Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Síða 52
52 LÍFSSTÍLL - KYNLÍF 13. apríl 2018
H
ún dregur mjúka og ör-
þunna sokkana hægt og ró-
lega upp legginn og festir
vandlega við sokkaböndin
á tveimur stöðum. Þegar hún
sleppir bandinu heyrist lítill smell-
ur og hún finnur kulda málmsins
við lærið. Korsettið passar ná-
kvæmlega utan um líkama henn-
ar og þrýstir brjóstunum upp á við.
Þegar hún hefur hert reimina að
aftan finnst henni eins og líkam-
inn fyllist nýjum tignarleika. Dropi
af ilmolíu á hálsinn, og menið
hennar langömmu. Kjóllinn er lát-
laus en nær rétt niður fyrir hné og
hælarnir praktískir. Hún burstar
tennurnar og mætir á hárréttum
tíma í heimilisfræðistofuna. Sex
tímar í kennslu framundan, eftir
það kvöld með elskhuganum.
Bling … þarna kom fyrsta sms-ið
frá honum: „í hverju ertu beibí?“.“
Heimilisfræðikennarinn ævin-
týragjarni í frásögninni hér að
framan er dæmi um konu sem
ákvað að klæðast einhverju kyn-
þokkafullu þó svo að fundurinn
með elskhuganum hæfist ekki fyrr
en að vinnudegi loknum. Hafa
ber í huga að dæmið er fullkom-
lega uppdiktað og tengist engum
heimilisfræðikennara beinlínis,
hvorki lifandi né látnum.
Leyniþokki í vinnunni
„Mér finnst fátt jafnast við að
klæða mig upp fyrir nánar stund-
ir,“ segir vinkona mín sem á mögu-
lega tilkomumesta undirfatasafn
sem ég hef augum litið. Hún er
ekki heimilisfræðikennari. „Áður
en ég fór að njóta þess að klæða
mig í kynþokkafull undirföt fannst
mér það algjör sóun bæði á orku
og peningum. Ég skildi ekki hvers
vegna það ætti að vera góð hug-
mynd að eyða miklum tíma í að
klæða mig í eitthvað sem búið væri
að rífa mig úr á fyrstu fimm mínút-
um ástarleiksins. Svo fór þetta að
snúast um eitthvað miklu meira
en að vera í nærbuxum og haldara
í stíl, svona ef kona skyldi lenda í
slysi eða þurfa að hátta sig óvænt
í dagsins amstri.“ Eitt af því sem
þessi vinkona mín elskar er að
klæðast svokölluðum „stay-up“-
sokkum í vinnunni. Hún vinn-
ur á virðulegri skrifstofu þar sem
dragtir og jakkaföt eru staðalbún-
ingar starfsmanna. „Að fara í há-
degismat með stífum vinnufélög-
um og láta „óvart“ glitta í eldrauða
sokkabandabeltið þegar sest er
til borðs er alltaf jafn gaman. Svo
skrepp ég á klósettið og sendi
elskhuganum mynd af lærunum
eða brjóstaskorunni.“ Hún segir
að þetta hafi orðið stærri og stærri
hluti af sambandi hennar við sjálfa
sig ekki síður en sambandinu við
elskhugann. Á þennan hátt daðr-
ar hún við sjálfa sig, og hefur lært
að láta sér þykja vænt um líkama
sinn. Tvennt olli straumhvörfum;
þokkafull myndataka hjá fagljós-
myndara og burlesque-námskeið
í Kramhúsinu hjá Margréti Erlu
Maack. „Eftir áratugi af óánægju
með líkama minn fékk ég hrein-
lega nóg. Ég fann að ég var alltaf
að fela mig og bæla niður gyðj-
una innra með mér. Ég trúi því að
það geti verið heilsuspillandi rétt
eins og slæmt mataræði eða hreyf-
ingarleysi. Núna er gyðjan komin
út og ég reyni að sinna henni eins
vel og ég get. Til dæmis með því að
undirbúa mig fyrir deit með því að
liggja í baði með hvítvínsglas, hafa
mig til í silkislopp og klæða mig
í eitthvað sem mér sjálfri finnst
kynþokkafullt. Svo er kærastinn
bara heppinn að fá að taka þátt!“
Kynþokki fundinn í myndatöku
Hildur Heimisdóttir, ljósmyndari
hjá Bombshell by Hildur Heimis,
hefur sérhæft sig í svokölluðum
Boudoir-myndatökum þar sem
hún myndar ósköp venjulegar
konur í óvenjulega kynþokka-
fullum stellingum og klæðnaði.
