Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Page 22
22 13. apríl 2018FRÉTTIR GAGNLEGAR UM GRÆNAN LÍFSSTÍL Lífgaðu upp á heimilið með plöntum sem gefa af sér allan ársins hring Lærðu að nýta birtu og rými sem best Myndræn og einföld fram- setning Allt um hefðbundna og lífræna ræktun Hvað er unnt að rækta, hvar, hvenær og hvernig Ræktun á svölum, í beðum og gróðurhúsum Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is Opið alla virka daga 10–19 | Laugardaga 11–16 LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA F yrirhugaður fyrirlestur breska aðgerðasinnans Tommys Robinson sem átti að verða í Salnum í Kópa­ vogi þann 18. maí hefur verið tek­ inn af dagskrá Salarins og kippt úr miðasölu á Tix.is. Tommy Robin­ son er umdeildur vegna baráttu sinnar gegn íslamisma og hefur þurft að eyða miklu púðri í að verjast ásökunum um rasisma. Hann er engu að síður afar vin­ sæll og á mörg hundruð þúsund stuðningsmenn. Það eru samtökin Vakur og nokkrir einstaklingar utan þeirra sem standa að komu Tommys Robinson til Íslands. Er verið að leita að öðru húsnæði til að hýsa væntanlegan fyrirlestur Englendingsins, en ljóst er að Tommy kemur ásamt fylgdarliði sínu (til dæmis kvikmyndatöku­ manni) til Íslands um miðjan maí. Salurinn hefur gefið þá einu skýringu á ákvörðun sinni að misskilningur hafi orðið innan­ húss við bókun viðburðarins. Sigurfreyr Jónasson, talsmaður Vakurs, telur ákvörðunina eiga sér pólitískar ástæður, en hópur vinstri sinnaðs fólks á landinu er mjög andsnúinn komu Tommys Robinson til Íslands og telur mál­ flutning hans vera hættulegan. Í tölvupósti sem Sigurfreyr sendi Aino Freyju Jarvela, for­ stöðumanni Salarins, í fyrradag, segir meðal annars: „Ef þetta verður ekki dregið til baka og miðasalan kominn aftur í gang í dag, sé ég ekki aðra leið en að krefjast skaðabóta og fara í mál. Þú getur ekki hætt þegar búið var að ganga frá öllu. Salurinn var sjálfur búinn að skrá þetta inn í kerfið hjá sér og Tix.is. Miðasalan hafði verið í gangi í a.m.k. 3 klst.“ DV sendi Aino fyrirspurn vegna málsins sem hún svaraði: „Það kom því miður upp misskilningur í bókun á þessum degi sem uppgötvaðist ekki fyrr en um leið og viðburðurinn var kominn í sölu. Þegar misskiln­ ingurinn kom í ljós var viðburð­ urinn snarlega tekinn úr sölu og viðkomandi beðnir velvirðingar. Salurinn er tónleikahús sem býð­ ur upp á hágæða tónlist á Íslandi og hefur enga pólitíska afstöðu.“ DV sendi Aino aðra fyrir­ spurn og bað um frekari skýringu á ákvörðuninni, það er ef hún væri ekki pólitísk, hver væri þá ástæðan. Aino svaraði: „Þetta er misskilningur sem varð hér inn­ anhúss og í sjálfu sér ekkert meira um það að segja.“ Sem fyrr segir er Tommy Robin­ son afar umdeildur vegna baráttu sinnar gegn öfgasinnuðum íslam­ istum á Bretlandi. Hefur hann verið sakaður um fordóma gegn múslímum sem hann sver af sér og segir að gera verða greinarmun á múslímum og íslam. Hann for­ dæmir hins vegar trúarbrögðin ís­ lam og pólitíska hugmyndafræði þeirra og hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir það. Tommy hefur lýst yfir ánægju með að vera boðið til Íslands og segist hlakka til koma til landsins. n Sparkað úr Salnum í Kópavogi Tommy Robinson n „Munum krefjast skaðabóta og fara í mál“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.