Fréttablaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 16
Með valkvíða
og ekki sérlega spennt
Sigríður Jónsdóttir
Sigríður er leigubílstjóri og bíður
eftir næsta kúnna við Hallærisplan-
ið. Hún virðist ekki sérlega spennt
eða uppveðruð yfir kosningunum.
„Æi nei. Ég veit það ekki. Þetta er
svo mikið framboð, skilar þetta
einhverju? Maður er bara með
valkvíða. Ég fer og les þetta yfir og
kynni mér þetta betur.“
Leyndarmál Ráðhússins vel geymd
Borgarbúar sem urðu á leið blaðamanns og ljósmyndara í gönguferð í miðborginni degi fyrir kosningar voru misjafnlega spenntir fyrir
sveitarstjórnarkosningum í ár þótt flestir ætluðu sér að mæta í kjörklefann. Götusóparinn Örn Karlsson var hins vegar svo feikilega
spenntur að hann var að hugsa um að gera sér ferð á kjörstað degi fyrr. Og gott ef hann lumaði ekki líka á leyndarmálum úr Ráðhúsinu.
Fréttablaðið/Sigtryggur ari
SveitarStJórnarkoSningar 2018
Húsnæðismálin
ráða valinu
Seweryn
Vorverkin eru hafin um alla borg.
Seweryn er að snyrta trjárunna á
Klambratúni og gefur sér nokkrar
mínútur í spjall við „Ég kýs í Reykja-
vík, á ekki mína eigin íbúð og sé
ekki fram á að eignast hana án þess
að það verði breytingar. Húsnæðis-
málin skipta mestu máli,“ segir
hann.
lítið fylgst með
Hjalti Þórisson og Daníel
Sigurðsson
„Nei, ég er nýfluttur til landsins, hef
búið úti síðustu ár. Ég ætla ekki að
kjósa,“ segir Hjalti. Þeir Daníel spila
frisbígolf á Klambratúni og grípa
þannig lausa stund frá vinnu í smá
sólarglætu. „Ég hef lítið fylgst með
og hef ekki myndað mér skoðun,
ætli ég renni ekki yfir þetta í kvöld
og geri upp hug minn,“ segir Daníel.
kristinn Pétursson
Kristinn er í gönguferð með ungum
syni sínum sem fær nafn á sunnu-
daginn,
„Hann er kallaður Kenglúri, að
minnsta kosti þangað til á sunnu-
daginn,“ segir Kristinn með bros á
vör.
Já, ég ætla að kjósa. Ég var einmitt
að segja það við konuna mína hvað
ég er búinn að vera óvenju skoð-
anaóglaður. Ég hef ekki sett einn
staf um kosningarnar á Facebook.
Ég er félagi i Bjartri framtíð sem er
því miður deyjandi afl og hef tekið
þátt í kosningabaráttu, eigum við
ekki að segja að mig vanti lið til að
halda með. Ég mun velja næstbesta
kostinn en fer ekki í þetta af sömu
ástríðu og áður. tilbúinn að kjósa
Sæmundur óskarsson
Sæmundur starfar í matarvagni í
miðbænum. Hann er ekki kominn
með aldur til að kjósa en segist
rammpólitískur. Hann gengi glaður
til kosninga ef kosningaaldurinn
væri lægri. „Ég hef sterkar skoðanir á
borgarpólitík, ég myndi kjósa Fram-
sókn. Er alfarið á móti borgarlín-
unni og það þarf breytingar í þessari
borg. Ingvar er flottur leiðtogi.“
Enga skoðun
á baráttunni
Ásta Sóley Hilmisdóttir
Ásta Sóley er á hlaupum í mið-
bænum. „Ég er auðvitað ekki komin
með aldur. En annars þá hef ég lítið
orðið vör við kosningaumfjöllun
og hef því eiginlega enga skoðun á
kosningabaráttunni.“
Veit öll leyndarmál
ráðhússins
Örn karlsson
„Ég er götusópari, mér finnst gaman
að leysa verkefni sem enginn annar
vill leysa,“ segir Örn sem er á ferð-
inni við Ráðhús Reykjavíkur með
fullar hjólbörur af drullu.
