Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.12.2017, Síða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.12.2017, Síða 17
einu þekkti Kristín karakterinn betur en höf- undurinn og þá vorum við komnar á frábær- an stað. Skömmu fyrir tökur er að svo miklu að huga og þá er svo þægilegt þegar leikar- arnir eru með allt sitt á hreinu. Sama var með Babetidu, hún stóð sig frábærlega, hafði sama metnað og Kristín Þóra og þær tengdu vel saman.“ Ísold er búin að rannsaka aðstæður hælis- leitenda í nokkur ár og hafði oft heimsótt Fit hostel sem var þá húsnæði fyrir hælisleitend- ur. Hún vildi taka myndina upp á Suður- nesjum, ekki bara þess vegna heldur fannst henni umhverfið á Reykjanesinu spennandi sjónrænt séð. Smá samviskubit að baki Gefur myndin trúverðuga mynd af aðstöðu hælisleitenda hér á landi? Ísold: „Það sem við sjáum í myndinni er ferlið eins og það var þegar handritið var í vinnslu og er mjög nálægt því eins og það er núna. Það var áskorun fyrir mig að uppfæra handritið á hverju ári ef eitthvað breyttist í kerfinu. Allt sem þú sérð í þessari mynd er eitthvað sem hefur raunverulega gerst. Hvernig fólk er handtekið fyrir það að eitt að eiga kannski ekki fullnægjandi pappíra. Pappíra sem það hefur kannski glatað á flótta sínum um heiminn. Hvernig því er refsað fyrir það eitt að vera í ómögulegri stöðu. Þetta er að vissu leyti alþjóðleg mynd því þetta gæti gerst hvar sem er, alls staðar er það þannig að við fæst fáum rétta og sanna mynd af hugarheimi einstaklinga í þessari stöðu. Einstaklingum sem er gert að sitja og bíða og komast ekkert, eru í geymslu þangað til einhver yfirvöld einhvers staðar hafa tekið ákvörðun um örlög þeirra. Fólk getur til dæmis horft á myndina í Þýskalandi og hugs- að með sér að þetta sé svolítið svipað og hjá þeim. Hjá okkur er þetta auðvitað smærra í sniðum og kannski meira „naív“. Viltu að myndirnar þínar séu hreyfiafl? Ísold: „Já, líklega verð ég að viðurkenna að ég laðast að sögum sem hafa þýðingu. Það er kannski ákveðið samviskubit þarna að baki því stundum finnst mér ég bara vera að leika mér. Er ekki læknir eða lögfræðingur að vinna hjálparstörf í útlöndum, ég geri bara bíómyndir. Þannig að ef ég ætla bara að gera bíómyndir er eins gott þær hafi eitthvað að segja. Það eru mörg ár síðan ég fann fyrir þessum tilfinningum, að ég gæti ekki gert mynd sem skipti engu máli. En svo er mis- munandi hvað það þýðir að skipta máli hverju sinni. Það virðist reyndar vera hjá mér, það að ég er alltaf að gera myndir um hvernig stolt- ið þvælist fyrir okkur. Við erum öll alltaf að reyna að halda andliti í hvaða aðstæðum sem er og það á við um persónurnar núna.“ Til að velja í hlutverk voru haldnar leik- araprufur, bæði í Belgíu og hér heima en Tinna Hrafnsdóttir sá um leikaraval á Íslandi og Guðrún Daníelsdóttir um að ráða m.a. í hlutverk flóttafólks. Af hverju varð Kristín Þóra fyrir valinu? Ísold: „Í meðförum Kristínar lifnaði kar- akterinn við. Sem höfundur er maður oft orð- inn ónæmur fyrir eigin skrifum. En hún tók ákveðna senu þannig að ég var hreinlega ónýt eftir að horfa á hana leika hana, snerti mig svo djúpt. Þá vissi ég að það var eitthvað sérstakt sem Kristín hefði. Og sama var með Babetidu, ég sá strax að hún hefði eitthvað einstakt.