Morgunblaðið - 07.12.2017, Qupperneq 108

Morgunblaðið - 07.12.2017, Qupperneq 108
108 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017 Sæbjúgu innihalda mikið kollagen og yfir 50 tegundir af næringarefnum sem hafa öll mjög jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi mannslíkamans ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLA: Framleiðandi sæbjúgna er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fást á arcticstar.is . Arctic Star sæbjúgnahylki fást í flestum apótekum og heilsubúðum og í Hagkaupum. Arctic Star Sæbjúgnahylki Sæbjúgu eru þekkt fyrir: • Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald • Að minnka verki í liðum og liðamótum • Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni liðskemmda • Að bæta ónæmiskerfið og mótstöðu líkamans gegn ýmsum sjúkdómum • Að auka blóðflæði sem minnkar líkur á blóðtappa • Að koma í veg fyrir æðakölkun • Að auka orku líkamans, stuðla að myndun húðpróteins og insúlíns Hér eru birt brot úr bókinni og fram- an við hvert brot er stutt skýring á til- urð þess. Upptaktur að kafla um Kristrúnu Jónsdóttur frá Grenjaðarstað, fædd 1806 Mig minnir að ég hafi verið níu ára á gúmmístígvélum í Jörvasveitinni þegar ég kynntist Kristrúnu for- móður minni frá Grenjaðarstað í gegnum samræður foreldra minna. Það var nafnið sem leiddi til okkar kynna. Hún var langamma pabba og hann bjó yfir stór- brotnum tilfinn- ingaskala. „Hvernig gat hann látið þessa stórkostlegu konu lofast sér og hald- ið henni í festum í sjö heil ár? Hann sem þjóðin hefur sett á spjöld Ís- landssögunnar!“ Ég heyrði nafnið Baldvin en svo ekki meira, því ég var í óðaönn að koma hestinum mínum í hús fyrir nóttina, taka af honum hnakkinn, kemba, setja hey í bás og vatn í ker- ald. Myrkrið var biksvart en augu hestanna blikuðu í myrku hesthúsinu í endurskininu frá tunglinu, sem varp- aði ljósbroti inn um gluggana. Bald- vin, jú ég þekkti einn Baldvin; Krist- ján, móðurafi minn, fór að vinna hjá honum í tryggingunum þegar hann hætti á sjónum eftir að Reykjaborgin hans var skotin niður í stríðinu þar sem svo margir félagar hans dóu. Ég kom til baka úr hesthúsinu til að und- irbúa nestið fyrir morgundaginn og koma mér í rúmið. Stemningin bauð ekki upp á að ég spyrði mömmu eða pabba um þennan Baldvin. Árla næsta morgun gekk ég í stíg- vélunum og köflóttu ullarúlpunni með bræðrum mínum frá býlinu okkar út á þjóðveginn til að ná morgunvagn- inum. Eldri bróðir minn var kominn í menntaskóla en hinn sótti sama skóla og ég í borginni. Einhvern veginn gat ég ekki losað mig við spurninguna sem pabbi varpaði fram kvöldið áður. „Hvernig gat hann haldið henni í fest- um í heil sjö ár?“ Hvernig heldur maður einhverjum í festum? Mig langaði til að spyrja kennarann minn út í það, en það var of flókið því ég hafði ekki fengið botn í söguna. Sorg Kristrúnar á Grenjaðarstað Við andlátsfregn Baldvins hrundu varnir Kristrúnar á ný. Fyrir svo stuttu hafði henni tekist að öðlast fót- festu eftir sorgarfregnina um trún- aðarrofið en nú var áfallað það mikið að henni fannst hún gæti vart náð andanum. Í fyrra skiptið hafði hún misst ástina sína í hjónaband með annarri konu. Eftir langt sorgarferli hafði henni loks tekist að sjá Baldvin og fyrirheit hans í stærra samhengi. Eftir þá miklu úrvinnslu, þar sem hún setti fyrirgefninguna í öndvegi, kom næsta stóra höggið; andlát hans. Kristrúnu fannst sem sameiginlegur draumur þeirra Baldvins hefði dáið með honum. Þegar Kristrún náði áttum eftir þetta mikla reiðarslag var henni efst í huga hvort bréfið sem hún skrifaði Baldvini hefði náð til hans áður