Morgunblaðið - 03.01.2018, Page 1

Morgunblaðið - 03.01.2018, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 3. J A N Ú A R 2 0 1 8 Stofnað 1913  2. tölublað  106. árgangur  ÞORRAMATURINN ER KOMINN Í SÚR FYRIR LÖNGU SÁLMAR Á NÝRRI ÖLD ÍSLANDSMEISTARI RANNSAKAR JAFNRÉTTIÐ SCHOLA CANTORUM 74 BJARNI MÁR 16JÓI Í MÚLAKAFFI 4 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Tvö alvarleg flugeldaslys urðu um áramótin af völdum flugeldatertu sem ber heitið Top Gun. Slysin urðu þegar terturnar féllu á hliðina eftir að kveikt var í þeim. Þannig varð Egill Arnarsson fyrir vöðva- og æðaskemmdum þegar hann fékk skot úr Top Gun flugelda- tertu í fótinn og á höfuðborgarsvæð- inu marðist maður sömuleiðis illilega eftir skot úr Top Gun, að því er fram kemur á fésbókarsíðu Teits Guð- mundssonar læknis. „Ég tel að það hafi verið galli í tertunni. Það eina sem ég hugsaði þegar ég sá í hvað stefndi var að koma börnunum fjórum sem ég var með, á aldrinum tveggja til átta ára, í skjól bak við bíl. Ég er þakklátur fyr- ir að börnin sluppu,“ segir Egill. Smári Sigurðsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir eitt slys einu slysi of mikið. Hann segir að vandlega sé farið yfir allar ábendingar sem berast og úr- bætur gerðar ef þurfa þyki. Jón Magnús Kristjánsson, yfir- læknir bráðadeildar Landspítalans, segir að það stefni í sama fjölda flug- eldaslysa og í fyrra eða 19. Hann seg- ir að þau hafi verið 45 fyrir 10 árum. Tvö alvarleg flugeldaslys  Vinsæl flugeldaterta olli tveimur alvarlegum slysum nú á gamlárskvöld  Skotkraftur Top Gun gríðarlegur  Flugeldaslys færri en fyrir 10 árum MHættulegir flugeldar »4Flugeldar Top Gun olli áverkum. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Félag í eigu Péturs Stefánssonar, fjárfestis í Lúxemborg, hefur keypt heilt fjölbýlishús í Jaðarleiti. Það er ný gata sunnan við Útvarpshúsið í Efstaleiti í Reykjavík. Félagið borg- aði um 800 milljónir fyrir húsið. Þar verða samtals 18 lúxusíbúðir. Kaup félagsins, C4 ehf., eiga þátt í að seldar hafa verið 47 af 71 íbúð í Jaðarleiti 2-8. Verð óseldra íbúða er allt að 100 milljónir. Félagið Skuggi byggir íbúðirnar í Jaðarleiti. Þær eru í fjórum fimm hæða fjölbýlishúsum. Fram hefur komið að Skuggi keypti lóðir undir alls 361 íbúð á svæði RÚV á 2,2 milljarða, eða um sex milljónir á íbúð. Nýr reitur fer í sölu í vor Hilmar Ágústsson, framkvæmda- stjóri Skugga, segir það til marks um áhuga á verkefninu að svo marg- ar íbúðir séu seldar nokkru áður en húsin eru tilbúin. Síðustu íbúðirnar verði afhentar í júní. Skuggi muni í vor hefja sölu íbúða á A-reit, norðan við Útvarpshúsið. »6 Kaupir heila blokk Morgunblaðið/RAX Við Útvarpshúsið Blokk sem félag Péturs keypti, númer 8, er til hægri.  Fjárfestir kaupir íbúðir í Jaðarleitinu Um nokkurra vikna skeið hefur Tjörnina í Reykjavík lagt. Mannlífið í miðbænum tekur þá breytingum og fólk sækir út á ísinn til göngu og leiks. Þessar stúlkur eru þar engin undantekn- ing en þær virtust skemmta sér konunglega á ísnum í kuldanum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þótt frostið bíti má bregða á leik  „Ég heyri á kollegum mínum að mönnum stórblæðir núna um hver einustu mánaðamót þegar þeir þurfa að borga tugi milljóna í veiði- gjöld, á sama tíma og afkoman er ekki í neinum takti við gjöldin,“ seg- ir framkvæmdastjóri útgerðar á Patreksfirði í samtali við Morg- unblaðið í dag. Vísar hann þar til þeirra áforma ríkisstjórnarinnar að taka veiðigjöld í sjávarútvegi til end- urskoðunar. „Við stöndum hreinlega ekki undir þessari skattbyrði.“ Ekki fer vel saman að veiðigjald hækki þegar tekjur dragist saman og afkoman verði þar með lakari, segir Ásta Björk Sigurðardóttir, hagfræðingur SFS. »4, 40 „Stórblæðir um hver mánaðamót“ Ef fullt tungl kemur upp á fyrstu 11 dögum janúarmánaðar má ganga út frá því að tunglið fyllist 13 sinnum það árið. Þetta bendir Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins, á. Þessi staða kemur þó ósjaldan upp eða á tveggja til þriggja ára fresti. Það sem gerir stöðu tunglsins sérstaka í ár er hins vegar sú staðreynd að ekkert fullt tungl verður í febrúar. „Það er sjaldgæfara að maður hafi ekkert fullt tungl í febrúar. Það gerðist síðast 1999 og mun gerast næst árið 2037,“ segir Sævar Helgi. Ofurmáninn sem sást á himni síðastliðna nótt mun birtast að nýju þann 31. janúar næstkomandi. »10 Tunglið mun fyllast þrettán sinnum á þessu ári Morgunblaðið/Árni Sæberg Mánaskin Tunglið skín skært í ár.  Fjölgun ferðamanna sem koma til landsins hefur leitt af sér breytingar í sölu á eldsneyti á bíla. Hjá N1 var viðmiðið lengi að 70% af sölunni voru á höfuðborgarsvæðinu og þar í kring en er nú ekki nema liðlega helmingur. Eggert Þór Krist- ófersson, forstjóri N1, segir að þetta sé hluti af stærri breytingum á markaðnum. Þjónustustöðvar fyr- irtækisins inni í íbúðarhverfum, eins og til dæmis við Ægisíðu og Stóra- gerði í Reykjavík, leggist af. Áfram verða stórar stöðvar við helstu stofnbrautir og þær þurfa líka að vera fjölfarnar svo rekstur beri sig enda er mikil fjárfesting undir. „Einkabíllinn verður áfram ráð- andi á Íslandi, skipulag, að- stæður og veðr- átta ráða því. Að miða samgöng- urnar við borg- arlínu, hjólreiðar eða að fólk fari erinda sinna gangandi gengur ekki upp nema allir búi þá í blokkum í 101 Reykjavík. Í frjálsu samfélagi lætur fólk heldur engan segja sér fyrir verkum um sam- göngur,“ segir Eggert um áherslur og framtíðarmyndir í starfsemi fyr- irtækisins. »22 Meira selt af bensíni úti á landi en einka- bíllinn verður áfram ráðandi í borginni Eggert Þór Kristófersson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.