Morgunblaðið - 07.12.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Sölutímabil 6. – 20. desember
S TYRK TAR F É LAG LAMAÐRA OG FAT LAÐRA
Askasleikir
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við sáum það í kringum EM í
fyrra að þá fóru ýmsir af stað að
selja svona ferðir sem þekktu ekki
til. Við erum í raun bara að vekja
athygli þeirra sem fá frábærar hug-
myndir í kollinn, eins og sagt er.
Eins og þær að fara með hóp af
mönnum og konum til Rússlands,“
segir Elías Bj. Gíslason, settur
ferðamálastjóri.
Vakin er athygli á því á vef
Ferðamálastofu að sala pakkaferða,
svokallaðra alferða, sé leyfisskyld.
Beinir Ferðamálastofa því til fólks
að kaupa pakkaferðir af handhöfum
ferðaskrifstofuleyfa. Aðeins þeir
megi selja slíkar ferðir til almenn-
ings. Er fólk hvatt til að kynna sér
lista yfir leyfishafa á vef Ferða-
málastofu áður en ferðir eru keypt-
ar.
Elías segir í samtali við Morg-
unblaðið að þessi aðvörun sé sett
fram núna, þegar margir huga að
ferðum á HM í Rússlandi næsta
sumar. Ekki hafi enn komið upp
slík tilvik í tengslum við HM en þau
koma þó reglulega upp:
„Ýmiss konar framboð af pakka-
ferðum, t.d. fótbolta- og lífsstíls-
ferðum, má finna á samskiptamiðl-
unum þar sem í boði er flug, gisting
og miðar á leiki eða heilsutengda
þjónustu. Við skoðun Ferðamála-
stofu hefur komið í ljós að margir
þeirra sem bjóða slíkar ferðir til
sölu eru án leyfis og því er um ólög-
lega starfsemi að ræða,“ segir á vef
Ferðamálastofu.
Ferðaskrifstofum ber skylda til
að hafa sérstaka tryggingu komi til
gjaldþrots eða rekstrarstöðvunar,
segir á vef Ferðamálastofu.
Kaupendur pakkaferða eiga þá
rétt á endurgreiðslu þeirrar fjár-
hæðar sem greidd hefur verið
vegna pakkaferðar ef hún er ófarin,
til heimflutnings úr ferð, sé hún
hafin, eða gera viðskiptavinum
kleift að ljúka ferð í samræmi við
upphaflega áætlun.
Varað við ólöglegum pakka-
ferðum á HM í Rússlandi
Ferðamálastofa hvetur fólk til að versla við fagaðila
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra, segir að nú þegar hann sé kominn
í nýtt ráðuneyti, samgöngu- og sveitarstjórnarráðu-
neytið, muni hann að sjálfsögðu setjast yfir mál eins
og málefni Landeyjahafnar og nýrrar ferju.
Sigurður Ingi var á opnum fundi hjá
Framsóknarflokknum í Vestmannaeyjum í febrúar,
2016, þegar hann var sjávarútvegsráðherra. Hann
var þá m.a. spurður um álit sitt á Landeyjahöfn og
þeirri ferju sem búið væri að hanna, auk þess sem
hann var spurður út í hin háu fargjöld sem farþegar
þurfi að greiða þegar siglt er til Þorlákshafnar.
Sigurður Ingi svaraði því þannig, samkvæmt því
sem fréttavefurinn eyjar.net greindi frá 12. febrúar
2016, að Landeyjahöfn væri engan veginn ásætt-
anleg höfn, eins og hún væri nú og hann velti því
upp hvort ein leið væri að fá þriðja aðila til að taka
út verkið. Jafnframt varðandi fargjöldin að kanna
bæri hvort rétt væri að taka þau til skoðunar í
byggðaáætlun.
Samgönguráðherra var í gær spurður hvort hann
væri enn sama sinnis og hann var sem sjávarút-
vegsráðherra í febrúar 2016: „Ég hef ekki skipt um
skoðun í þessum efnum. Ég skrifaði efnislega sam-
bærilega grein um þetta mál í Eyjafréttir nú fyrir
kosningar,“ sagði Sigurður Ingi.
„Ef maður kemst í þá stöðu að láta skoða það sem
maður telur vera skynsamlegast að skoða, þá held-
ur maður auðvitað áfram við þá sannfæringu, sem
maður áður hafði, og þessi mál verða á næstunni
skoðuð af kostgæfni hér í ráðuneytinu,“ sagði Sig-
urður Ingi. Samgönguráðherra segir ekki tímabært
að ræða hvernig nákvæmlega verði tekið á málum
Landeyjahafnar, en það sé að sjálfsögðu umhugs-
unarefni, hvort ekki sé skynsamlegt að fá einhvern
þriðja óháðan aðila til þess að gera úttekt á verkefn-
inu, svo menn geti áttað sig á því hvort það sem er
verið að gera og hefur verið gert, sé skynsamlegt.