en hann varð fyrir slysinu. Hún leitaði skjóls í einrúmi og bað fyrir honum jafnt í kirkjunni sem á löngum göng- um sínum úti í náttúrunni. Undir ber- um himni gat hún betur leyft sér að eiga við hann samtöl. Í þeim tjáði hún honum allar þær hugsanir sem brotist höfðu um innra með henni og hvernig hin sanna ást til hans hefði að lokum orðið öllu yfirsterkari. Þegar hún kom loks til sjálfrar sín hefði henni orðið ljóst að enginn og ekkert fengi breytt tilfinningunum sem hún bar til hans. Í faðmi lyngs og blóma fór hún end- urtekið í huganum í gegnum það sem hún hafði skrifað. Hún vonaðist frá dýpstu hjartarótum til að bréfið hefði náð til hans fyrir slysið. Þar hafði hún sagt honum hvernig fyrirgefningin kom til hennar og þá öðlaðist hún loks friðinn í sál sinni. Það var augnablikið sem öllu breytti. Hún gekk óvænt fram á ljós í túnblettinum, hún leit upp og kom auga á lítið op mitt í þykkri skýjaslæðunni. Þetta eina litla op hleypti þessum skæra geisla niður. Á því augnabliki fannst henni sem hún heyrði rödd hans innra með sér segja: Nú fyrst veit ég með vissu, mín heitt elskaða Kristrún, það sem ég hef svo oft áður haft forboða um, að við munum sameinast í eilífðinni, þar sem ást þeirra sem unnast mun enginn fá aðskilið. Ásta Júlía hittir Tómas Í einni af heimsóknum læknisins dró til tíðinda. Yngsta dóttirin, Ásta Júlía, sem hafði farið til Kaupmanna- hafnar að nema söng og píanóleik, var nú nýkomin heim á Eyrarbakka. Tómas læknir knúði samkvæmt venju á dyr Hússins og var eins og ævinlega vel tekið og boðið til veislu og gist- ingar. Þegar Ásta Júlía leit hinn glæsilega lækni augum í fyrsta sinn sjóðhitnaði henni í vöngum. Á meðan hún sat til borðs með lækninum og fjölskyldunni lagði hún ekki mikið til málanna. Hún fann skyndilega hvern- ig áður óþekkt feimni helltist yfir hana. Samverustundin í stássstofunni eftir kvöldverð var föst venja. Um- ræðan um stöðu lands og þjóðar, sam- félag Íslendinga í Kaupmannahöfn þar sem sjálfstæðisbaráttuna bar hæst, var þeim öllum hugleikin og gaf tilefni til frjórra skoðanaskipta. Þótt Ásta hefði kynnst vel þeirri umræðu og að auki dvalið heima hjá forystu- manni baráttunnar á meðan hún var í Kaupmannahöfn kaus hún að þakka fyrir sig og fara upp eftir matinn í stað þess að taka þátt í umræðunum. Frú Sylvía settist að venju við píanóið og eftir að hafa leikið nokkur lög kallaði hún á dóttur sína. Ásta var vön því að syngja í stofunni við ólík tækifæri og kippti sér ekki upp við að koma fram fyrir gesti, enda naut hún þess að syngja. Nú brá öðruvísi við. Þegar móðir hennar kallaði upp og bað Ástu Júlíu að syngja fyrir Tómas lækni, sem væri mikill listunnandi, hrökk hún við og fann fyrir áður óþekktu óöryggi. Andlit læknisins, rödd og augnatillit fylltu hug hennar á þann hátt sem hún hafði ekki upplifað áður. Hún gekk hnarreist til stofu og gætti þess að líta ekki á gestinn þegar hún hóf að syngja. Hún fann að þótt hné hennar skylfu var rödd hennar styrk og hana langaði ekki til að hætta. Hún uppskar kröftugt lófatak og skáskaut augunum yfir til Tómasar læknis, sem horfði beint í augu hennar og sagði með sinni djúpu rödd: „Mikið yrði ég þér þakklátur ef þú myndir vilja syngja lag til viðbótar.