„Ég náttúrulega gjörþekki þessa
borg. Ég vil engar breytingar. Ég vil
kjósa Dag alla daga. Ég er svo hrika-
lega spenntur að ég vil eiginlega
bara kjósa strax í kvöld,“ segir hann
degi fyrir kosningar.
„Ég er nánast elsti starfsmaður-
inn hér við Ráðhúsið. Ég veit öll
leyndar málin og er sko alveg tilbú-
inn að segja ykkur þau ekki!“ segir
hann og skellir upp úr.
„Ég er búinn að vinna með mörg-
um borgarstjórum. Dagur er nánast
bestur. Báðir læknarnir voru góðir
líka.
Ég heilsaði alltaf Jóni Gnarr
með því taka af mér höfuðfatið og
hneigja mig djúpt og segja: góðan
daginn herra borgarstjóri. Honum
fannst þetta fyndið. En á þriðja ári
fannst honum það ekkert fyndið.
Hann Jón Gnarr lagði sig fram um
að gera ekki neitt. Enda lofaði hann
því. Eiginlega bara sem betur fer
gerði hann ekkert. Sjálfstæðis-
lítill áhugi
nökkvi guðbjörnsson
Nökkvi vinnur í verslun við Hall-
ærisplanið sem selur vökva og
ýmsan búnað í rafrettur. „Æi, ég hef
haft voða lítinn áhuga. Ætli pabbi
píni mig ekki til að kjósa. Áhuginn
er bara lítill og það er ekkert sem
höfðar til mín.“
Ekki viss um að komast
anna Baranovski
Dauf stemning og enginn fókus
Ásmundur Helgason
menn eru alltaf að fara út á land að
finna sér stjórnmálamenn til að fara
fram í borginni. Frá Selfossi, Ísafirði.
Ætlast þeir til að við kjósum þetta
lið?“ spyr Örn sem reyndi eitt sinn
að eigin sögn að bjóða sig fram í
borgarstjórnmálin. „Ég reyndi, ég er
hægri krati og fór í framboð. Bjarni
Pé og Bryndís Schram komust inn.
Ég sást ekki á listanum. Ég veit ekki
af hverju. En hlutskipti mitt sem
götusópari er bara ágætt. Það er svo
gaman að lifa. Ég geri samt mjög
leiðinlega hluti. En fólk er ánægt
með mig.“
Vantar lið til að halda með
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Anna er að verðmerkja jólakúlur
í verslun við Hallærisplanið sem
selur jólaskraut. „Ég er frá Ungverja-
landi og ætla ekki að kjósa. Þótt ég
geti það. Ég vil vera laus við þetta
stress, ég gæti samt tekið upp á því.
En þyrfti þá að kynna mér málin vel
í kvöld. Ég vinn svo mikið, ég þarf
líka að skoða hvað kjörstaðir eru
opnir lengi.“
Ásmundur er á leiðinni á Póst-
húsið og gefur sér nokkrar mínútur
í spjall um kosningabaráttuna og
stemninguna. „Það er ekki mikil
stemning. Það er dauft yfir þessu. Í
fyrsta lagi eru alltof mörg framboð,
fjölmiðlar ráða ekki við að fjalla um
þau. Svo eru öll sveitarfélögin líka,
það er enginn fókus. Það er enginn
fókus í Reykjavik. Þá neyðist maður
til að fara í gegnum auglýsingar. En
það er líka lítið um þær. Eina sem
maður veit er að manni finnst ein-
hver asnalegur en annar ekki. Fyrir
utan það að maður sér engan mun á
þessu. Það er kannski helst borgar-
línan. En ég kýs alltaf, ég er samt
ekki búinn að ákveða mig. “
2 6 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R16 f R é t t i R ∙ f R é t t a B L a ð i ð
2
6
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
4
4
s
_
P
1
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
A
-0
B
2
C
1
F
E
A
-0
9
F
0
1
F
E
A
-0
8
B
4
1
F
E
A
-0
7
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K