Morgunblaðið - 07.12.2017, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
Dönsk hönnun
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
„Ég er gríðarlega ánægður með þetta verkefni og gaman
að fá að vera ráðherrann sem nær að ljúka því. Koma há-
hraðatengingum til 99,9% heimila á árinu 2020,“ segir
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðherra, um fjarskiptaverkefnið Ísland ljóstengt.
Sigurður Ingi rifjar upp að hann hafi sett þessa hug-
mynd fram í blaðagrein veturinn 2012 til 2013. Það hafi
síðan verið skrifað inn í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar sem þá tók til starfa. Í stjórnarsáttmála nýrrar
ríkisstjórnar er stefnt á að ljúka ljósleiðaraverkefninu á
árinu 2020.
„Við erum samkvæmt nýrri skýrslu frá Sameinuðu
þjóðunum fremst meðal þjóða þegar kemur að upplýs-
ingatækni og fjarskiptum og við ætlum að leggja mikið á
okkur til að halda þeirri stöðu. Þetta er eitt af þeim verk-
efnum sem gera stöðu okkar jafn góða og raun ber vitni,“
segir samgönguráðherra.
Hann segist munu fara yfir verkefnið, skoða hvar það
er statt og meta hvort ástæða sé til að gera eitthvað
öðruvísi. Þessa dagana er verið að ganga frá samningum
við sveitarfélög um verkefni næsta árs. Sigurður Ingi
segir að það verði síðan metið við gerð fjármálaáætlunar
til næstu ára hvort hægt sé að fjármagna flýtingu verk-
efnisins og hvort mögulegt sé að framkvæma verkefnið á
styttri tíma en nú er ráðgert.
Ráðherrann bendir á að búið sé að tengja flest hús á
höfuðborgarsvæðinu með þremur ljósleiðurum og leggja
mikinn kostnað í það. Hann segir mikilvægt að nýta inn-
viðina sem best og segir að til þess þurfi meira samstarf
ólíkra fjarskiptafyrirtækja. Annars sé hætta á að verið
sé að kasta peningum út um gluggann. helgi@mbl.is
Gaman að fá að ljúka verkefninu
Morgunblaðið/Eggert
Ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson fær tækifæri til að
fylgja hugmynd sinni eftir og ljúka verkefninu.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er mikil eftirvænting eftir því
að hægt verði að stinga í samband
við ljósleiðara, ekki síst í samfélagi
eins og hér þar sem fjarskipti eru
víða léleg. Ýmsir hafa orð á því að
góð fjarskipti séu ekki síður mik-
ilvæg en góðar vegasamgöngur,“
segir Gunnlaugur Auðunn Júlíusson,
sveitarstjóri Borgarbyggðar, spurð-
ur um kröfur íbúa um ljósleiðara-
væðingu sveitanna. Borgarbyggð er
eitt þeirra sveitarfélaga sem litla
styrki hafa fengið úr fjarskiptasjóði
vegna þess hversu stórt sveitarfélag-
ið er og með dreifðri byggð.
Verkefnið Ísland ljóstengt gengur
út á það að stuðla að ljósleiðaravæð-
ingu svæða þar sem fjarskiptafélögin
sjá sér ekki hag í að koma til skjal-
anna. Það nær því ekki til höfuðborg-
arsvæðisins nema að mjög litlu leyti.
Ef skoðað er kort með upplýsingum
um stöðu verkefnisins sést að við lok
næsta árs verður ljósleiðaravæðingu
lokið eða hún langt komin víða um
land. Er þá miðað við að þeim verk-
efnum sem fá á næsta ári og fengið
hafa áður styrki úr fjarskiptasjóði
verði að fullu lokið. Alls ekki er víst
að þeim verði öllum lokið. Fram kom
í Morgunblaðinu fyrir skömmu að á
næsta ári yrði lokið við að tengja um
3000 staði af þeim 4000 sem falla
undir verkefnið.
Hærri styrkir á næstu árum
Stærstu svæðin sem sitja eftir eru
Borgarbyggð, Fljótsdalshérað,
Langanes og Bláskógabyggð. Einnig
svæði á Vestfjörðum.
Þessi svæði hafa væntanlega orðið
undir í samkeppninni vegna þess að
hver tenging er tiltölulega dýr en
reglur Fjarskiptasjóðs ganga út á að
þau sveitarfélög fái styrkina fyrst
sem minnstu þurfa til að kosta. En
röðin mun koma að hinum, þótt síðar
verði. Gunnlaugur vonast til að á
næstu árum verði hægt að fá styrki
sem nálgast raunkostnað. Verði þá
unnt að stíga stærri skref.
Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkis-
stjórnar er boðað að ljósleiðaravæð-
ingu landsins verði lokið á árinu 2020
og því bætt við að það auki lífsgæði
og fjölgi tækifærum landsmanna til
að skapa atvinnu.
