Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Síða 70
70 FÓLK 13. apríl 2018
A
llir fjórir meðlimir íslensku
rokkhljómsveitarinnar
Kaleo hafa verið hand-
teknir á alþjóðaflugvelli
Los Angeles fyrir tilraun til smygls
á 20 kílógrömmum af kókaíni sem
var falið í tveimur kaffipokum.“ Svo
hljóðar inngangur „fréttar“ á vefn-
um fox-news24.com. Þar er fullyrt
að fíkniefnin hafi fundist í fórum
Rubins Pollock gítarleikara en öll
hljómsveitin hafi verið handtekin
vegna rannsóknarhagsmuna.
Til allra lukku fyrir unnendur
hljómsveitarinnar er þetta fals-
frétt. Líkt og sjá má á Instagram-
síðu hljómsveitarinnar ganga
meðlimir hennar lausir, en
myndinni hér fyrir neðan var deilt
í gær. Síðan sem „fréttin“ birtist
á er ótengd Fox News. Til marks
um að hún dreifi falsfréttum þá er
ekki hægt að deila slóð síðunnar í
skilaboðum á Facebook. Á vefsíð-
unni Factcheck.org er fox-news24
á lista yfir þekkta falsfréttamiðla.
Í stuttu skriflegu samtali var
ekki að heyra á Rubin að fals-
fréttin hafi valdið honum áhyggj-
um. „Nei, mér fannst þetta mjög
fyndið, en elsku mamma hringdi í
mig í áfalli,“ sagði Rubin.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Íslendingur verður skotspónn fals-
frétta. Grínistinn Helgi Steinar
Gunnlaugsson varð fyrir því á
dögunum að falsfrétta-
miðilinn Global News
greindi ranglega frá því að
hann væri látinn. Í samtali
við Vísi hafði Helgi húmor
fyrir þessu og sagði: „Ég
skil ekki hver hvatinn á
bak við þetta er og get ekki
séð hvernig þeir eiga að
geta fengið peninga út úr
þessu eins og í „Nígeríu-
svindlum“ svokölluðum. Ef ein-
hver úr fjölskyldu minni hefði séð
þetta þá hefði dugað að hringja í
mig til að afsanna þetta.“ n
„ELSKU MAMMA
HRINGDI Í ÁFALLI“
n Allir meðlimir Kaleo ranglega sagðir glæpamenn
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„A dyslexic man walks into a bra“
Ef þú þyrftir að breyta, hvað myndirðu
vilja heita annað en Jógvan eða vera
annað en söngvari? Ég mundi helst vilja
vera húsasmiður.
Hverjum líkist þú mest? Systur minni, er
mér alltaf sagt.
Í hverju finnst þér þú vera betri en aðrir?
Ég hef aldrei fundið neitt!
Ef þú þyrftir að eyða 100 þúsund kalli
á klukkutíma, í hvaða verslun færirðu?
Blómabúð. Ég elska blóm.
Sex ára barn spyr þig hvort jólasveinninn
sé til. Hvernig svarar þú? Að hann sé til og
verði það alltaf.
Ef þú mættir velja eitt lag sem yrði alltaf
spilað um leið og þú gengir inn í herbergi allt
þitt líf, hvaða lag myndirðu velja? Moon River.
Hvaða lag hefðir þú viljað hafa samið?
My Heart Will Go On.
Hvaða lag skammastu þín mest fyrir að
hafa haldið upp á? Eiginlega ekkert held ég.
Ef þú þyrftir að dansa til að bjarga lífinu,
undir hvaða lagi myndirðu vilja dansa? Sway.
Hvað ætti ævisagan þín að heita? Set
the Sails.
Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast?
300.
Hvað var í tísku þegar þú varst yngri
en er það ekki lengur? Turkish Lewis
gallabuxur.
Yfir hverju getur þú alltaf hlegið?
Prumpubröndurum frá systur minni.
