Morgunblaðið - 07.12.2017, Side 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
VIÐTAL
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Trommararnir sjá um víkinga-
klappið og allt þetta húúúh. Sjálfur
sný ég yfirleitt baki í völlinn og reyni
sem kórstjóri að fá fólk til að syngja
með og helst sömu línu og Jói
trommari og Benni Bongó eru að
syngja. Ef ég missi af stórum hluta
leikjanna er ekki annað að gera en
að fara aftur upp á Ölver og horfa á
leikinn í endursýningu,“ segir
Sveinn Ásgeirsson, varaformaður
Tólfunnar, stuðningsmannasveitar
landsliðsins í fótbolta. Stutt er í hlát-
urinn þegar hann lýsir dæmigerðum
landsleik hjá þeim samherjunum í
framvarðasveit Tólfunnar.
Eins og margir aðrir er Tólfan að
byrja að undirbúa sig fyrir úrslita-
keppni heimsmeistaramótsins í
knattspyrnu í Rússlandi næsta sum-
ar. Sveinn segist hafa þurft að klípa
sig nokkrum sinnum í handlegginn
áður en hann trúði því að það væri
raunverulegt að Ísland ætti að mæta
Argentínu í Moskvu í fyrsta leikn-
um.
„Síðan fylgja leikir við Nígeríu og
Króatíu, þannig að þetta verður full-
orðins,“ segir Sveinn. „Mig dauð-
langar að fara, en maður verður að
sjá til hvað fjárhagurinn leyfir. Það
er ekki fyrir hvern sem er að hoppa
til Rússlands þó svo að mótið verði
örugglega rosalega skemmtilegt.“
Óraunverulegt fyrir sendi-
bílstjóra úr Breiðholtinu
Sveinn segir að mikil og vaxandi
vinna fylgi því að vera í forsvari fyrir
áhugamannahópinn Tólfuna, en
stjórnarmenn skipti verkefnum á
sig. Þeir hafa farið á ráðstefnur til
útlanda nokkrum sinnum til að
skipuleggja víkingaklappið á sam-
komum erlendis og komið fram í
heimildamyndum um „íslenska
kraftaverkið“. Fjölmiðlar hringi oft
og fyrir heimaleiki sé mikið um
miðakvabb, sem Tólfan geti sjaldn-
ast leyst úr.
„Í síðustu viku var mikið að gera
þegar dregið var á HM og auk ís-
lenskra miðla þá vorum við í sam-
skiptum við alheimsmiðla eins og
CNN og AP-fréttastofuna. Þetta er
miklu meira heldur en óbreyttur fót-
boltaáhugamaður og sendibílstjóri
úr Breiðholtinu er vanur að standa í.
Á ýmsan hátt hefur stússið í kring-
um Tólfuna breytt lífinu,“ segir
Sveinn. Hann starfar sem bílstjóri
hjá Svansprenti og þegar leikdagar
nálgast segist hann stundum vera
meira í símanum heldur en við akst-
urinn.
Sveinn er í sambúð og eiga hann
og kona hans tvö börn. Þau fara á
alla heimaleiki landsliðsins og krakk-
arnir hafa farið með þeim á leiki
kvennalandsliðsins. „Þetta er að
verða fjölskyldusport,“ segir Sveinn.
Tólfan er aðili að FSE, regnhlífar-
samtökum stuðningsmannasveita
landsliða og félagsliða í Evrópu.
Sveinn segir að á dagskránni sé að fá
aðstoð FSE við að komast í tengsl
við sambærilegar sveitir í Argentínu
og Nígeríu. Þá er Tólfan í viðræðum
við KSÍ um aðgöngumiða og annan
undirbúning fyrir HM og segir
Sveinn að samstarf Tólfunnar við
KSÍ sé mjög gott í alla staði. Hann
bendir á að sums staðar erlendis,
eins og t.d. í Belgíu og Króatíu, fái
stuðningsmannasveitir fjárframlög
frá viðkomandi knattspyrnusam-
bandi.
Skemmtilegra að fara á völlinn
Tólfan var stofnuð 2007 af Styrmi
Gíslasyni og Benjamín Árna Hall-
björnssyni, sem nú er formaður, og
hefur alla tíð haft höfuðstöðvar í Öl-
veri. Hún var endurvakin 2013
nokkru eftir að Lars Lagerbäck hóf
störf sem landsliðsþjálfari, en þá var
Styrmi boðið í kaffi með Lars á skrif-
stofu KSÍ. Niðurstaðan af þeim
fundi var að byggja upp skemmti-
legan hóp þar sem gleðin væri við
völd. Jafnframt hafi verið ákveðið að
Heimir Hallgímsson myndi kíkja í
heimsókn til Tólfunnar á Ölver fyrir
leiki og það hafi haldist þó svo að
Heimir sé fyrir löngu orðinn aðal-
þjálfari landsliðsins.