Hildur segir að í flestum tilfellum
komi það konunum sjálfum á
óvart hversu þokkafullar þær
reynast. „Þær koma yfirleitt sjálf-
ar með föt sem þær fíla vel, flíkur
sem þeim finnst draga fram kyn-
þokkann. Svo fá þær meðferð hjá
fagmanneskjum, bæði förðun og
hár, og auðvitað myndatökuna
sjálfa. Aðalkikkið kemur svo þegar
þær fá að skoða myndirnar og átta
sig á að þær eru mun meira sexí en
þær héldu.“ Áður en myndatakan
fer fram er Hildur búin að spjalla
við hina verðandi fyrirsætu um
hvað hún sjái fyrir sér. „ Konurnar
mínar hafa yfirleitt ansi skýrar
hugmyndir um hvernig þær vilja
láta mynda sig og engar tvær tök-
ur eru eins.“ Hildur lærði ljós-
myndun og starfaði lengi í París,
en hún hefur líka lokið diplóma-
námi við HÍ í kynfræði. „Þannig
kviknaði áhugi minn á því hvern-
ig hægt er að tengja ljósmyndun
og líkamsímynd kvenna. Það er
svo algengt að konur séu óánægð-
ar með sig, og það virðist alls ekki
tengjast stærð eða kílóafjölda.
Í gegnum svona myndatöku er
hægt að vinna í sjálfsmyndinni og
sjá sjálfa sig í nýju ljósi. Við vinn-
um með líkamann og kynþokk-
ann og hver kona fær að njóta sín
og vera miðpunktur athyglinnar.
Fallegar myndir, í fallegum undir-
fötum, snúast ekki
um tælingu, held-
ur það að fagna
kvenleikanum.“
Stolt og
kynþokki
Við tjáum svo
margt með líkama
okkar og klæðn-
aði. Orð eru öflug,
en við getum ekki
síður sent skilaboð
til umhverfisins án
þeirra. Önnur vin-
kona mín nýtur
þess að taka eftir því
hvernig áhrif hún
hefur á umhverf-
ið með því hvernig
hún velur að klæða
sig. „Mér finnst gott
að geta stjórnað því
hvernig viðbrögð ég
fæ eftir því hvernig
ég klæði mig. Stund-
um vil ég bara vera
í gollu og gammos-
íum og læðast með veggjum en
stundum vil ég láta taka eftir mér
og þá fer ég í eitthvað þröngt og
helst passlega flegið, set á mig
varalit og geri eitthvað töff við hár-
ið á mér og geng svo um eins og
eigi allt og alla. Sem virkar því þá
fæ ég allt og alla.“
Það sem er utan á okkur getur
nefnilega smitast inn á við … Það
er mikill kraftur í því að finna fyr-
ir stjórn á umhverfinu, en þetta
hefur ekki alltaf verið svona auð-
velt hjá vinkonu minni. „Þegar ég
var yngri þá fannst mér ég ekki
geta stjórnað því hvernig var horft
á mig, stundum þegar ég vildi
athygli fékk ég hana ekki og svo
þegar ég var alls ekki í stuði þá
þurfti ég stundum að berja fólk af
mér. Núna kann ég betur á þetta.
Það er nefnilega ótrúlegt hvað
það getur breytt miklu hvernig
kona ber sig, klæðir og málar.
Samt aðal lega hvernig hún ber sig.
Kona sem er stolt af líkama sínum,
sama hvernig hann er í laginu, er
alltaf sexí.“
Mæltu kvenna heilust kæra
vinkona! Málið snýst sko ekki um
kíló eða lögun líkamans. Viðhorf
konunnar og ást hennar til sín
sjálfrar felur í sér töfrana! n
Gyðjunni hleypt út
Ragnheiður Eiríksdóttir er
hjúkrunarfræðingur og kynlífsráðgjafi
hjá Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni,
Hamraborg 11
RAGGAEIRIKS@ASM.IS
RAGGAEIRIKS.COM
Ragnheiður Eiríksdóttir
skrifar
n Undirföt og þokki í daglega lífinu n „Í hverju ertu beibí?“
„Á þennan hátt
daðrar hún við
sjálfa sig, og hefur lært
að láta sér þykja vænt
um líkama sinn.
„Þegar hún hefur
hert reimina að
aftan finnst henni eins
og líkaminn fyllist nýjum
tignarleika.
Hildur
Heimisdóttir