Morgunblaðið - 07.12.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
21. desember í 11 nætur
um jólin
FUERTEVENTURA
Síðustu
sætin!
Stökktu
Frá kr.
159.995
m/allt innifalið
Frá kr.
187.295
m/allt innifalið
Frá kr.
159.445
m/allt innifalið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Jarðhitinn er enn þá til staðar og
það sýnir að það er langt í frá eðli-
legt ferli þarna. Þetta er ekki ein-
stakur atburður,“ segir Ármann
Höskuldsson eldfjallafræðingur um
stöðuna í Öræfajökli. Þrívíddar-
mynd sem sérfræðingar á Jarðvís-
indastofnun Háskóla Íslands hafa
gert bendir til að sigketillinn í
öskju jökulsins hafi dýpkað um
rúma 20 metra frá því fljótlega eftir
að hann sást fyrst og til 28. nóv-
ember og sprungur aukist.
Stóraukið sprungumynstur
Þrívíddarmyndin er gerð eftir
ýmsum upplýsingum, ekki síst ljós-
myndum Ragnars Axelssonar, ljós-
myndara Morgunblaðsins, sem
flaug yfir jökulinn 19. nóvember og
aftur 28. nóvember. Vísindamenn
áætluðu að sigketillinn væri um 22
metrar á dýpt og um kílómetri í
þvermál við fyrra flugið en tvöfalt
dýpri við það seinna. „Við sjáum
stóraukið sprungumynstur í kring-
um ketilinn. Hann er nú meira
dropalaga en hringlaga, það er að
segja ílangur til suðvesturs,“ segir
Ingibjörg Jónsdóttir, dósent við
jarðvísindadeild Háskóla Íslands,
sem vann að gerð þrívíddarlíkans-
ins. Hún segir að fleiri sprungu-
hringir sjáist nú við barm sigketils-
ins. Þá nái sprungurnar upp í
gegnum skafla sem myndast hafa á
milli fluga. Það séu greinileg merki
um áframhaldandi hreyfingu
sprungunnar. Vísindamennirnir
hafa þann fyrirvara á að þeir þurfi
að prófa niðurstöður um dýpi ket-
ilsins með nákvæmum mælingum á
vettvangi.
Enn skjálftahrinur
Ármann segir að skjálftar séu
ekki að ganga niður í Öræfajökli,
enn komi skjálftahrinur. „Það þýðir
að eitthvað er að hreyfa sig inni í
fjallinu og það er ekkert annað en
kvika,“ segir hann.
Spurður hvort þessar upplýsing-
ar bendi til þess að auknar líkur
séu á gosi vekur Ármann athygli á
skjálftavirkninni sem bendi til þess
að eitthvað sé að gerast. „Það er
ekki að ástæðulausu að öll þessi
viðbrögð eru í gangi,“ segir hann og
nefnir aukna vöktun eldstöðvarinn-
ar og starf að almannavörnum.
„Viðbúnaðurinn er viðhafður til
þess að við fáum eitthvert svigrúm
þótt fyrirvarinn verði skammur en
við vonumst til að hann verði eitt-
hvað meiri,“ segir Ármann Hösk-
uldsson.
Stóraukin vöktun eldstöðvar
Skjálftavirkni jókst í Öræfajökli
um miðjan nóvember og sást sig-
ketillinn í öskju eldstöðvarinnar 17.
þess mánaðar. Í kjölfarið lýstu al-
mannavarnir yfir óvissuástandi við
jökulinn og stóð það í nokkra daga.
Jafnframt var unnið að upplýsinga-
gjöf til íbúa og að rýmingaráætlun
fyrir byggðina og unnið að aukinni
vöktun svæðisins með ýmsum
hætti.
Sigketillinn dýpkaði um
rúma 20 metra á níu dögum
„Eitthvað er að hreyfa sig inni í fjallinu“ segir Ármann Höskuldsson
Morgunblaðið/RAX
Eldstöð Síðast gaus í Öræfajökli á árinu 1727 en tæpum fjögur hundruð árum fyrr varð stærsta þeytigos sem orðið hefur á Íslandi á sögulegum tíma.
Þrívíddarteikning/Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands
Öræfajökull Sigketillinn hafði dýpkað um rúma 20 metra, hann sprungið
meira og lögun hans breyst á níu dögum í nóvembermánuði.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Frétt Morgunblaðsins í gær um Bri-
an Jakob Campbell, 39 ára mann
sem er fastur í Viborg á Jótlandi án
vegabréfs, vakti mikla athygli. Í
fréttinni var rætt við hálfsystur
Brians, Önnu Heiðu Kvist, sem
berst fyrir réttindum bróður síns.
