Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Side 6
6 13. apríl 2018FRÉTTIR
Tvífarar
vikunnar
T
vífarar vikunnar eru stór
söngvarinn Egill Ólafs
son og skoski leikar
inn Graham McTavish
sem fer með hlutverk Dougal
MacKenzie í sjónvarpsröðinni
Outlander. Margir hafa haft orð
á líkindunum, bæði á Twitter
og Facebook, svo ljóst er að al
mennt þyki þeir ansi líkir. Í gervi
MacKenzie ber Graham í þokka
bót forláta hálsklút, en Egill sést
einmitt ósjaldan með slíkan um
hálsinn.
Hver er
hann
n Fæddur og upp
alinn í Keflavík
n Á langan tónlistar
feril, var meðal annars í
hljómsveitunum Þú og
ég, Póker og Change
n Skartar oft myndarlegu yfirvara
skeggi
n Kynntist samstarfsmanni
sínum, Magnúsi Sigmundssyni, í
klóakvinnu
n Höfðaði mál gegn norskum
lagahöfundi vegna stuldar á laginu
Söknuður
SVAR: JÓHANN HELGASON
É
g veit ekki hvenær þeir ætla
að kippa þessu almennilega í
liðinn. Kannski þegar einhver
lætur lífið,“ segir Ágústa Krist
ín Jónsdóttir í samtali við DV. Und
ir lok árs 2016 keyrði pítsusendill
frá Domino's inn í hlið bifreiðar
hennar við Fitjar í Reykjanesbæ.
Bifreið Ágústu Kristínar var kyrr
stæð þegar áreksturinn átti sér
stað og var hún í fullum rétti. Á
vettvangi kom í ljós að pítsusend
illinn var próflaus. „Hann reyndi
ítrekað að fá mig til þess að hringja
ekki á lögguna. Að það væri brjál
að að gera og hann þyrfti að fara
aftur að vinna. Við gætum fyllt út
tjónaskýrsluna síðar,“ segir Ágústa
Kristín.
Þegar að hún lét sér ekki segjast
þá viðurkenndi hann fyrir henni
að hann væri próflaus. „Ég varð al
veg fokreið en ákvað að segja ekki
neitt fyrr en lögreglan kom,“ segir
Ágústa Kristín. Þegar laganna
verðir mættu á vettvang þá sagði
hún þeim allt af létta og í kjölfar
ið var bílstjórinn yfirheyrður. „Ég
fór síðan í skoðun á sjúkrahúsi en
ég veit ekki hvernig mál sendils
ins þróaðist,“ segir Ágústa Kristín.
Hún varð fyrir meiðslum í slysinu
sem ágerðust eftir annað bílslys
sem hún lenti í stuttu síðar og hef
ur verið óvinnufær síðan. Lög
fræðingur er að vinna í málinu fyr
ir hennar hönd.
Aldrei spurður um ökuskírteini
Í síðustu viku greindi DV frá því
að bílprófslaus sendill frá Dom
ino's hefði verið rekinn eftir að hafa
valdið tjóni á bíl sem fyrirtækið var
með á leigu. Starfsmaðurinn sagð
ist hafa sótt um og fengið vinnu
hjá fyrirtækinu og talið sig vera
að fara að baka flatbökur. Þegar
á hólminn var komið var honum
skipað að keyra veitingarnar út og
þá voru góð ráð dýr enda pilturinn
hvorki með réttindi né kunnáttu
til þess. „Ég fór inn á klósett til að
læra hvernig á að keyra beinskipt
an bíl, svo fékk ég líka hjálp frá hin
um sendlunum,“ sagði sendillinn
fyrrverandi í samtali við DV. Hann
var ráðinn af vakstjóra staðarins
og kvaðst aldrei hafa verið spurður
um ökuskírteini í því ferli. Hann var
ósáttur við þá óbilgirni fyrirtækis
ins að rukka hann um tæplega 500
þúsund krónur vegna tjónsins.
Treysta á samvisku
starfsmanna
Í skriflegu svari til DV segist Snorri
Jónsson, mannauðsstjóri Dom
ino's, ekki kannast við ofangreint
slys við Fitjar frá 2016 en tekur
fram að þýði ekki að það hafi ekki
átt sér stað. „Við lendum því mið
ur í nokkrum tjónum á ári en sem
betur fer verða sjaldan slys á fólki.
Atvikin eru að sjálfsögðu afgreidd
af tryggingafélagi okkar, ávallt,“
skrifar Snorri.
Hann sagði að ekki væri að
finna upplýsingar í skrám fyrir
tækisins um að bílprófslausir
sendlar fyrirtækisins hefðu valdið
fleiri slysum en þeim sem áður
er lýst. „Nei, það er ekki að finna
í okkar skrám en við greinum öll
tjón með tryggingafélagi okkar og
vinnum markvisst að því, meðal
annars með námskeiðum í sam
starfi við tryggingafélagið, til að
takmarka tjón og hegðun sem get
ur leitt til tjóna,“ skrifar Snorri.
