Fréttablaðið - 21.04.2018, Side 93
Musicians
The Akureyri Culture Society is looking to hire instrumentalists
on a one-year contract, based on projects that will be taken on
by the North Iceland Symphonic Orchestra and SinfoniaNord in
the work year 2018-2019.
This is a project-based contract for instrumentalists who will take part in concerts
given by the North Iceland Symphonic Orchestra in the work year 2018-2019 as
well as in SinfoniaNord‘s projects, which include recordings of symphonic film
scores and symphonic services for event managers, orchestras, composers and
recording managers. The extent of the contract depends on the number and nature
of projects. The salary follows the collective agreement of the Icelandic Musicians
Union (FÍH) with the Akureyri Culture Society (MAk).
Applicants should have a university degree in music and they will also have to
audition. Instrumentalists who have over the last two work years worked on a total
of 30 projects with the Iceland Symphony Orchestra, or comparable orchestras, are
exempt from auditions. The auditions will be held in Hof in Akureyri and Harpa in
Reykjavík. Further details on their arrangement will be presented later.
Applicants will be assessed on e.g. their performance in the auditions, their concert
experience, and their participation in SinfoniaNord‘s projects over the last two work
years.
The deadline for appications is June 1, 2018. Queries and applications should be
sent to SinfoniaNord@mak.is. There are no special forms for applications.
All applications will be responded to within six weeks.
Menningarfélag Akureyrar | Strandgötu 12 | Akureyri | 450 1000 | mak.is
Í HOFI
Í SAMKOMUHÚSINU
Í HOFI
Í SAMKOMUHÚSINU
Hljóðfæraleikarar
Menningarfélag Akureyrar óskar eftir
hljóðfæraleikurum á samning til eins árs vegna
dagskrár Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og
SinfoniaNord starfsárið 2018-2019.
Um er að ræða verkefnaráðningu við hljóðfæraleik á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á starfsárinu 2018 -2019 og verkefni
undir merkjum SinfoniaNord, sem felast í upptökum á sinfónískri
kvikmyndatónlist, sinfónískri þjónustu til viðburðarhaldara, hljómsveita,
tónskálda og upptökustjóra. Umfang samnings fer eftir fjölda og
eðli verkefna. Laun eru eftir kjarasamningum Félags Íslenskra
Hljómlistarmanna (FÍH) við Menningarfélag Akureyrar (MAk).
Umsækjendur skulu hafa háskólamenntun í tónlist en þurfa einnig að
undirgangast áheyrnarprufu. Hljóðfæraleikarar sem unnið hafa samtals
30 þjónustur á síðustu tveimur starfsárum með Sinfóníuhljómsveit
Íslands eða aðrar sambærilegar hljómsveitir þurfa ekki að undirgangast
áheyrnarprufu. Áheyrnarprufur fara fram í Menningarhúsinu Hofi á
Akureyri og í Hörpu í Reykjavík. Tilhögun þeirra verður kynnt síðar.
Við mat á umsækjendum verður meðal annars horft til frammistöðu í
áheyrnarprufu, tónleikareynslu almennt og þátttöku í verkefnum SN
undanfarin tvö starfsár.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2018. Fyrirspurnir og umsóknir skulu sendar
til SinfoniaNord@mak.is. Ekki eru sérstök umsóknarblöð.
Öllum umsóknum verður svarað innan sex vikna.
TónlisT
HHHHH
steingrímur Þórhallsson: Harpa
kveður dyra, tólf blik og tónar
við ljóð snorra Hjartarsonar. Kór
neskirkju söng, steingrímur Þór-
hallsson stjórnaði.
Kristskirkja
miðvikudaginn 18. apríl
„Ég er komin með vorið til þín,
vaknaðu og sjáðu.“ Þessa setningu
var að finna í kórverki eftir Stein-
grím Þórhallsson sem ber nafnið
Harpa kveður dyra, tólf blik og
tónar við ljóð Snorra Hjartarsonar.
Það var frumflutt í Kristskirkju á
miðvikudagskvöldið. Kór Neskirkju
söng, en Steingrímur er stjórnandi
kórsins.
Ljóð Snorra (1906-1986) hafa
sjaldan verið tónsett, sem er furðu-
legt, því þetta eru magnaðar nátt-
úrustemningar. Þau sem hér heyrð-
ust voru tólf talsins og var raðað
þannig að þau fóru með mann í
ferðalag úr myrkri og drunga yfir í
ljós og birtu. Verkið var enda flutt
síðasta vetrardag.
Tónlistin var falleg. Hún byggðist
á þeirri klassísku aðferð að undir-
strika merkingu hverrar ljóða-
hendingar með tónrænu líkinga-
máli. Bach var meistari í þessu,
en táknfræðin í stóru trúarlegu
tónsmíðunum hans er ótrúlega
margslungin. Seinni tíma tónskáld
hafa því miður oft fallið í gryfju til-
gerðar, nánast eins og þau séu að
troða meiningu viðkomandi ljóðs
ofan í tónleikagesti. Sú var aldrei
raunin á tónleikunum á miðviku-
dagskvöldið.
Styrkur Steingríms fólst m.a. í
laglínunum. Þær voru einstaklega
hrífandi. Vissulega voru þarna alls
konar myndræn stílbrögð líka;
nefna má þegar skáldið bað sól-
ina um að vefja „hlýjum heiðum
örmum um hug“ sér, og tónmálið
varð þétt, langar hendingar vöfðu
sig saman. Þetta var þó ekki banalt,
melódíurnar og táknmálið mynd-
uðu þvert á móti kraftmikla heild
sem var ávallt eðlileg og blátt áfram.
Steingrímur var óhræddur við
einfaldleikann. Sum ljóðin fengu að
flæða án endurtekninga, fábrotnum
valstakti brá meira að segja fyrir í
byrjun. Valsinn var viðeigandi fyrir
upphaf ferðalagsins; það voru lítil,
óheft skref sem urðu fljótlega að
erfiðri göngu um myrkrið. Er það
gerðist varð flókinn hljómagangur
og röddun áberandi. Einfaldleikinn
kom samt aftur í lokin í kraftmiklu
lagi þar sem vorinu var fagnað og
hrynjandin var í aðalhlutverki.
Lokalagið hefði að ósekju mátt
vera lengra, e.t.v. með einhvers
konar aðdraganda, enda hápunktur
verksins. Maður vildi meira!
Tónlistarflutningurinn var glæsi-
legur. Kórinn söng a capella, þ.e. án
undirleiks, ef frá er talin tambúrína,
handtromma með bjöllum, sem
notuð var til að skreyta síðasta
lagið. Kórsöngurinn var þéttur,
toppraddirnar voru prýðilega
mótaðar og innraddirnar yfirleitt
nákvæmar; bassinn vel framsettur.
Ég hef lítið heyrt eftir Steingrím
hingað til; spennandi verður að
fylgjast með honum í framtíðinni.
Jónas Sen
niðursTaða: Falleg tónsmíð,
falleg ljóð, fallegur söngur.
Vorinu fagnað í Kristskirkju
Styrkur Steingríms fólst m.a. í laglínunum, segir í dómi. Fréttablaðið/SteFán
m e n n i n g ∙ F r É T T a B l a ð i ð 49l a u g a r D a g u r 2 1 . a p r í l 2 0 1 8
2
1
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
8
3
-E
3
B
4
1
F
8
3
-E
2
7
8
1
F
8
3
-E
1
3
C
1
F
8
3
-E
0
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K