Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Síða 8
8 13. apríl 2018fréttir M æðgurnar Ingibjörg Helga Halldórsdóttir og Arna Sjöfn Ævars dóttir hafa báðar upplifað vanmátt gagnvart réttarkerfinu, með einungis tveggja mánaða millibili. Í lok seinasta árs hlaut fyrrverandi eiginmaður Ingu, Ævar Freyr Eðvaldsson, tólf mánaða fangelsisdóm, þar af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir gróf ofbeldis brot gegn henni. Í niðurstöðu dómsins koma fram hroðalegar lýsingar á verknaði Ævars en hann ýtti Ingibjörgu meðal annars inn í skáp og hótaði að brjóta á henni andlitið.  Tveimur mánuðum síðar féll dómur yfir 21 árs göml- um karlmanni í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir kynferðis- brot gegn Örnu þegar hún var á barnsaldri. Maðurinn  vingaðist við Örnu árið 2015 á viðkvæm- um tíma í lífi hennar. Hann mis- notaði traust hennar og fékk hana til að eiga við sig mök en hún var þá 14 ára gömul og maðurinn 18 ára. Héraðsdóm- ur taldi rétt að dæma hann í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni. Mæðgurnar gagnrýna báð- ar meðferðina á brotaþolum í dómskerfinu en þær standa þétt saman í gegnum erfiðleikana. Hótaði að brjóta á henni andlitið DV ræddi við Ingibjörgu Helgu í marsbyrjun. Ævar Freyr var, sem fyrr segir, dæmdur fyrir kynferðis lega áreitni, líkams árás, húsbrot, hótanir, ærumeiðingar og ólögmæta nauðung en þarf þó í mesta lagi að sitja í fangelsi í þrjá mánuði, haldi hann skilorð. Ákæran gegn Ævari Frey var í mörgum liðum og varðaði fjöl- „Munum komast í gegnum þetta“ Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is „Hann ýtti Ingibjörgu meðal annars inn í skáp og hótaði að brjóta á henni andlitið. Mæðgurnar Ingibjörg og Arna eru báðar brotaþolar:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.