Morgunblaðið - 07.12.2017, Blaðsíða 22
VIÐTAL
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Í vesturbæ Reykjavíkur sitja þrjár
konur stoltar og undrandi með nýút-
komna bók, Móðir, missir, máttur,
sem þær eru höfundar að.
„Það er skrýtin tilfinning að fá
bókina í hendurnar og óraunveru-
legt. Þessi tilfinning er eins og þeg-
ar beðið er eftir barni. Meðgangan
var löng, eða frá árinu 2013, og á
tímabili héldum við að bókin kæmi
ekki út. En nú erum við með hana í
höndunum átta dögum fyrr en áætl-
að var,“ segir Oddný Þ. Garð-
arsdóttir. Undir þetta taka meðhöf-
undar hennar; Vera Björk
Einarsdóttir og Þóranna M. Sigur-
bergsdóttir.
Allar fluttu þær ungar til Vest-
mannaeyja með eiginmönnum sín-
um og byggðu þar upp fjölskyldu og
heimili. Allar hafa þær misst syni og
fundið styrk í trúnni til þess að tak-
ast á við lífið að loknu, „högginu“
sem fjölskyldurnar urðu fyrir þegar
synir þeirra; Árni Garðar, fjögurra
ára, Erlingur Geir, sex ára, og Sig-
urjón, 17 ára, létust með sviplegum
hætti. Við lok bókarskrifanna vorið
2016 missti Þóranna annan son, Rík-
arð Örn, sem varð bráðkvaddur nær
fertugur að aldri. Vera og Þóranna
búa enn í Eyjum en Oddný er ný-
flutt til Reykjavíkur.
Dreymdi bókarskrifin
Tilurð bókarinnar er draumur
sem Veru dreymdi.
„Eina nóttina dreymdi mig að
Guð talaði til mín og sagði að ég,
Oddný og Þóranna ættum að skrifa
bók um sameiginlega reynslu okkar.
Ég gerði ekkert með þetta fyrr en
ég var samferða Þórönnu og Odd-
nýju í bíl á leið á Aglow-ráðstefnu í
Reykjavík og stundi þessari hug-
mynd upp úr mér,“ segir Vera.
Oddný og Þóranna tóku strax vel í
hugmyndina.
„Ég hafði verið í sálgæslunámi og
þurfti í því námi að skrifa um fortíð-
ina og erfiða hluti. Ég skrifaði um
barnsmissi og vissi að ég gæti notað
eitthvað af því í bókinni. Ég hafði
líka tekið viðtal við börnin mín um
upplifun þeirra þegar Sigurjón dó,“
segir Þóranna.
Oddný og Vera voru nágrannar
og orðnar góðar vinkonur þegar
þær hófu að skrifa bókina. Þær
höfðu leiðbeint í 12 spora starfi
Landakirkju þar sem Oddný var
meðhjálpari og Vera hafði tekið þátt
í barnastarfi kirkjunnar. Þórönnu
kynntust þær í gegnum Aglow, sem
er þverkristilegur félagsskapur
kvenna. Þær hafa allar starfað í Ag-
low í áratugi. Þóranna hefur lifað
virku trúarlífi frá því að hún var ung
kona. Oddný og Vera áttu sína
barnatrú, sem jókst og styrktist við
erfiðleikanna.
Vera missti son sinn, Árna Garð-
ar, 28. júlí 1988 þegar ekið var á
mæðginin þar sem þau voru á leið
yfir gangbraut. Í bókinni lýsir Vera
fyrstu andartökunum eftir slysið.
Hún segist ekki vita hvernig hún
hefði komist í gegnum áfallið ef hún
hefði ekki fundið hvernig Guð bar
hana á örmum sér í gegnum allt.
Var einhvern veginn dofin
Erlingur Geir, sonur Oddnýjar,
veiktist um miðjan dag og var send-
ur ásamt foreldrum sínum með
sjúkraflugi til Reykjavíkur, þar sem
hann lést á Landspítalanum kl.
hálftvö um nóttina. Foreldrar hans
fengu að vera hjá honum um nóttina.
