Morgunblaðið - 07.12.2017, Blaðsíða 95
stjörnu hótelinu Blakes í Kens-
ington-hverfinu Í London.
Peter hitti eiginkonu sína, Ólöfu
Salmon Guðmundsdóttur, í London
sumarið 1978. Þau fluttu til Íslands
vorið 1981 og hafa síðan búið hér á
landi. Fyrsta starf Peters á Íslandi
var hjá Útvegsbanka Íslands í er-
lendum viðskiptum. Hann varð síðan
sölustjóri hjá Álafossi og sá þá um að
selja ull og fullunna ullarvöru til Evr-
ópu og Asíu.
Peter hóf ásamt konu sinni, Ólöfu,
og fjölskyldu hennar, innflutning á
Trivial Pursuit og fleiri spilum á Ís-
landsmarkað. Hann vann hjá Álafossi
þar til fjölskyldufyrirtæki hans var
orðið það stórt að hann gat helgað sig
því starfi. Spilin urðu fleiri og fyr-
irtækið flutti inn margar útgáfur af
Trivial Pursuit, Pictionary, Monopoly
og mörgum fleiri Spilum. Þegar
verslunarmiðstöðin Kringlan var
opnuð í ágúst 1987 keyptu Peter og
fjölskylda hans húsnæði í þessari
nýju verslunarmiðstöð og ráku þar
Spilabúðina Genus um árabil.
Peter tók ákvörðun um að flytja
sig yfir í golfferðabransann árið 1994
og hefur síðan þá rekið golf-
ferðaskrifstofur, fyrst golfdeild Úr-
vals Útsýnar og síðan VITAgolf sem
hann stofnaði árið 2008 og rekur enn.
Það eru því nokkur þúsund Íslend-
ingar sem hafa farið í spennandi golf-
ferðir með Peter og fararstjórum
hans til margra landa í Evrópu, Afr-
íku, Asíu og víðar.
Peter er íþróttamaður af lífi og sál,
hefur spilað, krikket, rugby, hokkí og
golf og var liðtækur í frjálsum íþrótt-
um. Hann hefur spilað golf á Íslandi
frá því hann flutti til landsins 1981, en
þá gekk hann strax í GR (Golfklúbb
Reykjavíkur).
Segja má að Peter sé ættleiddur
sonur Íslands sem hefur gegnum tíð-
ina umvafið stórfjölskyldu sína og
vini ást og umhyggju. Hann er kátur
og hress í góðra vina hópi, hefur lif-
andi frásagnarmáta og er skemmti-
lega sérvitur. Hann hugar að hverju
smáatriði og vill að allt sé fram-
kvæmt eins og best verður á kosið.
Golfferðir á hans vegum eru ekki
farnar nema að hann sé sjálfur búinn
að spila vellina, sofa í rúmunum og
prófa matseðilinn.
Fjölskylda
Eiginkona Peters er Ólöf Salmon
Guðmundsdóttir, f. 26.2. 1958, at-
hafnakona. Foreldrar hennar eru:
Guðmundur Guðveigsson, f. 23.6.
1937, d. 15.6. 2008, lögregluvarð-
stjóri, og Kolbrún Indriðadóttir, f.
26.11. 1938, fyrrv. verslunarstjóri,
búsett í Reykjavík
Börn Peters og Ólafar eru 1) Tom-
as Peter Broome Salmon, f. 17.6.
1982, skipulagsstjóri áhafna hjá Atl-
anta flugfélaginu, búsettur í Kópa-
vogi, kvæntur Önnu Salmon Snorra-
dóttur, starfsmanni við
auglýsingadeild 365 miðla og eiga
þau þrjú börn, Mikael Breka, f. 2004,
Viktoríu Líf, f. 2006, og Markús Elí, f.
2010, og 2) Tanja Karen Salmon, f.
3.5. 1991, flugfreyja hjá WOW air,
búsett í Kópavogi en unnusti hennar
er Daníel Karl Kristinsson, lögfræð-
ingur hjá fasteignafélaginu Regin og
er sonur þeirra, Tomas Peter, f. 2015.
Bræður Tomasar eru Hugh Salm-
on, f. 6.11. 1956, lengst af fram-
kvæmdastjóri við auglýsingastofur,
búsettur í Lonon; James Salmon, f.
16.10. 1959, framkvæmdastjóri í
Englandi og fyrrv. landsliðsmaður
Englands og Nýja-Sjálands (All
Backs) í rugby, og Anthony Salmon,
f. 19.5. 1962, forstjóri og eigandi aug-
lýsinga- og markaðsstofu á Nýja-
Sjálandi.
Foreldrar Peters voru Gerald
Mordant Broome Salmon, f. 27.9.
1921, d. 16.4. 2002, forstjóri P&O
skipafélagsins í Hong Kong, sat einn-
ig í stjórnum nokkurra fyrirtækja og
stofnana og var stjórnarformaður
viðskiptaráðsins þar og handhafi
OBE-orðunnar frá Elísabetu II
Bretadrottningu, og k.h., Margret
Anne Salmon, f. Pike f. 13.10. 1929, d.
