Morgunblaðið - 07.12.2017, Side 94
94 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
VETRARKORTIÐ
ER KOMIÐ Í SÖLU!
Jólatilboð í desember
39.900 kr.
Og þú getur strax byrjað að æfa
45.900 kr. frá 4. jan til 20. maí 2018
Helma Rut, yfirsálfræðingur á offitusviði Reykjalundar, á 50ára afmæli í dag. Hún hefur starfað á Reykjalundi síðan2006.
„Það er mjög gott að starfa á Reykjalundi enda starfsaldurinn hjá
starfsfólki þar mjög hár, starfsfólkið er ekkert mikið að hætta þar.
Starfið er fjölbreytt, viðtöl, fræðsla, námskeiðahald, rannsóknarvinna
og handleiðsla nema. Annars er ég svo heppin að starfa á tveimur frá-
bærum vinnustöðum. Ég vinn líka í Heilsuborg einn dag í viku og er
einmitt að undirbúa nýtt námskeið ásamt samstarfskonu minni sem
við ætlum að fara af stað með í janúar.“
Námskeiðið heitir Betri tengsl við mat og er fyrir fólk í yfirþyngd
sem notar mat til að takast á við og flýja eða forðast tilfinningar sínar.
Námskeiðið byggist á gagnreyndum aðferðum til að öðlast heilbrigð-
ara samband við mat, læra betri leiðir til að takast á við tilfinningar
og þar með auka almenn lífsgæði.
„Áhugamálin tengjast mikið útivist. Gönguferðir eru í miklu uppá-
haldi, svo og skíðaferðir, og svo er maður alltaf að reyna að vera dug-
legri að fara í jóga og ræktina. Ég er alæta á bækur og það er alltaf
einhver skemmtileg bók á náttborðinu.“
Börn Helmu eru María Nína, 17 ára, nemandi í MR og Aron Atli, 13
ára nemandi í Garðaskóla. „Í tilefni dagsins ætla ég að hitta fjölskyld-
una í bröns í hádeginu og í kvöld býð ég vinkonum heim í léttan kvöld-
verð. Þetta verður án efa góður dagur sem ég ætla að njóta með mín-
um nánustu.“
Fjölskyldan Helma ásamt Aroni Atla og Maríu Nínu.
Heldur námskeið um
betri tengsl við mat
Helma Rut Einarsdóttir er fimmtug í dag
P
Peter Joseph Broome
Salmon fæddist í Hong
Kong 7.12. 1957. „Það er
víst óhætt að segja að
hann hafi fæðst inn í vel
stöndugar enskar ættir. Því geta
fylgt forréttindi, hefðir og einnig
kvaðir. Faðir Peters, afi og allir
bræður þeirra fóru í einn besta
einkaskóla Englands, Wellington
College. Foreldrar hans vildu gefa
sonum sínum þetta sama tækifæri en
það krafist undangengis náms við
svokallaðan Preparatory school frá
unga aldri. Þess vegna fóru Peter, sjö
ára, og elsti bróðir hans, þá átta ára,
frá Hong Kong í heimavístarskóla í
Englandi, Elston Hall preparatory
school. Þrettán ára fengu þeir svo
inngöngu í Wellington College.“
Peter ákvað síðan að fara í fram-
haldsnám í Hótel- og veitingastjórn-
un og hóf störf á þeim vettvangi strax
að loknu námi. Hann var fyrst hót-
elstjóri á Andorra hótelinu við Crom-
well Road, aðeins tvítugur að aldri,
síðan framkvæmdastjóri veit-
ingasviðs á Plaza hótelinu í Princes
Square, London W2, en síðasta starf
hans áður en hann flutti til Íslands
var aðstoðarhótelstjóri á fimm
Peter Joseph Broome Salmon framkvæmdastjóri – 60 ára
Fjölskyldan Peter og Ólöf Salmon, ásamt börnunum sínum tveimur, Tomas Peter Broome og Tönju Karen Salmon.
Kjörsonur Íslands – af
enskum landeigendum
Gömul mynd Peter, lengst til vinstri, með foreldrum sínum og bræðrum.
Reykjavík Úlfrún
Lillý Björk
Gunnarsdóttir
fæddist í Reykjavík
þriðjudaginn 20.
desember 2016
klukkan 8.55. Hún
vó 15 merkur og
mældist 51 cm
löng. Foreldrar
hennar eru Ebba
Margrét Skúla-
dóttir og Gunnar
Hákon Karlsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frámerkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is