“ Hver var mesta áskorunin við að gera myndina? Kristín: „Ég myndi næstum segja allt! Við vorum í kapphlaupi við tímann, það var hræðilega kalt og veðrið brjálað. Meira að segja þegar við vorum að taka upp innanhúss var stundum kaldara inni en úti því við gát- um ekki kynt húsnæðið. Ég fór stundum út til að hlýja mér!“ Ísold: „Stundum var eins og ekkert ynni með okkur. Ég ákvað að velja rosalega lítinn bíl sem bíl persónunnar því mér fannst það sjónrænt flott. En það var algjör martröð að troða leikara, leikstjóra, tökumanni, ketti og hljóðmanni þarna inn. Ég hugsaði stundum með mér hvað ég hefði eiginlega verið að spá. Þegar ég sá útkomuna var ég samt mjög feg- in að ég valdi ekki það auðveldasta.“ Kristín: „Þetta var allt þess virði og ég myndi í alvörunni gera þetta aftur en ef ég hugsa um þennan tíma verður mér ískalt.“ Það er óhjákvæmilegt annað en að minnast á mál málanna hjá konum í sviðslistum og kvikmyndagerð, byltinguna sem kennd er við #metoo. Finnið þið einhverja breytingu á landslaginu í ykkar geira eftir umræðuna? Ísold: „Já, það eru ótrúlegir hlutir að ger- ast. Allt í einu er eins og við eigum okkur all- ar bandamenn. Ég get ímyndað mér að það sé til dæmis allt öðruvísi að vera nýgræðing- ur í bransanum í dag. Vera kannski um tví- tugt og vita ekki alveg hvað er eðlilegt og hvar línan er dregin, þá ertu allt einu komin með stuðning þúsund kvenna sem þú getur spurt hvað sé eðlilegt og allar eru tilbúnar að sýna stuðning. Fyrir mig, sem er að leikstýra og í fram- leiðslu, er þetta líka ákveðin vakning fyrir mann að vera meira á varðbergi, vera með sterkari meðvitund um hvað er að gerast í kringum mann og vera tilbúinn að stökkva inn og skerast í leikinn ef maður verður vitni að einhverju.“ Kristín: „Við finnum til hugrekkis og ábyrgðar gagnvart því að vilja breyta þessu og það sama gildir örugglega um karlana. Ástandið hefur verið miklu, miklu verra en ég hélt og maður er sleginn að átta sig á því. En það er einstakt tækifæri núna til að breyta þessu, ekki bara tala. Vinnan í þessum geira er þannig að þú ert í mikilli nánd og opnar hjarta þitt upp á gátt. Því er svo mik- ilvægt að það sé traust til staðar, það hefur verið magnað að skynja þessa samstöðu.“ Ísold: „Það er líka búið að normalísera þetta í svo mörg ár og maður var held ég hættur að taka eftir ákveðnum athugasemd- um, leiddi það bara hjá sér.“ Hver eru næstu skref eftir Sundance í jan- úar og Íslandsfrumsýningu í febrúar? Kristín: „Ég er sjálf núna að undirbúa frumsýningu á grískum harmleik, Medea, í Borgarleikhúsinu 29. desember. Svo er spennandi að vita hvað Andið eðlilega leiðir af sér.“ Ísold: „Við höldum áfram að flakka með myndina um allan heim. Við erum komin með margar fyrirspurnir hef ég heyrt frá umboðs- aðilum okkar og Kvikmyndamiðstöð og við hlökkum til að sýna fólki afraksturinn.“ Kristín Þóra þykir sýna magnaða tilburði í hlutverki sínu. „Í meðförum Kristínar lifnaði karakter- inn við. Sem höfundur er maður oft orðinn ónæmur fyrir eigin skrifum. En hún tók ákveðna senu þannig að ég var hreinlega ónýt eftir að horfa á hana leika hana, snerti mig svo djúpt. Þá vissi ég að það var eitthvað sérstakt sem Kristín hefði,“ segir Ísold Uggadóttir. Morgunblaðið/Hari 17.12. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Hópurinn á setti; Patrik Nökkvi, Kristín Þóra, Ísold og Babetida. Babetida og Patrik Nökkvi Pétursson í hlutverkum sínum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.