Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Síða 46
46 sport 13. apríl 2018
1. sæti
Valur
Spámenn 433.is spá því að Valur muni endurheimta Ís-
landsmeistaratitil sinn í sumar en liðið vann deildina
með yfirburðum í fyrra. Valsmenn hafa ekki gert neitt
annað í sumar en að styrkja liðið sitt. Liðið hefur feng-
ið landsliðsmanninn Birki Má Sævarsson í sínar raðir
og þá kom Kristinn Freyr Sigurðsson heim úr atvinnu-
mennsku, hann var besti leikmaður Pepsi-deildarinn-
ar sumarið 2016. Valsmenn eru liðið sem þarf að vinna
í sumar og yrði það í raun ótrúlegt ef það ynni ekki
deildina með þennan leikmannahóp.
Lykilmaður - Haukur Páll Sigurðsson
X-faktor - Ólafur Karl Finsen
Þjálfari - Ólafur Jóhannesson
Komn ir:
n Birk ir Már Sæv ars son
n Krist inn Freyr Sig urðsson
n Ívar Örn Jóns son
n Ólaf ur Karl Fin sen
n Sveinn Sig urður Jó hann es son
n Tobi as Thomsen
Farn ir:
n Nicolas Bögild
n Sindri Scheving
n Orri Sig urður Ómars son
n Haukur Ásberg Hilmarsson
2. sæti
FH
Það eiga sér stað í fyrsta sinn í mörg ár gríðarlegar
breytingar á liði FH en Heimir Guðjónsson var rekinn úr
starfi síðasta haust eftir magnað starf í Kaplakrika. Heim er
mættur Ólafur Kristjánsson sem starfað hefur í Danmörku
síðustu ár. Ólafur er að setja saman nýtt lið og það gæti tek-
ið eitthvað inn í sumarið að hlutirnir smelli saman, ef mið
skal taka af frammistöðu og úrslitum FH. FH er með valinn
mann í hverju rúmi og getur vel blandað sér í baráttu um
þann stóra. FH hefur fengið til sín tíu leikmenn í vetur og
átta af þeim gætu farið strax inn í byrjunarliðið, það segir
allt um þær breytingar sem eru í Krikanum.
Lykilmaður - Davíð Þór Viðarsson
X-faktor - Zeiko Lewis
Þjálfari - Ólafur Kristjánsson
Komnir:
n Edigerson Gomes Almeida (Láni)
n Viðar Ari Jónsson (Láni)
n Zeiko Lewis
n Rennico Clarke
n Egill Darri Makan
n Geoffrey Castillion
n Guðmundur Kristjánsson
n Hjörtur Logi Valgarðsson
n Kristinn Steindórsson
n Rennico Clarke
Farnir:
n Böðvar Böðvarsson
n Bergsveinn Ólafsson
n Kassim Doumbia
n Matija Dvornekovic
n Emil Pálsson
n Guðmundur Karl Guðmundsson
n Jón Ragnar Jónsson
n Hörður Ingi Gunn ars son
n Veigar Páll Gunnarsson
3. sæti
Kr
Rúnar Kristinsson er mættur heim í Vesturbæinn og við
það verða kröfurnar þar á bæ talsvert meiri en síðustu
sumur. Rúnar vann magnað starf í Vesturbænum áður
en hann hélt út fyrir rúmum þremur árum. Rúnar starf-
aði í Noregi og Belgíu en er nú mættur heim, hann þarf
að byggja upp nýtt KR-lið að miklu leyti. Nokkrir sterk-
ir bitar hafa yfirgefið KR í vetur en þar mun mest muna
um Tobias Thomsen, hann gekk í raðir Vals. KR náði
í Kristin Jónsson sem mun styrkja varnar- og sóknar-
leik liðsins og þá hefur liðið fengið tvo erlenda leik-
menn. Pablo Punyed gekk í raðir KR frá ÍBV en þar var
hann í tvö ár án þess að sýna sínar bestu hliðar. Það
gæti reynst erfitt fyrir KR að berjast um titilinn í ár en ef
Rúnari tekst snemma að skrúfa liðið saman er allt hægt.