Borðarðu mat sem er kominn fram yfir
síðasta söludag? ÖHHH ja!
Heilsarðu frægum Íslendingum úti á
götu, þótt þú þekkir þá ekki persónu-
lega? Já, ekki spurning.
Hvaða ósið hefur þér reynst erfiðast að
hætta? Nikótínnotkun.
Hverju laugstu síðast? Ég þori ekki að
segja það hér.
Um hvað geta allir í heiminum verið
sammála? Að lífið er stutt.
Hvað í hegðun hins kynsins ruglar þig
mest? Guð, hvar á ég að byrja. Gæti skrifað
heila bók um það.
Á hvern öskraðirðu síðast? Börnin mín í
morgun, því miður.
Hvaða einstakling finnst þér þú þekkja, þótt
þú hafir aldrei hitt hann? Abraham Lincoln.
Hvað er það merkilegasta sem hefur
gerst í heiminum á þínum líftíma?
Turkish Lewis gallabuxur.
Hvaða hljóð fer mest í taugarnar á þér?
Vekjaraklukkan.
Hvaða frægu persónu leistu upp til en
sérð eftir því í dag? Bill Cosby.
Hvaða viðburð sérðu mest eftir að
hafa misst af? Michael Jackson History
tónleikunum í Kaupmannahöfn árið 1998.
Átti miða en fór ekki.
Hver er lélegasti fimmaur sem þú hefur
heyrt? A dyslexic man walks into a bra.
Hver er versta vinnan sem þú hefur
unnið? Hnýta króka í taumana sem fara á
línu.
Í hvaða íþróttagrein finnst þér að kepp-
endur ættu að leika ölvaðir? Fótbolta
ekki spurning.
Ef þú yrðir handtekinn án skýringa, hvað
myndu vinir þínir og fjölskylda halda að
þú hefðir gert af þér? Hvað varstu að gera
af þér í þetta skiptið drengur ?
Hvaða teiknimyndapersónu myndirðu
vilja eiga sem vin? Andrés Önd.
Hvað ættu allir að prófa að minnsta
kosti einu sinni í lífinu? Að búa í öðru
landi. Það er svo hollt fyrir manneskju að
upplifa hvernig það er að byggja sig upp.
Hvað myndirðu segja ef Guð hnerraði?
Gaman að heyra í þér.
Ef þú myndir borða sjálfan þig, hvort
myndirðu hverfa eða tvöfaldast?Tvö
faldast.
Ef þróunarkenningin er rétt, af hverju
eru svín þá ekki með vængi? Þetta er
náttúrlega bara spurning um tíma.
Nú labbar mörgæs með kúrekahatt inn
um dyrnar hjá þér. Hvað segir hún og
af hverju er hún þarna? Má ég bjóða þér
að kaupa happdrættismiða ? Við erum að
safna fyrir utanlandsferð.
Ef þú værir ritstjóri dagblaðs og sama
daginn myndi Lagarfljótsormurinn
finnast, Frikki Dór vinna Eurovision fyrir
Íslands hönd og Donald Trump vera
myrtur. Hver væri stærsta fyrirsögnin í
blaðinu þínu daginn eftir? Allt á uppleið.
Ef þú kæmir einn daginn heim úr vinnunni
og þar væri enginn nema Geir Ólafsson í
sturtu, myndirðu hringja í lögregluna? Nei,
ég mundi taka lagið með honum.
Hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi?
Ást.
Hvað er framundan um helgina? Dean
Martin og Frank Sinatra tónleikar í Salnum
Kópavogi.
Færeyski söngfuglinn Jógvan Hansen hefur svo sannarlega sjarmerað
sig í hug og hjörtu landsmanna og er í dag einn af okkar vinsælustu
söngvurum. Jógvan gaf sér tíma í æfingum fyrir tónleika Dean Martin
og Frank Sinatra til að sýna lesendum DV á sér hina hliðina.
HIN HLIÐIN