Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Qupperneq 44
 13. apríl 2018KYNNINGARBLAÐVorverkin Þegar samstarfið við Litla-Hraun hófst var nokkur ver-kefnaskortur á verkstæðinu þar og var þessu tekið fagnandi. Þáverandi fangelsisstjóri, Margrét Frímannsdóttir, var mjög jákvæð gagnvart þessu og fangarnir hafa sinnt þessu af ástríðu; þeir leggja mikið upp úr því að gera þetta vel og að bekkirnir endurspegli fagmennsku og gott handbragð,“ segir Dagný Bjarnadóttir, landslagsarkitekt hjá DLD, en garðbekkir hennar undir vörumerkinu FANG eru stórmerk hönnun sem annars vegar hefur umhverfisverndarsjónarmið og hins vegar samfélagsleg markmið um at- vinnuþátttöku fanga að leiðarljósi. „Hönnunin hefur að markmiði að nýta betur skógarefnivið sem til fellur og hins vegar að skapa atvinnu og verkþekkingu í fangelsum. Þetta nafn, FANG, er skammstöfun á Fram- leiðsla afurða úr nytjaskógi í grennd. Það vísar líka í framleiðslustaðinn fangelsi, en ekki síður til faðmlags, að taka eitthvað í fangið og umfaðma það, sem maður óskar að sé gert við fangana og umhverfið,“ segir Dagný. Nokkuð annarri nálgun er beitt við hönnun þessara garðbekkja en vanalega tíðkast við gerð sambæri- legra skógarbekkja: „Margir kannast til dæmis við bekki sem eru hálfur trjábolur og þess háttar. Í hönnun Fang-bekkjanna er leitast við að vinna út frá efniviðnum og fram- leiðslumöguleikum verkstæðanna á Litla-Hrauni, þar sem einfaldleiki og auðlært framleiðsluferli skiptir máli. Í hönnuninni er dregið fram náttúru- legt form efnisins með því að tefla því á móti öguðum og stílhreinum formum, með því móti næst spenna og dýnamík þar sem efniviðurinn fær notið sín til fulls. Við reynum að nýta efnið eins vel og hægt er, ef ég fæ nógu góðan trjábol get ég sagað hann í tvennt og notað báða helm- ingana í efnivið. Ég læt tréð halda forminu að neðanverðu, sem gerir hvern bekk einstakan, þannig verða engir tveir bekkir nákvæmlega eins. Þeir standa á stálfótum sem eru pólýhúðaðir og hægt er að bolta þá niður. Bekkurinn er fljótur að þorna þar sem vel loftar á milli borðanna. Í dag eru tvenns konar bekkir í fram- leiðslu, Drumbur, sem er beinn bekk- ur, og Sveifla, sem er í boga.“ Segja má að gerð bekkjanna sé samvinnuverkefni Dagnýjar, skóg- ræktarfélaganna á Suðurlandi og vistmanna á Litla-Hrauni: „Skóg- ræktarfélögin höggva viðinn og saga til efnið. Lokastig framleiðslunnar á sér stað á Litla-Hrauni, þar eru bekkirnir settir saman og fullkláraðir. Aðalhandverkið fer fram þar en hitt er aðallega skógarvinnsla. Fæturnir eru þó oftast aðkeypt vinna.“ Helstu kaupendur að bekkjunum hafa verið sveitarfélög en almenning- ur kaupir einnig þessa bekki því þeir fara vel í garðinum eða við sumar- bústaðinn. „Svo spillir ekki fyrir að engir tveir bekkir eru eins því form trésins ræður útlitinu, því er hver og einn bekkur sérstakt handverk,“ segir Dagný. Fang-bekkina má nú sjá víða. Ný- lega voru þeir notaðir á útsýnisstað við Goðafoss, þá má finna í Vatns- mýrinni, í Hellisgerði í Hafnarfirði, á leiksvæðum á Klambratúni og við Árbæjarskóla, svo eitthvað sé nefnt. Fljótlega verða settir upp bogabekkir af þessu tagi við veitingastað í endur- gerðum bragga í Nauthólsvík. Fang- bekkirnir falla vel að umhverfinu hvort sem það er borgarlandslag eða við náttúruperlur landsins. Auk bekkjanna fæst DLD teiknistofa við margs konar verk- efni á sviði landslagsarkitektúrs, frá skipulagsgerð til ýmiss konar hönnun- ar, og hefur stofan hlotið margs konar verðlaun á sínu sviði. Nánar má lesa um bekkina og verksvið DLD og fleira um framsækna hönnun Dagnýjar, á vefsíðunni dld.is. Einnig er fésbókar- síðan fangutihusgogn með myndir af bekkjunum við ýmsar aðstæður. Bekkirnir eru framleiddir eftir pöntun og er hægt að hafa samband við Dagnýju í gegnum samskiptaleið á vefsíðunni. FANG-GARÐBEKKIR Falleg hönnun úr íslenskum skógar- við með atvinnuþátttöku fanga
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.