Oddný lýsir því í bókinni hversu
mikilvægt það var.
„Mér fannst gott að geta far-
ið til hans um nóttina þegar ég
vildi og setið hjá honum, horft á
hann og komið við hann. Ég
fékk ofsaleg grátköst. Þess á
milli var ég einhvern veginn
dofin og ekki fær um að hugsa
neina hugsun til enda.“ (bls. 44)
„Ég veit ekki hvernig ég hefði
komist í gegnum sorgina ef ég hefði
ekki átt og öðlast meiri trú. Um leið
og við komum heim og fórum að
undirbúa jarðarförina hjá honum
Ella mínum þá bað ég Guð að hjálpa
mér og þegar var ein heima þá gekk
ég um húsið, hrópaði upphátt á Guð
og bað hann að hjálpa mér í sorginni,
sem hann gerði,“ segir Oddný.
Sigurjón, sonur Þórönnu, var ný-
kominn með bílpróf. Hann var
staddur í Reykjavík og bauðst til
þess að keyra systkini sín tvö út á
Keflavíkurflugvöll. Á leiðinni frá
Keflavík lenti Sigurjón í árekstri og
lét lífið samstundis.
Þrátt fyrir fósturmissi, fæðingu
andvana stúlku, sem nefnd var
Hanna, andlát Sigurjóns og áfallið
þegar fertugur sonur hennar, Rík-
harður, varð bráðkvaddur vorið 2016
hefur Þóranna ekki misst trúna né
orðið reið við Guð.
„Ég hef meira orðið hissa og átt
erfitt með að skilja af hverju þessir
atburðir gerðust. Trúin hefur gefið
mér yfirnáttúrulegan kraft og styrk
sem hjálpað hefur mér í gegnum öll
þessi áföll,“ segir Þóranna. Hún lýs-
ir því í bókinni hversu erfitt var að
halda áfram í daglega lífinu.
„Ég get skilið fólk sem missir
lífskraftinn og getur ekki haldið
áfram. Stundum lagðist ég nið-
ur og hugsaði að ég gæti ekki
staðið upp aftur, en ég hafði
ekkert val. Ég varð að halda
áfram.“ (bls. 80)
Allar eru mæðurnar sammála um
að það sé gott að geta talað við og
grátið með einhverjum sem hefur
gengið í gegnum svipaða reynslu.
Þær hafa allar þurft að glíma við
samviskubit vegna andláta sona
sinna. Vera var lengi með sam-
viskubit yfir því að hafa ekki passað
drenginn sinn betur þegar þau
Mæður sem misst hafa syni
Þrjár mæður vonast til að bókin Móðir, missir, máttur hjálpi öðrum syrgjendum Bæjarfélagið
umvafði fjölskyldurnar Höggið sem engin er undirbúin fyrir Trúin styrktist við erfiðleikana
Morgunblaðið/Eggert
Bókarhöfundar Oddný Þ. Garðarsdóttir, Vera Björk Einarsdóttir og Þóranna M. Sigurbergsdóttir, stoltar og þakklátar með bókina Móðir, missir, máttur.
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
FIAT TIPO EASY
nýskr. 01/2017, ekinn 53 Þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Verð 2.350.000 kr.
Raðnr. 256977
MAZDA 2VISION EDITION PACK
nýskr. 04/2017, ekinn 39 Þ.km, bensín, sjálfskiptur,
álfelgur o.fl. Verð 2.190.000 kr.
Raðnr. 257177
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
HONDA JAZZ ELEGANCE
nýskr. 05/2014, ekinn aðeins 42 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur. Verð 1.790.000 kr.
Raðnr. 255735
FIAT 500 POP
nýskr. 06/2016, ekinn 89 Þ.km, bensín, 5 gíra.
Verð 1.490.000 kr.
Raðnr. 257106
FORD FIESTA TITANIUM
nýskr. 05/2017, ekinn 34 Þ.km, bensín, sjálfskiptur,
álfelgur o.fl.Verð 2.290.000 kr.
Raðnr. 230574