9.1. 2015, flugfreyja hjá BOAC og síð-
ar húsfreyja.
Peter J.B. Salmon
Catherine Carroll
húsmóðir í London
James Carroll
auðmaður í London
Constance Pike,
áður Carroll, húsmóðir í Barns
Joseph Cecil Pike
liðsforingi og listamaður í Barns í London
Margaret Anne Salmon,
áður Pike, flugfreyja og síðar húsmóðir í Kent
Mary Ann Pike,
áður Bush, húsmóðir
í London
William Joseph Pike
lögmaður í London
Henry Lionel Broome Salmon stórfylkisforingi
(brigadier) í breska hernum og hlaut OBE-orðuna
frá Elísabetu II fyrir framlag sitt til krúnunnar, rétt
eins og faðir Peters, Gerald Maurdant Broome
Salmon. Þeir bræður voru sem sagt báðir sæmdir
OBE-orðunni
Anthony John Broome Salmon
býr í Auckland á Nýja-Sjálandi.
Hann á og rekur þar markaðs-
og auglýsingastofuna BIG
Communications
James Lionel Broome Salmon
eini í heiminum sem hefur
spilað rugby (ruðning) fyrir
landslið Englands og einnig
landslið Nýja-Sjálands
(All Blacks)
Jane Keys-Yong prófessor í íslensku (old
norsk og old english) við Oxford háskóla
Henrietta Keys-Yong,
áður Macnaughton, húsmóðir í Kent
Henry William Keys-Yong
ofursti og landeigandi í Kent
Henrietta Elizabeth Salmon,
áður Keys-Yong, landeigandi
og var Lady of the manor í Kent
Lionel Mourdaunt Broome Salmon
höfuðsmaður og landeigandi í Kent
Maud Ethel Hancock
húsmóðir í Kent
Mourdaunt Broome Salmon
höfuðsmaður og landeigandi í Kent
Úr frændgarði Peter J.B. Salmon
Gerald Mourdaunt Broome Salmon
liðsforingi og síðar forstjóri í Hong
Kong, síðar lengst af í Kent á Englandi,
sæmdur OBE-orðunni af Elísabetu II
ÍSLENDINGAR 95
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Opið alla
daga til
jóla
Fallegar jólagjafir
Náttföt - Náttkjólar - Sloppar
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
Sigríður Hagalín leikkona fædd-ist í Voss í Noregi 7.12. 1926en ólst upp á Ísafirði, dóttir
Guðmundar Hagalín rithöfundar, og
f.k.h., Kristínar Jónsdóttur hús-
freyju.
Guðmundur G. Hagalín var bróðir
Þorbjargar, móður Gísla Sigurðs-
sonar læknis. Guðmundur var sonur
Gísla Kristjánssonar í Lokinhömr-
um í Arnarfirði, bróður Odds, afa
Þráins Bertelssonar. Móðir Guð-
mundar Hagalín var Guðný Guð-
mundsdóttir. Kristín var systir Jóns,
tónskálds frá Hvanná, og dóttir
Jóns, alþm. á Hvanná í Jökuldal
Jónssonar. Móðir Kristínar var
Gunnþórunn Kristjánsdóttir.
Fyrri maður Sigríðar var Ólafur
Ágúst Ólafsson forstjóri en seinni
maður hennar var Guðmundur Páls-
son, leikari og lengi framkvæmda-
stjóri Leikfélags Reykjavíkur.
Dætur Sigríðar eru Kristín Haga-
lín Ólafsdóttir, bókasafnsfræðingur
sem hefur, ásamt Jóhönnu Gunn-
laugsdóttur, starfrækt Gangskör sf.,
og Hrafnhildur Hagalín Guðmunds-
dóttir leikritahöfundur.
Sigríður stundaði nám við Sam-
vinnuskólann, Leiklistarskóla Lár-
usar Pálssonar og Leiklistarskóla
Þjóðleikhússins.
Sigríður var leikkona hjá Þjóð-
leikhúsinu og LR 1953-63 og var síð-
an fastráðin hjá LR frá 1964. Auk
þess lék hún í fjölda útvarps- og
sjónvarpsleikrita og í kvikmyndum.
Sigríður þótti afar fjölhæf leik-
kona og var um árabil í hópi fremstu
leikkvenna hér á landi. Meðal eft-
irminnilegra hlutverka hennar má
nefna Nell í Hitabylgju, 1970; Arka-
díu í Mávinum, 1970; Frú Gogan í
Plógi og stjörnum, 1971; Fonsíu í
Rommí, 1980, og aðalhlutverk í kvik-
myndinni Börn náttúrunnar, 1991.
