Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Page 12
12 13. apríl 2018FRÉTTIR
K
eflvíkingurinn Magni
Böðvar Þorvaldsson hefur
játað að hafa myrt Sherry
Prather þann 12. október
árið 2012. Hún var 43 ára þegar
hún hvarf í Jacksonville í Flórída
og lýst var eftir henni. Magni
Böðvar sem er 43 ára situr í fang-
elsi í Bandaríkjunum. Hann var
handtekinn fyrir tveimur árum og
lýsti þá yfir sakleysi sínu. Þá tjáði
unnusta hans, Sara Hatt, sig við
íslenska fjölmiðla og kvaðst trúa
á sakleysi hans. Einnig stofnuðu
börn og unnusta Magna Face-
book-síðu og biðluðu til yfirvalda
um að láta föður þeirra lausan.
Sherry Prather var 43 ára þegar
Magni drap hana en gátan leystist
ekki fyrr en sex árum síðar þegar
Magni loks játaði að hafa myrt
hana. Árið 2012 fundust líkams-
leifar í skógi við Jacksonville sem
erfitt reyndist að bera kennsl á en
ljóst var að dýr höfðu leikið líkið
grátt.
Eftir nákvæmar rannsóknir
kom í ljós að líkið var af hinni
43 ára gömlu Sherry Prather
sem hafði verið saknað í mánuð.
Niðurstaðan var að hún hefði
verið drepin með skotvopni og
morðinginn hæft hana í brjóstið.
Sara var
tveggja barna móðir og hafði far-
ið út á lífið með vinkonum sínum
hið örlagaríka kvöld. Hún fannst
31 einum degi eftir að lýst var eft-
ir henni.
„Ég leitaði hennar á hverj-
um degi,“ sagði móðir hennar,
Norma Ellis. „Ég sagði við alla
sem vildu heyra: „Ég mun aldrei
gefast upp fyrr en ég finn þig
barnið mitt. Þú ert barnið mitt og
ég er staðráðin í að þú fáir frið og
hvíld áður en ég hrekk upp af.“ Ég
meinti hvert orð.“
Magni var fyrst yfirheyrður
skömmu eftir að lík konunnar
fannst. Sést hafði til þeirra yfir-
gefa krá saman þann 12. október
og sást á eftirlitsmyndavélum að
hún hafði fengið far með Magna
á bifhjóli hans. Við yfirheyrslur
viðurkenndi Magni að hafa gef-
ið henni far en neitaði að hafa
skaðað hana. Yfirvöld tóku út-
skýringu Magna trúanlega og
var honum sleppt að lokn-
um yfirheyrslum. Árið
2012 steig eitt vitni fram
og sagði Magna bera
ábyrgð á morði Sherry
og fjórum árum síðar
steig fram vitni með
mikilvægar upp-
lýsingar en um
var að ræða
fyrrverandi
eiginkonu
MAGNI
JÁTAR
MORÐ
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
n Dæmdur í 20 ára fangelsi n Skaut fórnar-
lambið í hjartað n Tvær fjölskyldur syrgja
Seinasta
sólarlagið sem
Magni sá sem frjáls
maður.