“ Sýn höfundar á eiginleika Kristrúnar Tómasdóttur Hallgrímsson Kristrún Tómasdóttir föðuramma var sterkur persónuleiki. Strax á unga aldri mátti sjá að í henni bjó merkileg blanda af baráttukonu og tilfinn- ingaveru. Skilningur minn á persónu hennar hefur farið í margar áttir í gegnum árin. Ég hef velt vöngum yfir andstæðunum í fari hennar. Þá hvort rekja megi þann ótrúlega styrk sem hún bjó yfir, þegar brotsjóir lífsins risu hvað hæst, til orkunnar sem verð- ur til þegar andstæðir pólar mætast. Í einni og sömu konunni bjó bæði vís- indakona sem þráði að skilja lögmál eðlisfræðinnar og áþreifanlegra stað- reynda og á sama tíma andans kona sem efaðist aldrei um hið eilífa eða það sem okkur er ekki ætlað að skilja í þessari jarðvist. Per ardua ad Astra heitir eitt af hennar mörgu og merku myndverkum sem hún teiknaði fyrst og málaði, litaði síðan ullarbönd með íslenskum náttúrulitum og saumaði að lokum út með forníslenskum kross- saumi. Verkið er um metri á breidd og eins og hálfs metra hátt. Þeir sem sjá þetta undraverk verða flestir fyrir upplifun sem framkallar þörfina til að skilja … Í því má greina sýn ömmu á hvern- ig orka mannsandans samtvinnast orku náttúrunnar og himinhvolfanna. Eftir svo margra ára sambúð með þessu helga krosssaumsteppi hennar eygi ég einnig í því sýn hennar á upp- haf alls lífs og þróun þess inn í eilífð- ina. Segja má að það sé eins konar dulkóðun sem okkur er ætlað að ráða fram úr til að skilja betur þessa merku konu, hana föðurömmu mína. Föðuramma hittir ástina Einn daginn mætti hann á Hótel Reykjavík við Austurvöll þar sem Kristrún lék fyrir fullan sal gesta. Þegar Kristrún stóð upp að afloknum flutningi hélt listagyðjan áfram að leika á hana og hugarástand hennar var enn hlaðið ástríðu og spennu – enda setti hún ávallt sálu sína í túlkun á píanóverkum hinna stóru meistara. Roði lék um vanga Kristrúnar þegar hún stóð upp og hneigði sig. Eftir tón- leikana gekk Árni Benediktsson til hennar, kynnti sig og spurði hvort hann mætti gerast svo framhleypinn að bjóða listakonunni að drekka með sér te. Hún sagðist löngu síðar enn muna hversu funheitar kinnar hennar urðu þegar dökkhærði maðurinn gekk í áttina til hennar. Hún rétti úr sér og bað unga manninn að hinkra ögn á meðan hún gengi frá nótunum og þerraði sig eftir átökin. Hún fór bakatil og þvoði sér um hendur. Um leið og hún leit í spegilinn hugsaði hún með sjálfri sér: Þetta er hann! Þau settust við gluggann og horfðu út yfir Austurvöllinn um leið og þjónninn færði þeim bakka með tei og engiferkökum. Á meðan teið kólnaði ofurlítið í bollunum þeirra talaði Árni um hve píanóleikur hennar hefði verið hrífandi og hve stórkostlegt það hlyti að vera að hafa slíka þekkingu á tón- list og svo gott vald á hljóðfærinu. Hann tjáði henni að sjálfur hefði hann ekki alist upp við tónlist en sótt tón- leika í tvígang þegar hann var á Eng- landi. „Tónlist sker sig frá allri annarri list, er ekki svo?“ spurði hann. „Hún er hvorki snertanleg né sjáanleg en fyllir samt vit manns.“ Kristrún hafði aldrei áður vitað til þess að maður án tónlistarþekkingar, að eigin sögn, kæmi með svo áhugaverða at- hugasemd um tónlist. Tónlistina sem var líf hennar og yndi. Um söguslóðir formæðra og -feðra Það sem dvelur í þögninni er ættarskáldsaga eftir Ástu Kristrúnu Ragnarsdóttur þar sem hún sækir í sagnabrunninn sem hún er alin upp við til að varpa ljósi á lífshlaup formæðra sinna. Sögusviðið er vítt og breitt um landið – meðal annars á Grenjaðarstað í Aðaldal, Hólmum í Reyðarfirði, Bessastöðum, Arnarfirði, Eyrarbakka og Reykjavík auk þess sem siglt er út fyrir landsteinana. Ljósmynd/Úr einkasafni Kappsöm Ásta Júlía Thorgrímsen Hallgrímsson frá Húsinu á Eyrarbakka með Kristrúnu og Guðmund, tvö elstu barna sinna af fjórum. Ljósmynd/Úr einkasafni Heimskona Kristrún eftir heimkomu frá Ameríku með þremur börnum sínum, Unni Sylvíu, Benedikt Agli og Ragnari Tómasi, föður bókarhöfundar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.