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri
Fljótsdalshéraðs, segir að verkefnið
Ísland ljóstengt hafi örugglega orðið
til þess að koma þessum verkefnum
fyrr af stað en ella hefði orðið. Hann
segist þó alls ekki sáttur við ýmislegt
í regluverki verkefnisins. „Við þessa
fjarskiptavæðingu er verið að setja
stóran hluta kostnaðar yfir á sveitar-
félögin. Mér finnst ekki sjálfgefið að
þau eigi að bera kostnað af fjar-
skiptavæðingu,“ segir Björn. Hann
segir að sveitarfélögin séu sett í þá
stöðu að annaðhvort taki þau þennan
kostnað á sig eða sitji eftir.
Byggð er mjög dreifð á Fljótsdals-
héraði og dýrt að leggja ljósleiðara
um sum svæðin. Björn segir að stað-
an sé þokkaleg þar sem sveitarfélag-
ið hafi tekið þátt í að koma upp ör-
bylgjuneti. Ljóst sé þó að ljósleiðari
sé framtíðarfyrirkomulagið. Sveitar-
félagið hafi nýtt sér það þegar aðrir
hafa verið í framkvæmdum og fengið
að leggja ljósleiðara með.
Eins og aðrir sveitarstjórar finnur
Björn fyrir kröfu íbúa um bætta fjar-
skiptaþjónustu. „Það er ósköp eðli-
legt. Þetta er lykillinn að því að fólk
geti sinnt störfum heiman frá sér.“
Gunnlaugur bendir á að sveit-
arfélögin hafi ýmist selt kerfin sem
þau hafa byggt upp til fjarskipta-
félaga, til að fá til baka þá fjármuni
sem þau leggja í verkefnin, eða reki
þau og fái peningana til baka á lengri
tíma. Hann segir að ekki hafi annað
verið rætt í Borgarbyggð en að sveit-
arfélagið muni eiga fjarskiptakerfið
og selja aðgang að því.
Íbúar gera kröfu um góð fjarskipti
Í lok næsta árs verður ljósleiðari kominn um meginhluta landsins Nokkur stór sveitarfélög sitja eftir
Bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs segir ekki sjálfsagt að sveitarfélögin kosti uppbyggingu fjarskipta
Ísland ljóstengt
Áætluð staða í lok árs 2018
Heimild: Fjarskiptasjóður
Vestmannaeyjabær
Sveitarfélagið Árborg
Mýrdalshreppur
Skaftárhreppur
Ásahreppur
Reykjavíkurborg
Kópavogsbær
Seltjarnarnes
Garðabær
Hafnarfjörður
Mosfellsbær
Kjósarhreppur
Reykjanesbær
Grindavíkurbær
Sandgerðisbær
Garður
Vogar
Utan verkefnis
Lokið
Langt komið
Skammt komið
Ekki hafið
Akraneskaupstaður
Skorradalshreppur
Hvalfjarðarsveit
Borgarbyggð
Grundarfjarðarbær
Helgafellssveit
Stykkishólmsbær
Eyja- og Miklaholtshr.
Snæfellsbær
Dalabyggð
Bolungarvík
Ísafjarðarbær
Reykhólahreppur
Tálknafjarðarhr.
Vesturbyggð
Súðavíkurhreppur
Árneshreppur
Kaldrananeshr.
Strandabyggð
Sveitarf. Skagafjörður
Húnaþing vestra
Blönduósbær
Skagaströnd
Skagabyggð
Húnavatnshreppur
Akrahreppur
Seyðisfjarðarkaupst.
Fjarðabyggð
Vopnafjarðarhreppur
Fljótsdalshreppur
Borgarfjarðarhreppur
Breiðdalshreppur
Djúpavogshreppur
Fljótsdalshérað
Sveitarf. Hornafjörður
Akureyrarkaupstaður
Norðurþing
Fjallabyggð
Dalvíkurbyggð
Eyjafjarðarsveit
Hörgársveit
Svalbarðsstrandarhr.
Grýtubakkahreppur
Skútustaðahreppur
Tjörneshreppur
Þingeyjarsveit
Svalbarðshreppur
Langanesbyggð
Rangárþing eystra
Rangárþing ytra
Hrunamannahreppur
Hveragerðisbær
Sveitarfélagið Ölfus
Grímsnes- og Grafningshr.
Skeiða- og Gnúpverjahr.
Bláskógabyggð
Flóahreppur
Morgunblaðið/Eggert
Framkvæmdir Grafið fyrir heimtaug ljósleiðara á sveitabæ í Rangárþingi ytra á síðasta ári. Þar var heilt sveitar-
félag ljósvætt á stuttum tíma með heimtaugagjöldum íbúa og stuðningi sveitarfélags og fjarskiptasjóðs.