Lykilmaður - Óskar Örn Hauksson
X-faktor - Kennie Chopart
Þjálfari - Rúnar Kristinsson
Komn ir:
n Al bert Wat son
n Djor dje Panic
n Björg vin Stef áns son
n Kristinn Jónsson
n Pablo Punyed
n Atli Sig ur jóns son
Farn ir:
n Michael Præst
n Robert Sand nes
n Stefán Logi Magnús son
n Tobi as Thomsen
n Guðmund ur Andri Tryggva son
n Indriði Sigurðsson
4. sæti
Stjarnan
Stjarnan er orðið stórt félag í íslenskri knattspyrnu og kröf-
urnar eru miklar í Garðabæ, liðið er þó að margra mati
ögn slakara en síðustu ár. Stjarnan hefur lítið styrkt lið sitt
í vetur og fengið tvo leikmenn frá Víkingi Ólafsvík sem
féll úr Pepsi-deildinni í fyrrasumar. Liðið missti Hólmbert
Aron Friðjónsson út í atvinnumennsku en hann var mik-
ilvægur hluti af leikstíl liðsins. Stjarnan er hins vegar með
sterkt byrjunarlið sem getur á góðum degi keppt við Val og
önnur af stærri liðum deildarinnar. Rúnar Páll Sigmunds-
son, þjálfari Stjörnunnar, hefur fengið mikinn tíma með
liðið en frá því að það varð Íslandsmeistari árið 2014 hefur
það lítið gert í toppbaráttu Pepsi-deildarinnar.
Lykilmaður - Guðjón Baldvinsson
X-faktor - Guðmundur Steinn Hafsteinsson
Þjálfari - Rúnar Páll Sigmundsson
Komn ir:
n Guðjón Orri Sig ur jóns son
n Þor steinn Már Ragn ars son
n Guðmund ur Steinn Haf steins son
n Terr ance Dieterich
Farn ir:
n Ágúst Leó Björns son
n Dag ur Aust mann Hilm ars son
n Máni Aust mann Hilm ars son (Láni)
n Ólaf ur Karl Fin sen
n Sveinn Sig urður Jó hann es son
n Hólm bert Aron Friðjóns son
5. sæti
BreiðaBliK
Ágúst Gylfason er mættur í brúna í Kópavogi og það
koma ferskir vindar með honum. Blikar hafa virk-
að ferskir í vetur og koma Olivers Sigurjónssonar á
dögunum getur komið liðinu í baráttu um Evrópu-
sæti. Tímabilið í fyrra var vonbrigði fyrir Breiðablik þar
sem Arnar Grétarsson hóf tímabilið sem þjálfari en var
rekinn í upphafi móts og Milos Milojevic tók við starf-
inu, honum tókst ekki að breyta því sem stjórn Breiða-
bliks taldi að þyrfti að breyta. Ágúst Gylfason hefur ekki
breytt hryggjarsúlunni í liði Blika mikið en Jon ath an
Hendrickx verður hægri bakvörður liðsins en sú staða
var til vandræða í Kópavogi í fyrrasumar.
Lykilmaður - Gísli Eyjólfsson
X-faktor - Sveinn Aron Guðjohnsen
Þjálfari - Ágúst Gylfason
Komn ir:
n Jon ath an Hendrickx
n Arn ór Gauti Ragn ars son
n Guðmund ur Böðvar Guðjóns son
n Oliver Sigurjónsson (Láni)
Farn ir:
n Páll Ol geir Þor steins son
n Þórður Steinar Hreiðarsson
n Hlynur Örn Hlöðversson (Láni)
n Guðmundur Friðriksson
n Sólon Breki Leifsson
n Ernir Bjarnason
n Kristinn Jónsson
n Martin Lund Pedersen
n Dino Dol magic
6. sæti
Ka
Gula liðið frá Akureyri var nýliði í Pepsi-deild karla
í fyrra og þrátt fyrir að vera með öflugan mannskap
fékk liðið smá afslátt í gagnrýni vegna þess. Sr djan
Tufegdzic, þjálfari KA, þarf hins vegar að skila góðum
árangri í sumar; stjórnar- og stuðningsmenn KA gera
kröfur. Liðið hefur fengið til sín Hallgrím Jónasson úr
atvinnumennsku og með Guðmanni Þórissyni eiga þeir
að búa til bestu varnarlínu landsins. KA er með lið til
að blanda sér í baráttu um Evrópusæti en eins og hjá
nokkrum öðrum liðum mun það ráðast af meiðslum
og leikbönnum en hópurinn er ekki ýkja breiður. Eru
með einn besta leikmann deildarinnar í Hallgrími Mar
Steingrímssyni
Lykilmaður - Hallgrímur Jónasson
X-faktor - Hallgrímur Mar Steingrímsson
Þjálfari - Sr djan Tufegdzic
Komn ir:
n Mil an Joksimovic
n Hall grím ur Jónas son
n Sæþór Ol geirs son
n Cristian Martín ez
Farn ir:
n Almarr Ormars son
n Bjarki Þór Viðars son
n Davíð Rún ar Bjarna son
n Dar ko Bulatovic
n Emil Lyng
n Vedr an Tur kalj