Snorri segir að nýlega hafi
fyrir tækið lent í því að sendill, sem
hafði gilt ökuskírteini þegar hann
byrjaði, lét fyrirtækið ekki vita
þegar hann missti það. „Ég hafði í
kjölfarið samband við lögreglu til
að athuga hvort við gætum fengið
úr því skorið hjá yfirvöldum hvort
starfsmenn okkar hefðu enn gild
ökuréttindi en fékk þau svör að
það væri ekki hægt. Við stólum því
algjörlega á samvisku starfsmanna
um að láta okkur vita ef þeir missa
ökuréttindi sín. Við höfum fært
starfsmenn til í starfi tímabund
ið sem hafa einhverra hluta vegna
misst ökuréttindi sín og látið okkur
vita,“ segir Snorri.
Í starfsumsóknarferli fyrir
tækisins er boðið upp á að um
sækjendur skili inn mynd af
ökuskírteini sínu. „Reglan er að
biðja um ökuskírteini. Það myndi
flokkast undir mannleg mistök
ef sá sem ræður inn bílstjóra bið
ur viðkomandi ekki um að fram
vísa ökuskírteini. Eins og ég hef
áður sagt þá getum við ekki verið
viss um að starfsmaður, sem er
með ökuréttindi þegar hann byrj
ar, haldi þeim. Þar erum við orðin
háð siðferðismati starfsmannsins
og löghlýðni,“ segir Snorri. Hann
segir að starfsmenn fyrirtækisins
beri ábyrgð þegar þeir séu í um
ferðinni á þeirra vegum. „Lang
flestir standa undir þeirri ábyrgð
og eru til fyrirmyndar. Við leggjum
höfuðáherslu á að lögum sé fylgt
og fyllsta öryggis sé gætt.“ n
„Á síðustu tveimur
árum eru að
minnsta kosti tvö tilvik
þar sem bílprófslausir
sendlar fyrirtækisins hafa
valdið tjóni.
n Bílprófslaus sendill frá Domino's lenti í árekstri við Ástu Kristínu
„Reyndi að fá mig til þess
að hringja ekki á lögguna“
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Á
gúst Guðmundsson stóð
nýverið frammi fyrir því að
sitja næstu áratugi inni í al
ræmdu fangelsi í Taílandi
vegna árásar á starfsfólk verslunar
í borginni Pattaya á suðurströnd
Taílands. Svo fór ekki því hann
mútaði yfirvöldum og náði að
smygla sér til Íslands. Ágúst seg
ist í samtali við DV vera nýkom
inn heim til Íslands og má heyra
á honum að hann sé þakklátur að
vera laus.
Hann gerir ekki lítið úr glæpum
sínum en ljóst er að vistin í fang
elsinu hefur ekki verið góð. Hann
hafi lent í gengjum og innfædd
ir hafi ráðist á hann. Óhætt er að
segja að gróf mannréttindabrot
hafi átt sér stað í fangelsinu og
þurfti hann til að mynda að sofa
á gólfinu ásamt nærri 30 öðrum
föngum.
Atvikið átti sér stað síðastliðið
sumar og fjölluðu erlendir fjöl
miðlar, svo sem breska dagblaðið
Daily Mail, um það. Ágústi var
neitað um afgreiðslu á áfengi
sem varð til þess að hann beitti
piparúða á starfsmennina og stal
sígarettum og freyðivíni. Atvikið
náðist á upptöku og birtu taí
lenskir miðlar hana á netinu.
Aðstoðarverslunarstjórinn lýs
ir atburðarásinni á þessa leið: „Við
sáum hann á rölti fyrir utan búð
ina. Síðan kom hann inn og bað
um fá að kaupa áfengi. Hann var
dónalegur og við létum hann vita
að við mættum ekki selja honum
áfengi á þessum tíma dags. Hann
brást illa við og spreyjaði á okkur.
Mig sveið í augun, þetta var virki
lega sárt. Við höfðum samband
við lögregluna sem brást skjótt við
og handtók hann.“
Ágúst segir að árásin hafi verið
framin í algjöru ölæði og hann sjái
mikið eftir henni. „Ég átti að fá 20
til 30 ára dóm, lágmark 20 ára, en
mér tókst að komast út úr landi
með mútum. Félagar mínir náðu
að borga tryggingargjaldið tveim
ur vikum áður en ég átti að mæta
fyrir dóm. Ég komst í samband
við mann sem er snillingur í því
að koma fólki út úr landi. Hann
bara mútaði yfirlögregluþjóni og
landamæraeftirlitinu og ég náði
að komast í burtu,“ segir Ágúst.
Hann segist nú vera stórskuldugur
þar sem frelsið kostaði hann um
þrjár milljónir króna. „Ég skil
ekki hvernig ég fór að þessu, bæði
heppni og tilviljun.“ n
hjalmar@dv.is
Smyglaði sér úr landi og slapp við áratuga dóm
Ótrúlegur flótti Ágústs Guðmundssonar úr fangelsi í Taílandi