
seinni árum. Við Aþena, hundurinn
minn, litum nánast alltaf við hérna
þegar við vorum í kvöldgöngutúr-
unum okkar,“ segir Máni.
„Ég var hérna mjög mikið, bæði
þegar ég var lítil, og var mikið send
hingað að gista, og kom svo mikið
í kaffi á seinni árum,“ segir Vera.
„Fyrir mig var þetta eins og ókeypis
sálfræðitímar. Það voru alltaf tveir
stólar hérna og borð á milli og hún
settist alltaf í sama stólinn,“ bætir
Máni við og Vera tekur undir. „Ég get
sagt nákvæmlega það sama. Hún var
mjög skilningsrík. En mjög forvitin.“
„Já, mjög forvitin,“ samsinnir
Máni. „Fólk var stundum eitthvað
að hrósa mér fyrir hvað ég væri dug-
legur að sinna ömmu minni en ég
held nú að ég hafi meira verið að
gera þetta fyrir sjálfan mig heldur en
ömmu. Og ég fékk örugglega meira út
úr þessum heimsóknum. Mér fannst
virkilega gott að koma hingað.“
„Þetta voru mjög fínir sálfræði-
tímar og tíminn leið alltaf svo
hratt,“ segir Kristjón. „Maður ætl-
aði kannski að kíkja í hálftíma eða
eitthvað en endaði kannski í tvo,
þrjá tíma og fannst maður varla
vera búinn að tylla sér niður þegar
klukkan var orðin sex, sjö og hún
rak mann út til að geta horft á fréttir
eða handbolta. Það voru einu skiptin
og þá frekar handboltinn. Það voru
heilagar stundir hjá henni.“
Alltaf á flakki
Jóhanna skipulagði vinsælar hóp-
ferðir til Mið-Austurlanda. Vera seg-
ist hafa farið með ömmu sinni í heil-
margar ferðir og Máni fór með henni
til Egyptalands, Palestínu og Írans.
„Síðan kom hún í brúðkaupið
okkar á Hawaii,“ segir Máni. „Joey
var með eitthvað um 130 ættingja
þarna en ég með um það bil fimm en
amma var einn af þeim.“ Og barna-
börnin skellihlæja öll enda Jóhanna
sjálfsagt ekki minna en hundrað
manna maki í þeirra huga.
„Hún skemmti sér virkilega vel. Ég
var svolítið áhyggjufullur vegna þess
að þetta er langt ferðalag,“ heldur
Máni áfram og Joey tekur við: „Það
var ótrúlegt að hún skyldi hafa kom-
ist. Alveg frá því við sögðum henni að
við ætluðum að gifta okkur á Hawaii
fór hún í strangt aðhald, líkamsrækt,
hugaði að mataræðinu og reykti
aðeins minna. Þannig að hún var
nógu hraust til þess að fara í þetta
langa flug.“
Talandi um reykingar. Maður
hefur varla séð mynd af henni frá
ferðalögunum fyrir botni Miðjarðar-
hafs nema með sígarettu á lofti.
„Svo er það þessi mynd þar sem
hún er með snákinn. Þar er hún
með sólgleraugun, einhvern snák og
sígarettu. Þú toppar það ekkert og
fokkar ekkert í þannig ömmu,“ segir
Kristjón.
Kjarnorkukonan Jóhanna Krist-
jónsdóttir var dáð víða um land,
fyrir bóka- og blaðaskrif sín, allt
góðgerðarstarfið og síðast en ekki
síst einfaldlega fyrir stórbrotinn per-
sónuleika sinn.
Öll þrjú eru Máni, Vera og Kristjón
börn þekktra foreldra og sjálf ekki
öllum ókunnug en skuggi ættmóður-
innar er stór.
„Ég fann oft fyrir þessu og þetta
var ekki verra ef maður þurfti að
komast í náðina hjá fólki eða biðja
um eitthvað, þá fann maður alltaf
einhverja leið til þess að koma því
að að Jóhanna væri amma manns,“
segir Máni.
„Og ef þú lendir í aðstæðum þar
sem þú hefur ekkert til þess að
tala um þá geturðu alltaf bara sagt:
Jóhanna Kristjónsdóttir var amma
mín.“ Og enn er hlegið dátt í eld-
húsinu á Drafnarstíg.
Erfið veikindi
„Amma var alltaf svo mikið í útlönd-
um og þá var alltaf svo gaman að
bíða eftir því þegar hún kom heim
vegna þess að hún kom alltaf með
Toblerone og bol. Og stundum fót-
boltabúning.
Þannig að við áttum alltaf fót-
boltabúninga frá Kúveit og Jórdaníu
og eitthvað svona á meðan aðrir áttu
Þýskaland og Holland. Mann langaði
kannski meira þá að eiga hollenskan
búning en núna myndi ég svo vilja
vita hvar allir þessir búningar eru.“
Jóhanna hafði alla tíð yfirbragð
hörkutólsins og virtist hvorki bregða
sér við sár né bana en Kristjón segir
glímu hennar við krabbameinið hafa
reynt á hana. Oftast kannski meira
en hún lét uppi.
„Hún var náttúrlega svo mikill
Jóhanna í Marokkó
fyrir nokkrum
árum. Þetta verður
ekki toppað og þú
„fokkar“ ekkert í
svona ömmu.
