Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.12.2017, Qupperneq 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.12.2017, Qupperneq 18
Í MYNDUM 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.12. 2017 Inn á milli Esjunnar og Skálafells liggjaMóskarðshnjúkarnir. Þar sitja þeir oft átíðum alveg gleymdir en henta Reykvík- ingum og nærsveitarmönnum alveg sérlega vel til útivistar svona rétt í bæjarstæðinu. Það þarf þó sæmilega búinn bíl til að komast inn úr Mosfellsdalnum á kaldasta tímanum en þegar þangað er komið eru hnjúkarnir tilvaldir til að koma fersku lofti í meng- unarmettuð lungu borgarbúa. Hvort sem er að sumri eða vetri. Á veturna hefur þar helst verið stunduð fjallaskíðamennska sem og auðvitað al- mennt fjallaklifur. En það jaðrar nátt- úrulega við sturlun að hafa fyrir því að erf- iða upp á fjöll og gera ekkert skemmtilegra á bakaleiðinni en að labba bara í rólegheit- um aftur heim. Þá er geggjað, þegar veð- urguðirnir bjóða ekki alveg upp á að binda á sig fjallaskíðin, að draga fram hjólhestinn í staðinn. Ískaldar tær gleymast strax og dekkin byrja að vísa niður enda fátt skemmtilegra en að fara á fullu gasi niður snæviþakktar brekkurnar á vel búnu fjalla- hjólinu. Hálfa leiðina á hlið og hinn helming- inn á andlitinu – brosandi andlitinu. Móskarðshnjúkarnir rísa hæst í rétt rúmum 800 metrum og til að klöngr- ast þar upp á topp þarf stundum að bera hjólið yfir bratta og grófa kafla. Hafa ber í huga, sérstaklega þegar hjólið er með í för, að stundum er skynsamlegt að reyna alls ekki við toppinn vegna snjólaga og ísingar. Á fjallahjólhesti á fjallstoppum Ljósmyndir og texti HARALDUR JÓNASSON Línurnar milli sumar- og vetraríþrótta svo gott sem þurrkast út þegar fjallahjólið er grafið fram úr geymslunni, sett á grófustu dekk hússins og steðjað upp á snæviþakta fjallatoppa landsins í smá snjóhjól. Til að komast að rótum Móskarðshnjúka að vetri borgar sig að vera á sæmi- lega búnum bíl og ekki sakar að koma fyrir nokkrum auka hjólum á pallinum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.