„Það sama gildir um þennan kostnað sem fylgir því
þegar ekki er hægt að sigla á Landeyjahöfn vegna
veðurs eða aðstæðna og ferjan verður að fara til
Þorlákshafnar. Það er bara réttlætismál að fjöl-
skyldan sem einhverra hluta vegna, t.d. vegna
lækninga, þarf nauðsynlega að komast upp á land,
að hún viti fyrirfram, hvaða gjald hún þarf að
greiða. Við höfum fyrr verið með slíkar hugmyndir í
byggðaáætlun og það ætlum við líka að skoða,“
sagði Sigurður Ingi jafnframt.
Úttekt verði gerð á höfninni
Samgönguráðherra vill láta skoða málefni Landeyjahafnar Skoða megi far-
gjöld frá Eyjum í land, þegar nauðsynlegt reynist að sigla til Þorlákshafnar
Vel var tekið á móti forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, og Elizu Reid
eiginkonu hans á fyrri degi opinberrar heimsóknar þeirra í Dalabyggð í
gær. Heimsóknin hófst síðdegis með innliti á hjúkrunarheimilið Fellsenda í
Miðdölum og í heimavinnsluna á bænum Erpsstöðum en á eftir var farið í
mjólkurstöð MS í Búðardal þar sem mygluostar í ýmsum gerðum eru fram-
leiddir. Endað var svo í byggðasafninu að Laugum í Sælingsdal. Í dag
munu forsetinn og fylgdarlið fara um Skarðsströnd, svo sem að höfuðból-
inu Skarði, um Fellsströnd og víðar og skoða ýmsa merkisstaði í héraðinu.
„Hér er sagan við hvert fótmál á hverju bóli, sem veitir sóknarfæri í ferða-
þjónustu. Svo er hér dugmikið fólk tilbúið að leita nýrra leiða í landbúnaði.
Það má alveg líta björtum augum fram á veg hér í Dalabyggð,“ sagði
Guðni við Morgunblaðið. Þessi mynd var tekin hjá MS í gær þegar forseta-
hjónin kynntu sér ostaframleiðsluna þar, bita sem væntanlega verður víða
á jólaborðinu. sbs@mbl.is
Ljósm/Steinunn Matthíasdóttir
Kynntu sér mygluostaframleiðsluna í Búðardal
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands í opinberri heimsókn í Dalabyggð
Mikill viðbúnaður var í gær þegar
Brunavarnir Árnessýslu fengu til-
kynningu um eld í fjósi í Gunn-
bjarnarholti á Skeiðum en margt
nautgripa og kálfa er í fjósinu.
Fljótlega var þó tilkynnt að búið
væri að slökkva eld og var því dreg-
ið úr viðbúnaði. Verið er að stækka
fjósið. Segir á Facebooksíðu Bruna-
varna Árnessýslu, að upptök elds-
ins megi rekja til þess að verið var
að vinna með keðjusög á þakklæðn-
ingu og við það komst neisti undir
klæðninguna. Þakka megi skjótum
viðbrögðum iðnaðarmannanna á
staðnum að ekki fór verr.
Eldur í fjósi
„Nei, en það er hins vegar ýmislegt í
skoðun. Við erum ekki í bráðum
vanda sem stendur, okkur hefur tek-
ist að sinna þessu vel til þessa,“ segir
Þórhildur Ósk Hagalín, upplýsinga-
fulltrúi Útlendingastofnunar (ÚTL),
við Morgunblaðið og vísar í máli sínu
til þess að stofnunin hefur ekki fund-
ið annað húsnæði til að hýsa þá
hælisleitendur sem gista áttu í fyrir-
huguðu gistiskýli við Bíldshöfða 18 í
Reykjavík. Stóð þar til að hýsa 70
manns, en nýlegt lögbann sýslu-
manns kom í veg fyrir þau áform.
Um síðastliðin mánaðamót voru
alls um 270 hælisleitendur í þjónustu
hjá sveitarfélögunum Reykjavík,
Reykjanesbæ og Hafnarfirði og um
250 hjá Útlendingastofnun. Stærstu
búsetuúrræði Útlendingastofnunar
eru í Arnarholti á Kjalarnesi, í
Bæjarhrauni 16 og 4 í Reykjavík,
Norðurhellu í Hafnarfirði og hót-
elinu Airport Inn í Keflavík auk
tveggja minni húsa í Reykjavík.
Spurð hvort erfitt sé að finna
hentugt húsnæði fyrir áðurnefndan
hóp svarar Þórhildur Ósk: „Það er
ekki hlaupið að því enda ekki mikið
framboð á húsnæði sem hentar und-
ir þessa starfsemi,“ segir hún og
bendir á að huga þurfi að mörgu, s.s.
almenningssamgöngum. khj@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Lögbann Til stóð að hýsa hælisleit-
endur við Bíldshöfða í Reykjavík.
ÚTL ekki
í bráðum
vanda
Yfir 500 í hinum
og þessum húsum