Fréttablaðið - 26.05.2018, Page 32
Vinstri græn
Hótel Borg-
Karólínustofa
Píratar
Bíó Paradís
Öllum
er boðið!
Kosningavökur verða haldnar víða
á höfuðborgarsvæðinu í kvöld.
Sparsamur borgarbúi gæti auð-
veldlega gengið á milli veisluhalda
og þegið léttar veitingar og drykki.
Framsókn
Hótel Marina
Sjálfstæðisflokkur
Grand hótel
Viðreisn
Hótel Holt
Flokkur fólksins
Jörgensen Kitchen & Bar
Miðflokkurinn
Hótel Natura
Miðflokkurinn
Hótel Natura
Höfuðborgarlistinn
Laugavegi 176
Gamla sjónvarpshúsið
Samfylkingin
Austurbæjarbíó
og Catalína
Þarf að hugsa í
lausnum
Framsóknarflokkurinn –
Ágúst Guðmundsson
Eftirminnilegast er í raun
þessi eldmóður og sam-
staða sem einkennir
flokkinn. Hér hefur verið
unnið langt fram á kvöld
síðastliðnar vikur og allir í
stuði. Hjá Framsókn eru allir
tilbúnir til að leggjast á eitt
til að niðurstaðan verði góð.
Hjá okkur í Framsókn
eru engin vandamál. Við
leysum öll okkar verkefni af
yfirvegun og fagmennsku
og svoleiðis hefur það verið
í þessari kosningabaráttu.
Stemningin er svaka-
lega góð og andinn innan
flokksins frábær.
Að vera kosningastjóri er
mjög svo fjölbreytt starf svo
vægt sé til orða tekið. En
lykilatriðið er sennilega að
vera skipulagður, geta unnið
með fólki, hugsa í lausnum
ekki vandamálum og hafa
gaman af starfinu. Það hefur
verið auðvelt enda fram-
bjóðendur okkar mjög svo
frambærileg og metnaðar-
gjörn í að standa sig vel fyrir
fólkið í borginni.
Sveigjanleiki Barbapabba
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
– Anna Lísa Björnsdóttir
Ég vakna um sjöleytið og hlusta á
morgunrútínuna hjá börnum og eigin-
manni. Eftir sturtuna strýk ég þeim og
kveð, og kippi með chia-grautnum sem
ég fæ mér í morgunmat á fyrsta fundi
dagsins.
Á leið minni á morgunfund kíki ég
oftast við í einn kaffibolla á Kaffi Vest og
næ í oddvitann minn hana Líf Magneu-
dóttur, ef hún gengur eða hjólar ekki.
Dagarnir eru mjög fjölbreyttir og
annasamir, eftir morgunfund reyni ég
eftir fremsta megni að koma öllum í
stellingar fyrir verkefni dagsins, og svo
rígheld ég í taumana langt fram eftir
kvöldi.
Dagurinn verður stútfullur af stuði og
annríki. Hlutverk mitt í dag snýst fyrst og
fremst um að halda utan um allt skipu-
lag sem fylgir kjördegi og vera í sam-
bandi við fjölmiðla og koma atkvæðum
í hús. Halda utan um viðveru frambjóð-
enda og muna að vera glöð og reif!
Þetta hefur hingað til verið meira og
minna allt fyndið og skemmtilegt, enda
skemmtilegur hópur frambjóðenda og
allra þeirra sem að framboðinu standa.
En ef ég á að tiltaka eitt atvik, þá ber
hæst upptöku myndbandsins „Stjórn-
málaskóli Vinstri grænna“. Við hlógum
svo mikið að þetta ætlaði engan enda
að taka.
Þeir eiginleikar sem góður kosninga-
stjóri þarf að búa yfir eru: Glaðlyndi,
yfirvegun, sveigjanleika, færni í sáluhjálp
og Excel – og mjög góður endingartími á
símabatteríi.
Að halda í alla þræði, og vera alls
staðar öllum stundum – og ná að
bregðast við breytingum sem koma upp
á með stuttum fyrirvara, en sem betur
fer las ég Barbapabba sem barn og hef
tileinkað mér sveigjanleika þeirrar góðu
fjölskyldu.
Allt í háalofti
Samfylkingin – Ragna Sigurðardóttir
Ég hef verið að skjótast í pallborð hér og þar,
ýmist sem kosningastýra eða frambjóðandi! Ég
er mikið á hlaupum og það er aldrei lognmolla.
Fyndnasta atvikið var þegar við vorum að
mála lógó-ið okkar utan á kosningamiðstöðina
í byrjun maí, þá skiptust á skúrir og haglél með
sólskini inni á milli. Við reyndum að nýta okkur
sólardagana vel en á einum tímapunkti þurftum
við að hlaupa út og líma plastpoka yfir lógó-ið
til að reyna að bjarga því frá éljunum. Málningin
lak og lak og á endanum fauk plastpokinn. Þarna
fór allt bókstaflega í háaloft en okkur tókst þó
að lokum að laga málninguna þegar sólin skein
nógu lengi – og gátum hlegið mikið eftir á.
Það erfiðasta var líklega að koma inn í nýjan
flokk og nýtt starf samtímis. Strax frá upphafi
voru vinnudagarnir langir og verkefnin mörg auk
þess sem ég var að kynnast miklu af nýju fólki á
skömmum tíma. Ég þurfti að vera fljót að koma
mér inn í öll mál og í samskipti við lykilfólk í
starfinu en nú þegar kosningadagur er runninn
upp get ég sagt að ég þekki vel bæði málefnin og
fólkið sem er alveg yndislegt. Þegar margir koma
saman til að vinna að einu sameiginlegu mark-
miði á svona skömmum tíma kynnist maður því
á alveg einstakan hátt og það er kannski eitt það
besta við kosningabaráttuna.
Kosningastjóri þarf að vera með mikið
jafnaðargeð en líka hæfileika til að hrinda
hlutunum hratt í framkvæmd. Kosningastjóri
þarf líka að hafa getu til að sætta sjónarmið og í
einhverjum tilvikum þarf kosningastjóri að geta
sagt nei. Þá er mikilvægt að kosningastjóri haldi
sig fast við áætlun. Síðan þarf kosningastjóri
auðvitað að geta andað djúpt þó mikið álag sé,
brosað framan í erfiðleikana og haft gaman!
Anna Lísa í hópi Vinstri grænna félaga sinna, við hlið
Katrínar Jakobsdóttur.
Ágúst hefur unnið langt fram á kvöld undanfarið fyrir Framsóknarflokkinn.
Það gekk illa að mála utan á kosningamiðstöð Samfylkingarinnar. Ragna er hér fyrir miðju.
2 6 . m A í 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R32 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð
2
6
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
A
-3
C
8
C
1
F
E
A
-3
B
5
0
1
F
E
A
-3
A
1
4
1
F
E
A
-3
8
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K