Stofan á Drafnarstíg dregur enn dám af Jóhönnu og þarna sitja barnabörnin þar sem þau sóttu áður „sálfræðitíma“ hjá ömmu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
ÞAR ER HÚN MEÐ SÓLGLER-
AUGUN, EINHVERN SNÁK
OG SÍGARETTU. ÞÚ TOPPAR
ÞAÐ EKKERT OG FOKKAR
EKKERT Í ÞANNIG ÖMMU.
Kristjón
ÞAÐ VAR ALLT-
AF EINS OG
AÐ KOMA Í
FRAMANDI
HEIM ÞEGAR
MAÐUR KOM
TIL ÖMMU.
Vera
töffari en svo kom að því, þegar hún
var búin að vera veik lengi, að við
áttum samtöl þar sem hún sýndi á
sér veikari hlið. Þar sem hún talaði
til dæmis um að hún myndi frekar
deyja heldur en að fara í gegnum
aðra lyfjameðferð.
Það er svo vont fyrir svona konu,
sem er búin að vera úti um allan
heim, koma til dæmis heim fótbrotin
eftir að hafa verið handtekin ein-
hvers staðar á herflugvelli eða eitt-
hvað og hafa staðið í því að bjarga
lækni frá Írak. Að vera þessi goðsögn
sem er alltaf á ferð og flugi og fara svo
yfir í að geta ekki hreyft sig.“
Maður óhlýðnast ekki ömmu
sinni
Vera segist hafa notið stuðnings og
leiðbeininga ömmu sinnar þegar
hún byrjaði að vinna í útvarpinu.
„Hún hlustaði mikið, sérstaklega
þegar ég var að byrja á fréttastofunni.
Þá leiðbeindi hún mér um framsögn
og svona.“
Vera segir ömmu sína hafa verið
með alls kyns sérvisku, ekki síst hvað
málfar varðaði og hún gerði skýrar
kröfur um að Vera fylgdi málfars-
stefnu sinni frekar en þeirri opinberu
sem RÚV hefur í hávegum.
„Sádi-Arabar, til dæmis, þjóðin
sem býr í Sádi-Arabíu. Amma hataði
að talað væri um Sádi-Araba og vildi
að það væri talað um Sáda. Og þetta
varð ég að standa við og hún kom
með alveg langan fyrirlestur um af
hverju þetta ætti að vera þannig.“
„Maður fer ekki að óhlýðnast
ömmu sinni,“ segir Kristjón glott-
andi.
Saddam og Arafat uppi á vegg
Vera lagði stund á Mið-Austurlanda-
fræði og þá var oft stuð hjá þeim
Jóhönnu. „Það var auðvitað gaman
að diskútera þetta allt við hana. Hún
hafði náttúrlega sínar skoðanir. Ég
ætlaði alltaf að feta í fótspor hennar
og ætlaði til Sýrlands, til Damaskus,
í arabískunám þar eins og hún gerði.
En svo varð ekkert af því út af borg-
arastyrjöldinni sem skall þar á en ég
held enn í vonina um að ég eigi eftir
að gera þetta.“
Myndir af Saddam Hussein og
Yasser Arafat héngu í öndvegi á
veggjum á Drafnarstíg. „Jájá, Saddam,
Arafat og fleiri góðir,“ segir Máni.
Kristjón: „Töluðu þau ekki saman
í síma einhvern tímann?“
Vera: „Jú, hún talaði við Saddam
í síma.“
Blaðamaður: „Og hvað fór á milli
þeirra? Voru þau bara að ræða dag-
inn og veginn?“
Kristjón: „Þetta var þegar hún var
að bjarga Gísla lækni frá Írak.“
Jóhanna, þá blaðamaður á
Morgunblaðinu, beitti sér mjög í
baráttunni fyrir að koma Gísla Sig-
urðssyni lækni úr landi eftir að hann
varð innlyksa í Kúveit og Írak þegar
Írakar réðust inn í Kúveit í ágúst
1990. Undir lok þess árs fór hún
sjálf til Bagdad til þess að tala máli
læknisins við ráðamenn þar.
Genin láta ekki að sér hæða
Kristjón hefur skrifað bækur og
fyrir nokkrum árum byrjaði hann
í blaðamennsku, ömmu sinni til
mikillar ánægju, og ritstýrir nú DV.
En er þarna um bein áhrif frá ömmu
að ræða?
„Nei. Ég ætlaði alltaf að verða
atvinnumaður í fótbolta,“ svarar
Kristjón. „Svo klikkaði það og þá fór
ég bara að skrifa. Genin láta ekki að
sér hæða,“ segir hann háðskur.
„Við ræddum auðvitað mikið um
blaðamennsku enda er hún bara ein
merkasta fjölmiðlakona landsins og
hefur unnið með goðsögnum í þessu.
Og var sjálf goðsögn í bransanum.
Það var svo gaman að ræða við
hana um hvernig þetta var og heyra
sögur hennar af því hvernig var að
vera kona í þessum mikla karla-
heimi eins og hann var þá. Og þurfa
að horfa upp á einhverja karla valda
fram yfir hana, sem þótti bara eðli-
legt þótt hún stæði þeim kannski
miklu framar.
Það er bara svo gaman að ræða við
svona gáfað og skemmtilegt fólk svo
ég hrósi henni aðeins meira.“
↣
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 29L A U G A R D A G U R 2 1 . A P R Í L 2 0 1 8
2
1
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
8
3
-D
E
C
4
1
F
8
3
-D
D
8
8
1
F
8
3
-D
C
4
C
1
F
8
3
-D
B
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K