Sigríður hlaut silfurlampann,
1970, var tilnefnd til evrópsku Fel-
ixkvikmyndaverðlaunanna sem
besta leikkona í aðalhlutverki 1991
fyrir leik sinn í Börnum náttúrunnar
og var kosin af Alþingi í heið-
urslaunaflokk listamanna 1991.
Sigríður lést annan í jólum 1992.
Merkir Íslendingar
Sigríður
Hagalín
100 ára
Guðrún S. Kristjánsdóttir
90 ára
Rannveig Guðjónsdóttir
85 ára
Lúðvíg Alfreð Halldórsson
80 ára
Bragi Bjarnason
75 ára
Ásta M. Bergsteinsdóttir
Elísabet E. Guðmundsdóttir
Guðmundur Hallvarðsson
Jens Berg Guðmundsson
Kristín Helgadóttir
Magnús Emilsson
Margrét Sverrisdóttir
Ómar Friðriksson
Pétur Pétursson
Sjöfn Jónasdóttir
Svanhildur Guðbjartsdóttir
Tryggvi Þorbergsson
70 ára
Brynjólfur Magnússon
Elísabet Ólafsdóttir
Finnbogi Bernódusson
Gissur Sigurðsson
Guðlaug Hjelm
Margrét Káradóttir
Ólafur Bjarnason
Ólöf Jóna Stefánsdóttir
Sigurður Bjarklind
60 ára
Auður Árnadóttir
Björgvin Karl Harðarson
Guðbjörg Gunnarsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
Gunnþórunn B. Gísladóttir
Inga Jakobína Arnardóttir
Jóhanna Björnsdóttir
Jóhanna Úlfarsdóttir
Jón Haukur Ingimundarson
Jónína Björk Sveinsdóttir
Mieczyslaw Wojtal
Miroslaw Marek Zychlewicz
Sigurgeir Halldórsson
Steinunn Jónsdóttir
Þórður Ölver Njálsson
50 ára
Bríet Birgisdóttir
Davíð Steingrímsson
Friðfinnur V. Hreinsson
Gerður Bolladóttir
Grímur Helgi Pálsson
Guðrún Inga Sigurðardóttir
Hannes S. Guðmundsson
Helma Rut B. Einarsdóttir
Hermann Leifsson
Hermína Dóra Ólafsdóttir
Jóhannes P. Benediktsson
Maria F.M.B. Barqueiro
Ragnheiður Jóhannsdóttir
Unnur Einarsdóttir
40 ára
Agnieszka A.M. Kowalczyk
Ben Andrew Hall
Bergþór Stefánsson
Dace Eva Rumba
Gunnar Júl Matthíasson
Hrönn Smáradóttir
Jón Þórarinn Þorvaldsson
Katrín G. Kristbjörnsdóttir
Kristján J. Kristjánsson
Kristján Þór Gústafsson
Ragna Anna Skinner
30 ára
Gestur Svavar Marteinsson
Jón Friðrik Jónatansson
Jón Örn Eyjólfsson
Karl Friedrich Karlsson
Kaspars Vilumsons
Marta Kaminska
Marteinn Kristjánsson
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Tómas Guðmundsson
Til hamingju með daginn
30 ára Daði ólst upp í
Fellabæ, býr þar, lauk
sveinsprófi í húsasmíði
frá VMA og er umsjón-
armaður fasteigna hjá
Heimavöllum.
Maki: Þórey Birna Jóns-
dóttir, f. 1983, kennari.
Börn: Ágúst Bragi Daða-
son, f. 2008, og Snærós
Arna Daðadóttir, f. 2012.
Foreldrar: Sigurður Viðar
Guðþórsson, f. 1963, og
Berglind Sveinsdóttir, f.
1966.
Sigmar Daði
Viðarsson
30 ára Hafþór ólst upp í
Hveragerði, bjó í Reykja-
vík en býr nú aftur í
Hverageri og starfar hjá
Ölgerð Egils Skallagríms-
sonar.
Bróðir: Guðjón Hugberg
Björnsson, f. 1982, verk-
fræðingur hjá Landsneti.
Foreldrar: Ásta Gunn-
laugsdóttir, 1955, starfs-
maður hjá dvalarheimilinu
Ási, og Björn Guðjónsson,
f. 1947, húsasmiður hjá
Ási. Þau búa í Hveragerði.
Hafþór Vilberg
Björnsson
40 ára Sæunn Ósk ólst
upp í Eyrarsveit, býr á
Hvanneyri, er leikskóla-
kennari frá HÍ og starfar
við leikskólann Andabæ á
Hvanneyri.
Maki: Davíð Ólafsson, f.
1977, verktaki.
Börn: Embla Dís, f. 1999,
Þórunn Tinna, f. 2004, og
Ólafur Fannar, f. 2011.
Foreldrar: Kjartan
Jósefsson, f. 1957, og Sig-
ríður Diljá Guðmunds-
dóttir, f. 1955.
Sæunn Ósk
Kjartansdóttir