Brian fæddist á Íslandi og flutti
til Bandaríkjanna fimm ára gamall,
þar sem hann ólst upp hjá föður sín-
um. Hann ákvað að flytja til systur
sinnar í Danmörku í leit að betra lífi
og fékk útgefið bráðabirgðavega-
bréf til að komast þangað. Hann
undi hag sínum vel þar og var að
læra dönsku þegar dönsk yfirvöld
sögðu honum í sumar að hann ætti
að fara heim til Íslands. Þá kom
babb í bátinn, því að íslensk stjórn-
völd sögðu að eftir nánari skoðun
litu þau ekki á hann sem Íslending
heldur Bandaríkjamann. Síðan hef-
ur hann setið fastur.
„Málsaðili er fæddur á Íslandi og
með íslenska kennitölu. Móðir hans
var íslenskur ríkisborgari en faðir
hans bandarískur,“ segir í svari
utanríkisráðuneytisins við fyrir-
spurn Morgunblaðsins.
„Maðurinn hafði verið búsettur í
Bandaríkjunum um margra ára
skeið þegar hann sótti um neyðar-
vegabréf hjá einni af ræðisskrifstof-
um Íslands í Bandaríkjunum 2016.
Við útgáfu neyðarvegabréfsins
töldu starfsmenn utanríkisráðu-
neytisins sig hafa gengið úr skugga
um að maðurinn væri íslenskur.
Eftir að viðkomandi var kominn
til Danmerkur leiddi ítarlegri Þjóð-
skrárkönnun í ljós að hann er skráð-
ur með bandarískan ríkisborgara-
rétt.
Það stafar af því að foreldrar hans
voru í hjúskap þegar hann fæddist
og hann öðlaðist því, skv. íslenskum
lögum, ríkisborgararétt föður síns.
Sendiráðið í Danmörku upplýsti
málsaðila um þetta og hefur leitast
við að finna lausn á því í samvinnu
við viðkomandi,“ segir enn fremur.
Hafa reynt að finna lausn
fyrir hinn landlausa Brian
Fékk íslenskt vegabréf í fyrra Er nú talinn bandarískur
Mikill áhugi er
meðal Íslendinga
á að næla sér í
miða á leiki á HM
í Rússlandi
næsta sumar.
Annar hluti
miðasölunnar
hófst á heima-
síðu FIFA á
þriðjudags-
morgun og fót-
boltaóðir Íslendingar biðu ekki
boðanna. Alls sóttu Íslendingar um
3.550 miða fyrstu 24 tímana eftir
að salan hófst. Þetta staðfesti tals-
maður hjá FIFA við Morgunblaðið í
gær.
Morgunblaðið spurðist einnig
fyrir um hversu margir Íslendingar
hefðu sótt um miða í fyrsta hluta
miðasölunnar. Ekki lá fyrir hverjir
mótherjar Íslands í keppninni væru
né hvenær eða hvar leikið yrði. Þó
vantaði ekki áhugann. Samkvæmt
upplýsingum frá FIFA var Íslend-
ingum alls úthlutað 1.365 miðum í
fyrsta hluta miðasölunnar. Það
þýðir að rétt tæplega fimm þúsund
Íslendingar hafa nú sótt um miða.
Miðasalan í öðrum hluta heldur
áfram og stendur út janúarmánuð.
Rétt er að geta þess að dregið verð-
ur úr umsóknum um miða. Ekki
skiptir því máli hvort sótt er strax
um eða það gert á síðasta degi.
hdm@mbl.is »28
Um 5.000 Íslend-
ingar hafa sótt um
miða á HM 2018
Innlifun Tólfan
fer til Rússlands.
„Öll röskun á
starfseminni
hefur áhrif, en
við vonumst til
þess að samn-
ingar náist áður
en til þess kem-
ur,“ sagði Guð-
jón Arn-
grímsson,
upplýsinga-
fulltrúi Ice-
landair, í gær þegar hann var
spurður að því hvort yfirvofandi
verkfall flugvirkja hjá félaginu síð-
ar í mánuðinum hefði ekki slæm
áhrif á reksturinn. Stjórnendur fé-
lagsins vilja bíða með að tjá sig um
atkvæðagreiðslu flugvirkja þar til
niðurstaða í kosningu þeirra liggur
fyrir.
Stjórn Flugvirkjafélags Íslands
ákvað í fyrradag að efna til at-
kvæðagreiðslu um verkfall hjá Ice-
landair. Niðurstaða fæst vænt-
anlega á morgun. Gunnar R.
Jónsson, varaformaður félagsins,
segir að komi til verkfalls muni það
væntanlega hefjast fyrir áramót.
Öll röskun á starf-
semi hefur áhrif
Flug Verkfall gæti
skollið á fyrir áramót.