Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Qupperneq 38
 13. apríl 2018KYNNINGARBLAÐVorverkin Fyrir alllöngu síðan bjó Steinar Smári Guðbergsson með fjölskyldu sinni á sveitabæ. Honum blöskraði músa- og köngulóa- mergðin á heimilinu og tók að halda ófögnuðinum í skefjum með mein- dýravörnum. Efni sem aðgengileg eru almenningi nægðu ekki í þessi verk og því leitaði Steinar sér menntunar á sviði meindýravarna. Allt frá árinu 2005 hefur hann starfað sem mein- dýraeyðir og starfsemin er í sífelldri þróun en fyrirtæki hans ber heitið Meindýraeyðir Íslands ehf. Margir vita ekki að starf mein- dýraeyðis snýst ekki bara um að farga fyrirliggjandi meindýrum heldur einnig að sinna forvörnum: „Fyrir- tækjum í matvælageiranum, bæði þeim sem framleiða og framreiða mat, ber skylda til að vera með mein- dýraeyði á samningi sem setur upp meindýravarnir og heldur uppi eftirliti, sem miðar að því að halda meindýr- um frá framleiðslu fyrirtækja. Það er réttur neytandans að neysluvaran sé sem best á allan máta,“ segir Steinar. „Margir Íslendingar hugsa sjálf- krafa að ef minnst er á meindýraeyði þá sé eitthvað að. En það er alls ekki þannig. Forvarnirnar eru einn mikilvægasti þáttur í starfinu. Ef þú ert með meindýraeyði þá þýðir það að þú sért með hlutina í lagi. Þú ert að fyrirbyggja að meindýr komist í matinn sem þú ert að framleiða eða framreiða fyrir neytandann.“ Starfsemin er því tvíþætt, annars vegar tilfallandi útköll og hins vegar meindýraeftirlit og forvarnir. „Það eru ekki endilega bara matvælafyr- irtæki og veitingastaðir sem þurfa á svona forvörnum og eftirliti að halda. Flugfélög, skólar, stofnanir og margs konar önnur fyrirtæki sem eru með viðkvæman og dýran búnað þurfa líka að fá eftirlitsþjónustu hjá mein- dýraeyði til að koma í veg fyrir að nagdýr skemmi leiðslur og þess hátt- ar. Hótel og gististaðir hafa einnig þurft að eiga við veggjalús (bed bugs) og eru því oft með Mein- dýraeyði Íslands á hraðvali í síman- um sínum.“ Almenn- ingur getur líka þurft á forvörnum meindýraeyð- is að halda: „Til dæmis er ágætis vani að láta eitra húsnæðið sem fólk ætlar að flytja í, því það veit ekki hvaða óæskilegu sambýlingar bíða spenntir eftir því. Einnig er sniðugt að láta meindýraeyði eitra á nýja staðnum, sérstaklega ef mein- dýra varð vart á gamla staðnum, því það kemur í veg fyrir að meindýrin sem flytjast með, nái sér á strik í nýja húsnæðinu.“ Óvelkomnum gestum fer fjölgandi Steinar Smári segir að skordýrum hafi fjölgað hér á landi, bæði í tegundum og magni, með aukn- um fjölda ferðamanna. „Veggjalús hefur fjölgað mikið, sem fyrir segir. Kakkalökkum hefur líka fjölgað og það er reglulega hringt í mig út af þeim. Þá hafa bæst við gestir sem hafa jafnvel ekki fengið íslenskt nafn enn- þá. Fyrir ekki löngu fannst hér í fyrsta skipti svokallaður „ghost ant“ og fékk heitið draugamaur,“ segir Steinar. Enn fremur hefur köngulóm fjölgað á Íslandi, sérstakleg krossköngulónni, en með hlýrra veðri og auknu skjóli frá stærri trjágróðri hefur henni fjölg- að mikið. „Það eru 84 tegundir af köngulóm á Íslandi. Hins vegar eru geitunga tegundirnar bara tvær, holugeitungur og trjágeitungur. Holugeitungurinn er minni en búin þeirra eru stærri og þeir eru mun árásargjarnari,“ segir Steinar Smári og kveður síðan niður al- genga bábilju um köngulær: „Það er oft sagt að þar sem mikið sé um köngulær sé lítið um flugur. En þar sem ég kem til að eitra fyrir köngulóm er yfirleitt mikið um flugur líka, það fara nefni- lega ekki allar flugur í vefina. Og svo þegar úðað hefur verið fyrir köngulónum þá hverfa flugurnar líka því eitrið virkar líka á þær.“ Rottur upp úr röri Það gefur auga leið að meindýraeyð- ar lendi í mörgu eftirminnilegu og stundum er það tengt rottugangi. Steinar segir okkur eina slíka sögu. „Þar sem eldri hús eru liggja oft rör frá þakrennum niður að jörðu og stingast svo ofan í gömlu steyptu rörin sem notuð voru mikið hér áður fyrr. Oft fer álrörið neðan úr rennunni að ryðga og tærast og steypurörið molnar, þá myndast gat sem rottur komast upp úr. Á einu heimili voru tveir Bengal-kettir og þeir ákváðu að gleðja húsbændur sína með því að draga fjórar spriklandi rottur inn í hús. Húsbændunum leist hins vegar ekki betur en svo á gjöfina að þeir hringdu í ofboði í meindýraeyðinn! Þegar ég hafði náð veiði kattanna, fór ég að kanna ástæður þess af hverju þessi ófögnuður hafði borist inn. Þar sem mig grunaði að fráfallsrör frá þak- rennu væri ástæðan ásamt veiðigleði kattanna, fór ég út fyrir til að kíkja á, grunur minn reyndist réttur því ég sá tvo aðra ketti sem biðu við rörið, tilbúnir að hremma meiri bráð sem upp úr gatinu kæmi.“ – Var strax farið í það að setja fyrir gatið. Góður tækjabúnaður og óreglulegur vinnutími Meindýraeyðir Íslands leggur metnað sinn í að hafa ávallt nýjasta og besta tækjabúnað sem til er á markaðnum og er því ávallt vel tækjum búinn, ásamt því að halda menntun sinni við og fylgjast með öllum nýjungum á sviði meindýravarna hjá einstakling- um og fyrirtækjum. „Sem dæmi um tól sem ég þarf að beita eru til dæmis gufubyssa, hita- byssa og skammbyssa annars vegar og hins vegar alls konar ferómón, gildrur og límspjöld. Límbúnaðurinn er á undanhaldi og ég beiti honum bara í neyð og þá undir stöðugu eftirliti. Ég er með mjög góðar dælur til notkunar bæði inni og úti.“ Eins og nærri má um geta er vinnutími meindýraeyðis mjög óreglu- legur en í grundvallaratriðum má segja að Steinar sé alltaf til taks: „Ég loka nú oftast ellefu eða tólf á kvöldin. En ef það er neyðartilvik, til dæmis rotta í svefnherberginu, þá kem ég á vettvang á hvaða tíma sólarhringsins sem er. En það er óþarfi að bregðast það hratt við ef þú sérð silfurskottu, því það þarf meiri undirbúning ásamt því að enginn má vera inni við án öndunargrímu.“ Nánari upplýsingar eru á vefsíð- unni www.eydir.is og í síma 897- 5255. Einnig er hægt að finna Mein- dýraeyði Íslands á Facebook. Steinar Smári Guðbergsson er Meindýraeyðir Íslands
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.