Sveinn segir að Tólfumönnum hafi
gengið illa að búa til félagaskrá, en
áætlar að formlegir félagar séu um
150 og á leiki í undankeppni HM
keyptu um 200 manns miða í gegnum
Tólfuna. „Í sjálfu sér tilheyra allir
Tólfunni sem mæta bláklæddir á
leiki og eru tilbúnir að syngja og
tralla. Allt hefur hjálpast að, frábært
landslið og stór hópur stuðnings-
manna þannig að það er orðið miklu
skemmtilegra að fara á völlinn en áð-
ur. Vonandi hefur Tólfan breytt ein-
hverju,“ segir Sveinn.
EM eins og ár í skóla
Hann segir að það sé þó ekki bara
gleði samfara því að fara á völlinn í
útlöndum, eins og til dæmis í Evr-
ópukeppninni í Frakklandi 2016. Þá
hafi verið nauðsynlegt að mæta
mörgum klukkutímum fyrir leik,
leyfi hafi þurft fyrir hljóðfærum og
fánum, sem síðan var komið fyrir á
fyrirfram ákveðnum stöðum. Allt
hafi þurft að vera samkvæmt ná-
kvæmu skipulagi.
„Við héldum að þetta væri bara
eins og að labba fylktu liði með
trommurnar úr Ölveri á Laugardals-
völlinn, en annað kom í ljós. Við höf-
um öll lært heilan helling í skipu-
lagningu, samskiptum og jafnvel
tungumálum. Ég lærði meira á EM í
Frakklandi heldur en á heilu ári í
skóla. Nú er annað stórverkefni
framundan og við vitum að þó það sé
gaman á leikjunum þá er ofboðslega
mikil vinna í kringum þá,“ segir
Sveinn.
Tólfan hefur breytt lífi og leikjum
Tólfan að byrja undirbúning fyrir HM í fótbolta í Rússlandi Horfir oft á leikina í endursýningu
„Í sjálfu sér tilheyra allir Tólfunni sem mæta bláklæddir á leiki og eru tilbúnir að syngja og tralla“
Morgunblaðið Skapti Hallgrímsson
Samtaka í víkingaklappi Bláklæddir Íslendingar settu mikinn svip á Evrópumótið í Frakklandi 2016. Mikill áhugi virðist vera fyrir keppninni í Rússlandi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skemmtun „Þetta verður fullorðins,“ segir Sveinn Ásgeirsson, varafor-
maður Tólfunnar, um riðil Íslendinga á HM knattspyrnu í Rússlandi.
Sveinn ráðleggur fólki að skipu-
leggja sig tímanlega ef það ætli
til Rússlands. Hann segist
reikna með að færri komist að
en vilji á leik Íslands og Argent-
ínu. Ef Ísland nái góðum úrslit-
um í þeim leik verði tæpast
hægt að ákveða á síðustu
stundu að skjótast til Rúss-
lands til að sjá tvo seinni leikina
í riðlakeppninni. Tíma taki að
útvega stuðningsmanna-
skírteini og óljóst sé hversu
marga miða Ísland fái á leikina.
Skipulag
nauðsynlegt
ÓLJÓST MEÐ MIÐAFJÖLDA
WW
Þvottav
7 KG. 1400 S
Eco Bub
Verð 59.900,
TM
59.90
0,-
DV70M
Þurrkari
7 KG. barkarlaus
þurrkari.
Varmadæla í stað
elements.
A++
Verð 89.900,- Verð nú 119.920,-Verð áður: 149.900,-
Uppþvottavél í sérflokki
meðWaterwall tækni
Framhlið úr burstuðu stáli
/ Stillingar ofan á hurð,
blár litur / Tekur 14 manna
stell / 5 þvottakerfi /
Starttímaseinkun / Orkunýtni
A++ / Orkunotkun á ári
(kWst) : 266 / Hljóðlát aðeins
41db / Stillanleg efrigrind
/ Grind efst fyrir hnífapör
með sérstökum "FLEX"
bakka / 2 þvottaarmar +
"WATERWALL" / Stærð (h x
b x d): 817 x 598 x 575 mm
Einnig fánleg til
innbyggingar
Gæðavörur frá traustum framleiðanda á fínu verði
SÍÐUmúla 9 · SÍmi 530 2900lágmúla 8 · SÍmi 530 2800
samsungsetrid.is