Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Side 34
13. apríl 2018KYNNINGARBLAÐVorverkin
Heiti potturinn
og allt fyrir hann
Laugin ehf. hefur starfað frá árinu 2012 og er í dag einn helsti sölu- og þjónustuaðili í heitum
pottum og skyldum vörum. Jafn-
framt býður Laugin ehf. upp á alhliða
viðgerða- og viðhaldsþjónustu fyrir
eigendur allra heitra potta og sund-
lauga, gildir einu hvar pottarnir hafa
verið keyptir. Viðgerðar- og viðhalds-
vinnu sinna eingöngu fagmenn en
hjá fyrirtækinu starfa pípulagninga-
meistari og rafeindavirki.
Laugin sinnir víðtækri þjónustu fyrir
einka- og almenningssundlaugar
með hreinsiefni, dælur, sandsíur,
varahluti og fleira, jafnframt því að
sinna breytingum og viðhaldsvinnu
fyrir sundlaugar.
Laugin býður upp á gott úrval fylgi-
og varahluta í flestar gerðir potta,
meðal fylgihluta má nefna: Tröppur,
lokalyftur, síur, hitamæla, háfa, klór-
skammtara, fljótandi glasabakka og
ýmislegt fleira. Og meðal varahluta
eru t.d. dælur, hitaelement, barkar,
nuddstútar, kúlulokar og margt fleira.
Úrvalið er mikið og fróðlegt að
skoða það í vefversluninni á laugin.is
eða í versluninni sjálfri að Smiðjuvegi
4. En hér er vert að nefna annars
vegar hina rómuðu heitu potta Cald-
era Spas frá Bandaríkjunum. Þetta er
eitt þekktasta merkið í bransanum og
hafa pottarnir verið fáanlegir á íslandi
í hátt í 15 ár, en þeir voru áður seldir í
Byko. Caldera Spa-pottarnir eru mjög
hátt metnir í erlendum fagritum.
Laugin
býður upp á
mikið úrval
hreinsiefna en
þar ber helst
að nefna Aqua
Finesse Hot
Tub, um-
hverfisvæna
hreinsiefnið
frá Special
Water Europe.
Vinsældir Aqua
Finesse stafa
af því hversu
árangursríkt
og einfalt það
er í notkun.
Góð umhirða
og viðhald eru
mjög mikil-
vægir þættir
fyrir góða
endingu heitra
potta. Ef þú
hefur verið að
eignast heitan
pott eða ert
ekki alveg klár
á hvernig best er að sinna umhirðu,
þá er hægt að kíkja við í Lauginni eða
bara hringja og fá ráðgjöf.
Laugin rekur öfluga vefverslun á
vefsvæðinu laugin.is sem kemur sér
vel fyrir þá sem búa á landsbyggð-
inni og geta keypt sér á netinu heita
potta, rekstrarvörur og varahluti
á hagstæðu verði, og ef þeir eru á
ferðinni í Kópavogi er um að gera
að kíkja við og versla og fá góð ráð
í kaupbæti. Flestir viðskiptavinir
fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu
koma hins vegar í verslunina og gera
sín innkaup þar og fá í leiðinni góða,
faglega ráðgjöf.
Meðal umboða: Caldera Spas,
Fantasy Spas, Aqua Finesse, Bayrol,
Pleatco, Waterway, ACC, Procopi,
Poolmaster, o.fl.
Laugin er sem fyrr segir til húsa að
Smiðjuvegi 4 og er opið virka daga
frá kl. 9 til 17.30.